Trump ávarpar innrásarfólkið: „Við elskum ykkur, þið eruð mjög sérstök“

„Þetta var svindl­kosn­ing,“ segir Donald Trump Banda­ríkja­for­seti í ávarpi til stuðn­ings­manna sinna eftir að hópur þeirra rudd­ist inn í þing­húsið í Washington.

„Ég þekki sárs­auka ykkar. Ég veit að þið eruð særð. Kosn­ing­unum var stolið af okkur,“ sagði Donald Trump Banda­ríkja­for­seti fyrir stundu í ávarpi sínu til stuðn­ings­manna sinna í kvöld, eftir að stór hópur þeirra rudd­ist inn í þing­húsið í Washington fyrr í kvöld. Nokkrir eru slas­aðir og ein kona er látin eftir að hafa fengið skot í háls­inn í þing­hús­inu.

Þing­mönnum og vara­for­set­anum var forðað úr þing­hús­inu með hraði fyrr í dag þegar stuðn­ings­menn Trumps brutu sér leið inn í húsið til að hindra að Joe Biden yrði form­lega val­inn for­seti. Trump hefur hvatt áfram stuðn­ings­menn sína í dag með fölskum ásök­unum um að svindlað hefði verið í for­seta­kosn­ing­unum í nóv­em­ber.

Trump sýnir hópnum sam­hug og skiln­ing. „Þetta var yfir­burð­ar­kosn­ing og allir vita það, sér­stak­lega hitt liðið.“

Hann bað stuðn­ings­menn sína að fara heim. „En þið verðið að fara heim núna. Við verðum að hafa frið. Við þurfum að virða okkar stór­feng­lega fólk sem starfar við lög og reglu. Við viljum ekki að neinn meið­ist.“ 

Loks sagð­ist hann elska þá. „Farið heim, við elskum ykkur. Þið eruð mjög sér­stök. Þið hafið séð hvað ger­ist. Þið hafið séð hvernig er komið fram við aðra, sem eru svo slæmir og svo illir. Ég veit hvernig ykkur líður. En farið heim og farið heim í friði.“

Í dag hefur Trump ítrekað kvartað undan kosn­inga­svindli. Á úti­fundi með stuðn­ings­mönnum sínum undir titl­inum Save America sagð­ist hann aldrei ætla að gef­ast upp. Þá sagð­ist lög­fræð­ingur hans og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri New York, Rudy Giuliani, vilja að skorið yrði úr um kosn­ing­arnar „í bar­daga“. Tugum mála­ferla Trumps og Giuliani vegna kosn­inga­úr­slit­anna hefur verið vísað frá dóm­stólum á und­an­förnum vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár