Mötuneyti Íslandsbanka fær umhverfisvottun

Kaffi­stofa Sam­hjálpar fær 65 þús­und mál­tíðir gef­ins frá mötu­neyt­inu á ári hverju. Fyr­ir­hugað er að selja allt að 35% hlut rík­is­ins í bank­anum.

Mötuneyti Íslandsbanka fær umhverfisvottun
Svans­vottun veitt Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, ásamt Rík­hjarði Gúst­avs­syni, deild­ar­stjóra Dalsins, og Elvu Rakel Jóns­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Svansins. Mynd: Umhverfisstofnun

Umhverf­is­stofnun hefur til­kynnt að mötu­neyti Íslands­banka, sem heitir Dalurinn, hefur hlotið Svans­vottun. 

Meðal þess sem starfs­fólk mötu­neyt­is­ins hefur unnið að er að koma í veg fyrir mat­ar­sóun með mæl­ingum og aðgerðum. Starfs­fólkið kom á fót sam­starfi við Kaffi­stofu Sam­hjálpar sem fær gef­ins yfir 65 þús­und mál­tíðir á ári. Á vef Sam­hjálpar kemur fram að félagið gefi allt að 200 mál­tíðir á dag, sem nemur um 73 þús­und mál­tíðum.

Mötu­neytið nýtir nú ein­göngu umhverf­is­vottuð efni í eld­húsi, hefur aukið inn­kaup á líf­rænum mat­vælum og flokkar og end­ur­vinnur allan úrgang.

„Með þessu fram­taki sýnir Íslands­banki gott for­dæmi og sam­fé­lags­lega ábyrgð sam­hliða því að fram­fylgja sjálf­bærni­stefnu bank­ans,“ segir í yfir­lýs­ingu Umhverf­is­stofn­unar.

Íslands­banki er í eigu íslenska rík­is­ins, eins og Lands­bank­inn að 98% hluta. Í des­em­ber til­kynnti Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra að stefnt væri að sölu á eign­ar­hlut rík­is­ins, sam­kvæmt til­lögu Banka­sýslu rík­is­ins. Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis lagði form­lega til við fjár­mála­ráð­herra að allt að 35 pró­senta eign­ar­hlutur rík­is­ins í Íslands­banka yrði seldur. Samkvæmt til­lögu nefnd­ar­innar átti eng­inn einn þátt­tak­andi í útboð­inu að eign­ast meira en 2,5 til 3 pró­sent í bank­anum. Sam­fylk­ingin, Mið­flokk­ur­inn og Píratar eru and­víg söl­unni, en Samtök atvinnu­lífs­ins hafa fagnað fyr­ir­hug­aðri sölu.

Íslands­banki hefur vakið umtal með rót­tækri sjálf­bærn­is­stefnu. Meðal ann­ars hefur bank­inn boðað að inn­kaup muni ráð­ast að hluta af jafn­rétt­is­stefnu birgja. Meðal ann­ars til­kynnti bank­inn árið 2019 að hann myndi hætta að aug­lýsa hjá fjöl­miðlum sem byggju við kynja­halla í starfs­liði og vali á við­mæl­endum.

Svans­vottun er opin­bert umhverf­is­merki Norð­ur­land­anna sem komið var á lagg­irnar af Norrænu ráð­herra­nefnd­inni 1989. Mark­miðið er að draga úr umhverf­is­á­hrifum af vörum og þjón­ustu og auð­velda neyt­endum að velja umhverf­is­væna kosti.

Hér má sjá lista yfir svans­vott­aða þjón­ustu. Meðal 42 fyr­ir­tækja á Íslandi sem fengið hafa Svans­vottun eru Krónan, Kaffitár, Mötu­neyti Lands­bank­ans, Reitir, Tandur, Mötu­neyti Land­spít­al­ans og Ísa­fold­ar­prent­smiðja. Þess utan hafa um 30 þús­und vörur á Norð­ur­lönd­unum fengið Svans­vottun.

Kröfur fyrir Svans­vottun fela meðal ann­ars í sér að skoða allan lífs­feril vara, setja strangar kröfur um notkun skað­legra efna, flokkun og lág­mörkun úrgangs og tryggja að ekki séu notuð þekkt horm­ón­arask­andi eða krabba­meins­vald­andi efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár