Trump hefur tíst sitt síðasta en þingmenn hræðast vald hans yfir hernum

Nancy Pelosi, for­seti full­trúa­deildar Banda­ríkja­þings, krefst taf­ar­lausrar afsagnar Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta, ann­ars verði hann aftur ákærður fyrir þing­inu. Öld­unga­deild­ar­þing­maður repúblik­ana fer fram á afsögn Trumps. For­set­inn er sagður hafa sett Mike Pence vara­for­seta í hættu.

Trump hefur tíst sitt síðasta en þingmenn hræðast vald hans yfir hernum
Donald Trump Á svið­inu and­spænis fylg­is­mönnum sínum við Hvíta húsið á mið­viku­dag, þar sem hann sagði þeim að kosn­ing­unum hefði verið stolið. Mynd: Brendan Smialowski / AFP

Twitter hefur lokað var­an­lega á reikn­ing Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta vegna hættu á að hann hvetji til frekara ofbeldis. Þingmenn Demókrata og sumir repúblikanar reyna nú að fá for­set­ann úr emb­ætti til að hindra að hann geti beitt hernum.

Fimm lét­ust, og þar af einn lög­reglu­maður, eftir að Trump espaði upp fylg­is­menn sína við Hvíta húsið á mið­viku­dag með ásök­unum um kosn­inga­svindl og hvatn­ingu til aðgerða, með þeim afleið­ingum að hópur fylg­is­manna hans, þar á meðal þekktir sam­sær­is­kenn­inga­smiðir og öfga­fullir kynn­þátta­hat­arar, brutu sér leið inn í þing­húsið.

Nancy PelosiForseti full­trúa­deild­ar­innar hefur fundað með æðstu yfir­mönnum hers­ins um hætt­una af því að Donald Trump stofni til hern­að­ar­á­taka undir lok valda­tíðar sinnar.

Óttast vald Trumps yfir hernum

Lokað á TrumpStjórn­endur Twitter komust að þeirri nið­ur­stöðu eftir árás­ina á þing­húsið í Washington að Trump hefði brotið reglur mið­ils­ins.

Nancy Pelosi, for­seti full­trúa­deildar þings­ins, hefur rætt við æðstráð­endur í varna­mála­ráðu­neyt­inu um að „hindra óstöðugan for­seta frá því að hefja hern­að­ar­að­gerðir eða kom­ast yfir kjarn­orku­vopna­kóða“.

Á meðan Trump er for­seti hefur her­inn laga­lega skyldu til þess að fylgja skip­unum hans sem æðsta yfir­manns Banda­ríkja­hers.

Demókratar og sumir repúblikanar vilja beita 25. við­auka stjórn­ar­skrár­innar, sem kveður á um að óhæfur for­seti geti verið fjar­lægður úr emb­ætti.

Full­trúa­deild þings­ins getur með ein­földum meiri­hluta ákært for­set­ann. Til þess að hann verði fjar­lægður úr emb­ætti þurfa hins vegar tveir þriðju öld­unga­deild­ar­þing­manna að sam­þykkja ákæruna.

Í upp­kasti að ákæru gegn Trump er kveðið á um að hann hafi „hvatt til upp­reisnar“.

Skrif­stofa Pelosi var yfir­tekin af trump­istum á mið­viku­dag. Mynd af stuðn­ings­manni Trumps með fæt­urnar uppi á skrif­borði Pelosi vakti mikla athygli, en mað­ur­inn sem þar sat hefur nú verið hand­tek­inn.

Repúblikanar yfirgefa Trump

Lisa Murkowski varð í dag fyrsti öld­unga­deild­ar­þing­maður Repúblikana­flokks­ins til þess að krefj­ast afsagnar Trumps.

Bill Barr, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra Trumps, er einn þeirra sem hefur sagt Trump hafa „svikið emb­ætti sitt“.

Joe Biden segir að það sé í höndum þings­ins að ákveða með ákæru. „Hann hefur farið fram úr verstu hug­myndum mínum um hann. Hann er land­inu til skammar. Hann er ekki þess verður að sitja í emb­ætti.“ Biden sagði í ræðu að Trump hefði um langt skeið notað orð­færi ein­ræð­is­herra um and­stæð­inga sína, og nefnt þá „óvini fólks­ins“.

„Hann er land­inu til skammar.“

Mike Pence vara­for­seti er sagður vera reiður for­set­anum eftir að hann espaði æstan múg­inn upp á móti honum. Í þing­hús­inu heyrð­ist inn­rás­ar­fólkið kalla: „Hvar er Mike Pence?“ Pence hafði þá verið naum­lega forðað undan inn­rás­ar­hópnum, líkt og þing­mönnum í hús­inu.

Samkvæmt frétt CNN hafði Trump hótað Pence alvar­legum póli­tískum afleið­ingum ef hann hindr­aði ekki form­lega stað­fest­ingu á kjöri Joes Biden á þing­inu á mið­viku­dag. Þá kemur fram að Trump hafi beint blóts­yrðum að Pence þegar hann hafn­aði því að grípa inn í stað­fest­ing­una, á þeim grund­velli að engin laga­heim­ild væri fyrir því og að athöfnin væri tákn­ræn.

Síðasta tíst Donalds Trumps á Twitter var eft­ir­far­andi: „Til allra sem hafa spurt mig. Ég mun ekki mæta á inn­setn­ing­una 20. jan­úar.“

Hann var með 88 milljón fylgj­endur á Twitter. Barack Obama, for­veri hans í for­seta­stóli, er hins vegar með 128 millj­ónir fylgj­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár