Íslendingar versla meira þrátt fyrir nýja bylgju faraldursins

Verslun rauk upp í sept­em­ber­mán­uði miðað við sama mánuð í fyrra. Íslend­ingar kaupa raf- og heim­il­is­tæki, áfengi og bygg­inga­vörur í auknum mæli.

Íslendingar versla meira þrátt fyrir nýja bylgju faraldursins
Innkaup Íslend­ingar kaupa meira þrátt fyrir far­ald­ur­inn. Mynd: Shutterstock

Verslun með raf- og heim­il­is­tæki hefur auk­ist um meira en helm­ing frá því í fyrra. Þrátt fyrir þriðju bylgju COVID-19 far­ald­urs­ins jókst verslun um 26,3 pró­sent milli ára í sept­em­ber­mán­uði.

Þetta eru nið­ur­stöður Rann­sókn­ar­set­urs versl­un­ar­innar. „Líkt og í fyrstu bylgju far­sótt­ar­innar jókst inn­lend verslun tölu­vert þegar veiran lét á sér kræla á ný. Á sama tíma og verslun eykst minnkar bæði neysla á þjón­ustu og neysla erlendis,“ segir í til­kynn­ingu frá setr­inu.

Velta í verslun sept­em­ber­mán­aðar nam 39,2 millj­örðum króna, en heild­ar­korta­velta var 68,5 millj­arðar í mán­uð­inum og jókst um 9 pró­sent á milli ára. Kaup á elds­neyti dróg­ust saman um 9 pró­sent og kaup á veit­ingum um 1 pró­sent, en að öðru leyti jókst verslun umtals­vert á milli ára.

Velta í stór­mörk­uðum og dag­vöru­versl­unum jókst um 21 pró­sent á milli ára. „Aukin heima­vinna auk sótt­kvíar á vafa­laust þátt í aukn­ingu dag­vöru­versl­unar með greiðslu­kortum,“ segir í til­kynn­ing­unni. „Á móti má ætla að umsvif mötu­neyta vinnu­staða sem dæmi hafi dreg­ist saman.“

Fata­verslun jókst um 36 pró­sent á milli ára, en í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins í vor mátti sjá tölu­verðan sam­drátt í fata­verslun, ólíkt því sem var í síð­asta mán­uði. Veruleg veltu­aukn­ing var í versl­unum með bygg­inga­vörur og versl­unum með raf- og heim­il­is­tæki. Í fyrr­nefnda flokknum jókst veltan um 45 pró­sent milli ára og nam 3,3 millj­örðum kr. Í þeim síð­ar­nefnda nam veltan alls 2,6 millj­örðum og jókst um tæp 54 pró­sent milli ára. Þá jókst verslun með áfengi um 45,8 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár