Eignarhaldsfélag barna Kristjáns keypti nær 30 milljarða hlut í Samherja af föður sínum

Eign­ar­halds­fé­lagið Anders ehf. verður næst­stærsti hlut­hafi Samherja eftir umfangs­mestu við­skipti íslenskrar útgerð­ar­sögu þegar 84.5 pró­sent hlutur í útgerð­inni skipti um hendur fyrir um 60 millj­arða króna. Anders ehf. er í eigu fjög­urra barna Krist­jáns Vil­helms­sonar.

Eignarhaldsfélag barna Kristjáns keypti nær 30 milljarða hlut í Samherja af föður sínum
Nota eign­ar­halds­fé­lag en fjár­mögn­unin óljós Börn Krist­jáns Vil­helms­sonar útgerð­ar­manns kaupa hluta­bréfin af föður sínum í gegnum eign­ar­halds­fé­lagið Anders. Fjár­mögnun bréf­anna er hins vegar óljós. Mynd: Auðunn Níelsson

Fjögur börn Krist­jáns Vil­helms­sonar keyptu nærri 30 millj­arða króna eign­ar­hlut í Samherja af föður sínum í gegnum eign­ar­halds­fé­lagið Anders ehf. fyrr á þessu ári. Kristján hefur í gegnum árin haldið utan um stærstan hluta af hluta­bréfa­eign sinni í Samherja, langstærsta útgerð­ar­fé­lagi lands­ins með til­liti til starf­semi innan og utan Íslands, á sinni eigin kenni­tölu en ekki í gegnum eign­ar­halds­fé­lag eins og til dæmis Þor­steinn Már Bald­vins­son hefur gert. Börn hans fjögur munu hins vegar halda utan um hluta­bréfa­eign sína til fram­tíðar í umræddu eign­ar­halds­fé­lagi. 

Um er að ræða stærstu við­skipti, í pen­ingum talið, með hluta­bréf í íslensku útgerð­ar­fé­lagi í Íslands­sög­unni enda er Samherji langstærsta útgerð­ar­fé­lag sem verið hefur til hér á landi.  Samtals var um að ræða við­skipti með 86,5 pró­senta hlut í Samherja. Kaup­verðið í við­skipt­unum, bæði hlutir barna Krist­jáns og Þor­steins Más, er rúm­lega 60 millj­arðar króna, ef það er sann­ar­lega þannig að öll hluta­bréfin í við­skipt­unum hafi verið seld til barn­anna og eng­inn hluti þeirra verið arfur. 

Börn Þorsteins komu inn í fyrra

Anders ehf. skil­aði árs­reikn­ingi fyrir árið 2019 til árs­reikn­inga­skrár Rík­is­skatt­stjóra í lok sept­em­ber síð­ast­liðin og er minnst á kaup félags­ins á hluta­bréf­unum í Samherja í honum. Orðrétt segir þar: „Á árinu 2020 keypti félagið eign­ar­hlut í Samherja hf.“

„Á árinu 2020 keypti félagið eign­ar­hlut í Samherja hf“

Eigendur félags­ins eru Kristján Bjarni Krist­jáns­son, Katrín Krist­jáns­dóttir, Halldór Örn Krist­jáns­son og Dagný Linda Krist­jáns­dóttir.  Um er að ræða 41,5 pró­senta hlut í Samherja sem börn Krist­jáns eign­ast. 

Þetta er frá­brugðið við­skiptum barna Þor­steins Más með hluta­bréf í Samherja en þau keyptu bréf föður síns og móður í fyrra. Óljóst er af hverju börn Þor­steins eign­uð­ust bréfin í Samherja í fyrra en börn Krist­jáns í ár. 

Fram að þessum við­skiptum hafði Anders ekki verið mjög umsvifa­mikið félag. Anders hefur verið fjár­magnað með rúm­lega 100 millj­óna króna láni frá hlut­höfum félags­ins og hefur helsta eign félags­ins verið hlutur í fast­eigna­fé­lag­inu Heima­völlum sem bók­færður var á 90 millj­ónir í árs­loks 2019. Eigið fé félags­ins - eignir mínus skuldir - var nei­kvætt um rúm­lega 11 millj­ónir króna í lok árs­ins.

Ljóst er því að félagið hefur sjálft ekki haft bol­magn til að taka þátt í millj­arða fjár­fest­ingum með bréf í Samherja, að öllu óbreyttu. 

Óljóst með fjármögnun en börn Þorsteins fá lán

Þegar greint var því að börn þeirra Þor­steins og Krist­jáns væru að eign­ast nær öll hluta­bréf þeirra í Samherja síð­ast­lið vor þá var ekki sagt frá því hvernig við­skiptin væru fjár­mögnuð, hversu mikið af bréf­unum hefðu skipt um hendur með kaupum á þeim eða hvort, og þá hversu mikið, af þeim hefðu skipt um hendur sem arfur. 

Stundin greindi frá því í gær að eign­ar­halds­fé­lag barna Þor­steins Más Bald­vins­sonar, Baldvins og Kötlu Þor­steins­barna, hefði fengið selj­enda­lán frá eign­ar­halds­fé­lagi föður síns og móður, Helgu S. Guð­munds­dóttur, til að kaupa hluta­bréfin af þeim. Um var að ræða 29 millj­arða króna lang­tíma­lán sem greið­ist til baka á 25 árum með ríf­lega eins millj­arðs króna afborgun á ári.  Félag Baldvins og Kötlu heitir K&B ehf.

Með því að selja bréfin með þessum hætti, sem er full­kom­lega lög­mætt og stenst skoðun skatta­lega sam­kvæmt sér­fræð­ingi sem Stundin ræddi við, mynd­ast ekki skylda til að greiða erfða­fjár­skatt upp á 10 pró­sent af eign­unum líkt og gerst hefði ef börnin hefðu fengið eign­irnar í arf. 

Ekki liggur fyrir að eign­ar­halds­fé­lag barna Krist­jáns hafi gert sam­bæri­legan samn­ing um fjár­mögnun við­skipt­anna við föður þeirra. Munurinn á Krist­jáni og Þor­steini Má er hins vegar sá, lík­legt og áður verið tæpt á, að Kristján hefur alltaf haldið per­sónu­lega á hluta­bréfum sínum í Samherja, á sinni eigin kenni­tölu, á meðan Þor­steinn Már hefur not­ast við eign­ar­halds­fé­lag. Því er það svo í til­felli Þor­steins Más að það er eign­ar­halds­fé­lag hans sem lánar félagi barna hans fyrir bréf­unum í Samherja á meðan það hlýtur að vera Kristján sjálfur sem er lán­veit­andi barna sinna í við­skipt­unum ef hann hefur lánað þeim fyrir Sam­herja­bréf­unum með sams konar hætti og Þor­steinn Már hefur gert. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár