Fílar allt frá klassík yfir í rapp

Tón­listin hefur alla tíð verið alls staðar í kringum Sigrúnu Helgu Geirs­dóttur.

Fílar allt frá klassík yfir í rapp
Elskar söng­leiki Sigrún Helga stundar nám í klass­ískum söng og fiðlu­leik en hún er líka mik­ill aðdá­andi söng­leikja. Mynd: Heiða Helgadóttir

Allt mitt líf snýst um músík, bæði nú og hefur gert alla tíð. Ég er því sem næst alæta á tón­list, ég fíla held ég bara næstum allar tón­list­ar­stefnur, hvort sem það er klass­ísk tón­list eða rapp og bara allt þar á milli.

Öll fjöl­skyldan mín er í tón­list og hefur alltaf verið og ætli megi ekki segja að ég hafi fengið áhug­ann bara með móð­ur­mjólk­inni. For­eldrar mínir syngja báðir í kór, amma mín líka og stór­fjöl­skyldan er meira og minna í músík, alls konar músík, allt frá klassík og yfir í rapp.

Ég er sjálf  í Mennta­skól­anum í tón­list, að læra klass­ískan söng og klass­íska fiðlu. Ég hef æft á fiðlu frá því ég var átta ára gömul og hef verið syngj­andi síðan ég var fjög­urra ára. Á fiðl­una lærði ég fyrst í Tón­mennta­skóla Reykja­víkur, áður en ég fór í Mennta­skól­ann í tón­list, þaðan sem ég klára nám í vor. Ég hef svo sungið í stúlkna­kór Reykja­víkur frá því ég var fjög­urra ára.

Ég stefni á að fara út að læra meira. Mig langar til að fara út að læra klass­ískan söng en ég gæti líka vel hugsað mér að læra söng­leikja­fræði, ég hef ofsa­legan áhuga á þeim. Þeir gleðja og létta lund­ina, eins og tón­list gerir yfir­leitt. Það er nú ekki lítið mik­il­vægt á tímum sem þessum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár