Hæstiréttur dæmir Þórhall miðil í 18 mánaða fangelsi

Þór­hallur Guð­munds­sonar þarf að greiða 1,2 millj­ónir króna í miska­bætur og sæta fang­els­is­vist fyrir nauðgun.

Hæstiréttur dæmir Þórhall miðil í 18 mánaða fangelsi
Þór­hallur Guð­munds­son Hæsti­réttur stað­festir dóm Lands­réttar og hér­aðs­dóms. Mynd: Stöð 2

Hæsti­réttur dæmdi í dag Þórhall Guð­munds­son, einnig þekktan sem Þór­hallur mið­ill, í 18 mán­aða fang­elsi fyrir nauðgun. Hann þarf einnig að greiða þol­anda 1,2 millj­ónir króna í miska­bætur.

Þórhalli var gefið að sök að hafa fróað manni án hans sam­þykkis á heim­ili sínu í sept­em­ber 2010. Lá mað­ur­inn á nudd­bekk og var í heil­un­ar­með­ferð hjá Þórhalli. Hann var sak­felldur í hér­aðs­dómi fyrir verkn­að­inn, en áfrýj­aði dómnum til Lands­réttar þar sem hann var órask­aður. Hæsti­réttur hreyfir ekki við lengd fang­els­is­vist­ar­innar en hækkar miska­bæt­urnar úr 800 þús­und krónum í 1,2 millj­ónir.

Fellst Hæsti­réttur jafn­framt á að Þór­hallur hafi beitt ólög­mætri nauð­ung og mis­notað það traust sem brota­þoli bar til hans sem heil­ara. Brota­þoli var tví­tugur þegar brotið átti sér stað og lagði fram kæru árið 2016, sex árum eftir atburð­inn. „Þegar ákæra í mál­inu var gefin út voru tæp átta ár liðin frá broti,“ segir í dómnum. „Með hlið­sjón af því og þrátt fyrir alvar­leika brots ákærða þykir ekki næg ástæða til að hagga við refs­ingu hans.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár