Ástandið í Bandaríkjunum: Óttast reiða Repúblikana sem mótmæla með byssur

Íslend­ingur sem býr og sækir nám í Banda­ríkj­unum seg­ist upp­lifa mikla spennu í loft­inu varð­andi úrslit for­seta­kosn­ing­anna þar í landi. Fylg­is­menn fram­bjóð­and­anna tveggja eru að hans sögn heitt í hamsi sem gæti leitt til frek­ari mót­mæla eða í versta falli óeirða.

Ástandið í Bandaríkjunum: Óttast reiða Repúblikana sem mótmæla með byssur
Trausti Þór Fær ráð­legg­ingar um að halda sig inn­an­dyra meðan skorið er úr um úrslit banda­rísku for­seta­kosn­ing­anna.

Trausti Þór Þor­steins er tutt­ugu og tveggja ára kvik­mynda­fræði­nemi við Wagner Háskóla í New York borg.  Þar hefur hann búið síð­ast­liðin tvö og hálft ár og á þeim tíma fylgst með því hvernig skoð­anir Repúblik­ana hafa tekið á sig öfga­fyllri mynd.

Nú þegar úrslit for­seta­kosn­inga þar í landi fær­ast nær því að liggja end­an­lega fyrir, hefur að sögn Trausta mynd­ast mikil spenna í loft­inu sem hann telur að gæti endað í óeirðum.

Mikil togstreita

Trausti býr sjálfur á Staten Island, einu af fimm umdæmum New York borgar. „Staten Island er skrýtið umdæmi hvað það varðar hversu hægri sinnað það er. Hér kjósa flestir Repúblik­ana ólíkt því sem á við í hinum umdæmum borg­ar­innar,“ segir hann.

Þá finnur hann mik­inn mun á skoð­unum fólks þar sem hann sækir skóla í mið­borg Man­hattan og hverf­is­ins sem hann býr í. „Í skól­anum mínum er að finna ungt fólk sem hefur mjög opinn huga en svo þar sem ég bý er að finna fólk sem er mjög ánægt með Trump og vill þar með að hann nái end­ur­kjöri,“ segir hann. 

Hann finnur því fyrir mik­illi tog­streitu í kring um sig og lýsir því sem svo að fólk sé í stöðugri bar­áttu við hvort annað á grund­velli skoð­ana sinna á fram­bjóð­end­unum tveimur. „Það sem ég finn fyrir er líka að skoð­anir fólks eru sífellt að fær­ast fjær miðju og í átt að önd­verðum pólum. Fólk gat áður fyrr falið skoð­anir sínar en nú eru þær uppi á borðum og mjög háværar.“ 

Áhyggjur af óeirðum

Vegna þess hve hávær Trump er með sínar skoð­anir segir Trausti að fylg­is­menn hans hækki sína rödd sam­hliða. Að mati Trausta gerir það að verkum að þeir sem styðji fram­bjóð­anda Demókrata, Joe Biden, þurfi einnig að ger­ast hávær­ari og sýna frek­ari and­stöðu.

„Ef Biden vinnur munu fylg­is­menn Trump verða brjál­aðir og ef Trump vinnur verða fylg­is­menn Biden æfir.“ 

Trausti hefur miklar áhyggjur af því að fylg­is­menn Trump fari eftir því sem for­set­inn segir og stofni til mót­mæla eða óeirða, til að mynda í ljósi þess hve hávær hann hefur verið um að kosn­inga­svindl sé að eiga sér stað af hendi Demókrata, Trump í óhag. „Ég hef á til­finn­ing­unni og hef heyrt í kringum mig að fólk sé að búast við því versta. Það er mjög óljóst hvernig næstu dagar verða,“ segir hann.

„Það er eig­in­lega sama hvernig úrslitin verða, ef Biden vinnur munu fylg­is­menn Trump verða brjál­aðir og ef Trump vinnur verða fylg­is­menn Biden æfir. Síðan ég flutti hingað fyrir tveimur og hálfu ári síðan hafa skoð­anir sífellt orðið öfga­fyllri, sér­stak­lega á hægri vængnum, eins og sést með skipan Amy Coney Barett sem hæsta­rétta­dóm­ara. Þá finnst þeim sem eru hinum megin við borðið, sér­stak­lega fólki í minni­hluta­hópum, að verið sé að ganga á rétt­indi þeirra og finnst jafn­vel að líf þeirra sé undir og berj­ast því auð­vitað á móti.“

Stuð­ings­menn TrumpLáta til sín taka í Miami í Flórída, þar sem Trump vann.
Stuðn­ings­menn BidensJoe Biden nýtur mun meira fylgis meðal þeldökkra Banda­ríkja­manna en Donald Trump.

Byssur á mótmælum

Nú þegar er fólk farið út á götur stór­borga að mót­mæla, þótt end­an­legar nið­ur­stöður hafi ekki legið fyrir. Í því sam­hengi seg­ist hann hræð­ast Repúblik­ana, en að hans sögn eru þeir þekktir fyrir að mæta á mót­mæli með byssur sér í hönd. „Þeir mæta og nýta, að þeirra mati, sín rétt­indi að ganga um með byssur og guð má vita hvernig það fer. Af því að það er svo mikil byssu­menn­ing í þessu landi þá veit maður aldrei hvað getur skeð.“

Trausta og öðrum í kringum hann hafi þess vegna verið ráð­lagt að halda sig inn­an­dyra og huga að öryggi sínu á meðan þessu stendur yfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar í BNA 2020

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
3
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár