Fyrrum dómsmálaráðherra fer fyrir hópi sem gagnrýnir aðgerðir stjórnvalda gegn Covid

Sigríður Á. Andersen, fyrrum dóms­mála­ráð­herra, stendur á bak­við hóp­inn Út úr kóf­inu. Hópurinn lýsir yfir gagn­rýni sinni á aðgerðir stjórn­valda varð­andi Covid-19 á nýrri vef­síðu

Fyrrum dómsmálaráðherra fer fyrir hópi sem gagnrýnir aðgerðir stjórnvalda gegn Covid

„Til­raunir til að takast á við og ráða nið­ur­lögum kór­óna­veiru­far­ald­urs­ins á Íslandi hafa þegar skapað ástand sem valdið getur ómældu tjóni á lífi, heilsu og afkomu fólks og gæti varað árum saman. Yngri kyn­slóðir, tekju­lágir og jað­ar­settir hópar sam­fé­lags­ins verða verst úti. Umræður um ástandið og afleið­ingar þess hafa mætt mik­illi and­stöðu og vanga­veltur um skyn­sam­legar, skaða­minni og árang­urs­rík­ari leiðir til að mæta ástand­inu hafa verið kveðnar niður. Þessu á eng­inn að venj­ast í opnu lýð­ræð­is­ríki – þessi umræða verður að fara fram fyrir opnum tjöldum.“

Svona hefst kynn­ing á hópnum Út úr kóf­inu en í dag var sett á stofn vef­síða til að halda utan um starf­semi hans. „Við erum hópur fólks úr ýmsum geirum sam­fé­lags­ins og viljum leggja okkar af mörkum til að bæta upp­lýs­inga­gjöf um kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn, afleið­ingar og aðgerðir ásamt því að færa skoð­ana­skipti upp á yfir­borðið og móta til­lögur að leiðum út úr þessu ástandi.“ segir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár