Kvarta undan tapi og kaupa 150 milljóna króna aukaíbúð

Björn Leifsson, eig­andi World Class, hefur hagn­ast veru­lega á rekstri lík­ams­rækt­ar­stöðv­anna, en vildi að fjár­mála­ráð­herra bætti sér upp tap vegna lok­ana í Covid-far­aldr­inum. Um sama leyti keypti eig­in­kona hans og með­eig­andi 150 millj­óna króna auka­í­búð í Skugga­hverf­inu.

Kvarta undan tapi og kaupa 150 milljóna króna aukaíbúð
Björn Leifsson Hefur kvartað sáran undan fjár­hags­legum afleið­ingum sótt­varna­að­gerða. Mynd: Haraldur Jónasson / Hari

Athafna­mað­ur­inn Björn Leifsson, eig­andi lík­ams­rækta­stöðv­anna World Class, hefur ítrekað lýst óánægju sinni með lok­anir á lík­ams­rækt­ar­stöðvum í sótt­varna­skyni vegna covid-19 far­ald­urs­ins. Björn segir tekju­fall World class nema rúmum millj­arði króna á árinu 2020 og segir lok­an­irnar „algjör­lega út í hött“ og „tóm hel­vítis þvæla“.

Eig­in­kona Björns og með­eig­andi að World class, Hafdís Jóns­dóttir, sem á 36,6% hlut, eins og Björn, í félag­inu Laugar ehf, hefur nú fest kaup á 150 millj­óna króna penthouse-íbúð í Skugga­hverf­inu í mið­borg Reykja­víkur, sam­kvæmt fréttum Smartlands­ins á mbl.is. Þar segir jafn­framt að hjónin séu sjálf búsett í Foss­vog­inum.

Skugga­hverfiðÍ íbúð­inni er útsýni yfir Faxaflóa og Esjuna, segir í Smartland­inu á mbl.is.

Kaupin gengu í gegn 2. októ­ber síð­ast­lið­inn, degi áður en lík­ams­rækt­ar­stöðvum var lokað. Greiddar voru út 75 millj­ónir króna vegna eign­ar­innar en aðrar 75 millj­ónir króna fengnar að láni hjá Lands­bank­anum.

Vildi endurgreiðslu taps frá fjármálaráðherra

Daginn eftir kaupin kvart­aði Björn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár