Gjafakvóti Samherja afhentur nýrri kynslóð án skattlagningar

Sá kvóti sem Samherji hefur fengið afhentan frá íslenska rík­inu skiptir um hendur án þess að vera skatt­lagður. Um er að ræða stærstu og verð­mæt­ustu eig­enda­skipti á hluta­bréfum í íslenskri útgerð­ar­sögu. Verðmæti eigna Samherja er van­á­ætlað um 50 millj­arða króna vegna kvóta sem ekki er eign­færður.

Gjafakvóti Samherja afhentur nýrri kynslóð án skattlagningar
Sá eini sem vinnur hjá Samherja Baldvin Þor­steins­son, sonur Þor­steins Más Bald­vins­sonar, er sá eini af börn­unum sex sem vinnur sem stjórn­andi hjá Samherja. Hann hefur lengi verið nefndur sem sá sem eigi að taka við for­stjóra­starf­inu þegar faðir hans hættir á end­anum. Mynd: Fréttablaðið

Í lok febr­úar á þessu ári barst fyr­ir­tækja­skrá rík­is­skatt­stjóra til­kynn­ing um að 100 millj­óna króna hlutafé í nýju eign­ar­halds­fé­lagi barna Þor­steins Más Bald­vins­sonar, for­stjóra og aðal­eig­anda Samherja, hefði verið greitt með reiðufé. Þetta eign­ar­halds­fé­lag, sem er í eigu þeirra Baldvins og Kötlu Þor­steins­barna og heitir eftir þeim, K&B ehf., mun að öllum lík­indum eign­ast hluta­bréf fyr­ir­tækis for­eldra sinna í Samherja. Samtals er um að ræða 43 pró­senta hlut í Samherja sem er að minnsta kosti tæp­lega 50 millj­arða króna virði.

Eins og greint hefur verið frá í fjöl­miðlum hafa stærstu eig­endur Samherja, Þor­steinn Már Bald­vins­son og Kristján Vil­helms­son, ákveðið að börnin þeirra muni nú eign­ast hluta­bréf þeirra í Samherja hf. 

Á bak við þessi hluta­bréf eru eignir eins og fast­eignir, skip og síð­ast en ekki síst afla­heim­ildir, kvóti Samherja og hlut­deild í hluta­bréfum ann­arra …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár