Árið sem ekki mátti faðmast

Mynd­list­ar­upp­gjör Hill­billy við árið 2020 er við­tal við Jónu Hlíf um verkið hennar, Annáll – Tvö­þús­undog­tutt­ugu – Ár hjart­ans. Þegar ekki mátti faðm­ast. Skýr orðin fengu Hill­billy til að staldra við og árið leið fyrir augum hennar. Verkið er bæði alvar­legt og húmor­ískt og vekur um leið spurn­ingar.

Árið sem ekki mátti faðmast

Hill­billy gekk upp um það bil 1.000 tröppur til að kom­ast á vinnu­stofu  Jónu Hlífar mynd­list­ar­manns. Það var þess virði. Jóna Hlíf er vel að sér í öllu sem við kemur lista­sen­unni á Íslandi og hefur einnig sinnt hags­muna­málum mynd­list­ar­manna í áraraðir. 

„Ég er svo­lít­ill faðm­ari,“ segir Jóna Hlíf þegar hún byrjar að útskýra verkið Annáll sem er graf­íkverk, prentað með dúkristu, „að faðma góðan vin, á því er hægt að lifa í nokkra daga“. Jónu Hlíf seg­ist hafa þótt erfitt að fá ekki að faðma þetta árið og hræð­ist að ástandið eigi eftir að hafa áhrif á faðm­lagið, „ég er hrædd um að fólk eigi eftir að snert­ast minna“. Hill­billy deilir þess­ari hræðslu og hugsar að kannski verði ekki jafn nátt­úru­legt að fall­ast í faðma eins og var. „Svo á ég vini sem eru bara ánægðir með að loks­ins sé ekki alltaf verið að faðma þá, loks­ins skilur þá …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár