Joe Biden: „Nóg er nóg er nóg“

Verðandi for­seti kallar eftir end­ur­reisn vel­sæmis og heið­urs. Frá­far­andi for­seti seg­ist skilja stuðn­ings­menn sína sem rudd­ust inn í þing­húsið.

Verðandi Banda­ríkja­for­seti, Joe Biden, sem verður settur í emb­ætti 20. jan­úar næst­kom­andi, lagði í kvöld áherslu á að óreiðan í þing­hús­inu í Washington, þar sem trump­istar rudd­ust inn og yfir­tóku bygg­ing­una, væri ekki hin sönnu Banda­ríki.

Biden hélt ræðu í heimabæ sínum, Wilmington í Delaware, á meðan upp­reisn­ar­menn á bandi Trumps voru enn í þing­hús­inu. Hann sagði inn­rás­ina ekki vera and­stöðu heldur upp­reisn. Í henni fælist „for­dæma­laus árás á lýð­ræðið okkar. Ólík nokkru sem við höfum séð í nútím­anum.“ 

„Dagurinn er áminn­ing, sárs­auka­full, um að lýð­ræðið er brot­hætt og varð­veisla þess krefst vel­vilj­aðs fólks, leið­toga með hug­rekkið til að rísa upp, sem eru drifnir áfram, ekki af valdi, eða eig­in­hags­munum sama hvað þeir kosta, heldur af almanna­heill.“

Biden beindi orðum sínum til Donalds Trump, sem á sama tíma ávarp­aði fylg­is­menn sína með þeim orðum að hann skildi þá, elskaði þá en bæði þá að fara heim.

„Orð for­seta skipta máli, hversu góður eða slæmur sá for­seti er. Þegar best lætur geta orð for­seta veitt inn­blástur. Þegar verst lætur geta þau hellt olíu á eld­inn,“ sagði Biden.

Sér­fræð­ingar í öryggis- og utan­rík­is­málum hafa lýst ótta sínum um að inn­rásin í þing­húsið verði notuð af and­lýð­ræð­is­legum rík­is­stjórnum og and­stæð­ingum Banda­ríkj­anna til þess að rétt­læta eigin aðgerðir.

„Ímyndið ykkur hvað börnin, sem eru að horfa á sjón­varpið, eru að hugsa. Ímyndið ykkur hvað heims­byggðin horfir upp á. Í meira en tvær og hálfa öld höfum við, fólkið, í leit að full­komnu sam­fé­lagi, haft auga­stað á almanna­heill. Banda­ríkin eru svo miklu betri en þau sem við höfum séð í dag.“

Eftir ræð­una steig Biden af sviði, en sneri við þegar spurn­ingum var kallað til hans um hvort hann hefði áhyggjur af inn­setn­ingu sinni í emb­ætti sem fyr­ir­huguð er 20. jan­úar.

„Ég hef ekki áhyggjur af öryggi mínu, vel­ferð eða inn­setn­ingu. Ég hef ekki áhyggjur. Banda­ríkja­menn munu rísa upp, og rísa upp núna. Nóg er nóg er nóg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár