Segir sig úr Vinstri grænum

„Ég finn end­an­lega að ég á ekki lengur sam­leið með þing­flokki VG,“ segir Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, frá­far­andi þing­maður Vinstri grænna, sem hefur sagt sig úr flokknum eftir fund með Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra.

Segir sig úr Vinstri grænum
Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir Studdi ekki rík­is­stjórn­ar­sam­starfið. Mynd: Davíð Þór

„Það er ekki hægt annað en að taka afstöðu með mann­úð­inni,“ segir Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, sem til­kynnti Katrínu Jak­obs­dóttur, for­sæt­is­ráð­herra og for­manni Vinstri grænna, um úrsögn sína úr flokknum á fundi með henni í dag. Ástæðan er það sem Rósa Björk nefnir í yfir­lýs­ingu sinni ósam­ræmi á milli boð­aðrar stefnu Vinstri grænna í inn­flytj­enda­málum fyrir og eftir kosn­ingar. 

Lög­reglan leitar nú fjög­urra barna fjöl­skyldu sem vísa á úr landi, eftir tæp­lega tveggja ára búsetu hér­lendis, þrátt fyrir að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hafi sagt með­ferð­ina „ómann­úð­lega“. Rósa Björk, sem er vara­for­maður flótta­manna­nefndar Evr­ópu­ráðs­þings­ins, segir þetta og fleira „bera vitni um afstöðu sem er langt frá því sem afstaða VG í þessum mála­flokki hefur verið hingað til og langt frá því sem við bárum fram bæði í stjórn­ar­and­stöðu og fyrir kosn­ingar“. 

„Þetta mál er samt þess eðlis að það er ekki hægt annað en að taka afstöðu með mann­úð­inni, með rétt­indum barna á flótta sem hér hafa fest rætur og myndað tengsl. Og taka afstöðu gegn því að íslensk yfir­völd vísi á brott börnum og barna­fjöl­skyldum. Á þeim þremur árum sem VG hefur setið í rík­is­stjórn hefur lítið sem ekk­ert miðað í átt að móta hér nýja stefnu í mál­efnum inn­flytj­enda og hæl­is­leit­enda eða að fylgja mann­úð­ar­sjón­ar­miðum í mála­flokknum, sem er þó það sem rík­is­stjórnin lof­aði,“ segir Rósa Björk enn fremur.

Ómannúðleg meðferð flóttafólks

Aðdrag­andi úrsagn­ar­innar er með­höndlun rík­is­stjórn­ar­innar á mál­efnum fjöl­skyldu frá Egypta­landi, sem hefur búið á Íslandi í hátt í tvö ár, en var ákveðið að synja um hæli og flytja úr landi. Nú er leitað fjöl­skyld­unnar. Katrín Jak­obs­dóttir hafði lýst því yfir að brott­flutn­ing­ur­inn væri ómann­úð­legur.

„Það er ekki mann­úð­legt að halda fólki svona lengi í ó­vissu, sér­stak­lega í börnum. Í þessu til­viki sem um ræðir, þó að máls­með­ferðar­tím­inn sé innan marka, þá erum við samt, af ein­hverjum á­stæðum, sem mér finnst auð­vitað ekki boð­legt, með þetta fólk hér í raun og veru í allt of langan tíma sem er ó­mann­úð­legt,“ sagði Katrín í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni.

Rósa Björk var ein tveggja þing­manna VG sem ekki studdu stjórn­ar­sátt­mála og rík­is­stjórn­ar­sam­starf Vinstri grænna með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki. Nú þegar ár er til kosn­inga er hún því utan flokka, eins og hinn þing­mað­ur­inn, Andrés Ingi Jónsson, sem sagði sig úr þing­flokknum í nóv­em­ber í fyrra. Andrés gagn­rýndi í grein í gær að Vinstri grænir hefðu tekið upp stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins í mál­efnum flótta­manna. „Síðustu daga hefur berg­málað um allt stjórn­ar­heim­ilið að mann­úð­leg­asta kerfið fyrir hæl­is­leit­endur sé að vera bara nógu fljót að synja þeim. Stjórn­ar­flokk­arnir eru í því allir orðnir samdauna Sjálf­stæð­is­flokknum,“ skrif­aði hann.

Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur var kveðið á um „mann­úð­ar­sjón­ar­mið“ og „góða og skil­virka með­höndlun umsókna um alþjóð­lega vernd“.

Börnin úr Khedr-fjöl­skyld­unni hafa búið hér­lendis í tæp tvö ár, gengið í skóla og tala íslensku.

Yfirlýsing Rósu Bjarkar í heild

„Ég hef átt fund í dag með Katrínu Jak­obs­dóttur, for­manni VG, og til­kynnt henni um úrsögn mína úr þing­flokki Vinstri hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs og úr hreyf­ing­unni.  

Nýlegir atburðir er varða brott­vísun stjórn­valda á barna­fjöl­skyldu sem hefur beðið eftir lausn sinna mála í 25 mán­uði og við­brögð rík­is­stjórnar sem VG er í for­ystu fyrir í því máli, urðu til þess að ég finn end­an­lega að ég á ekki lengur sam­leið með þing­flokki VG. 

Þetta er alls ekki auð­veld ákvörðun, sér í lagi gagn­vart kjós­endum VG og félögum VG í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Ég þakka þeim kær­lega fyrir stuðn­ing­inn, traustið og sam­fylgd­ina síð­ast­liðin ár og von­ast eftir því að þau sýni ákvörðun minni skiln­ing. 

Ég mun þrátt fyrir þetta halda áfram að vinna af krafti og ein­urð að góðum málum á Alþingi, sér­stak­lega er varða mann­rétt­indi, umhverfis- og lofts­lags­mál, kynja­jafn­rétti og fleiri góðum málum.

Þetta mál er samt þess eðlis að það er ekki hægt annað en að taka afstöðu með mann­úð­inni, með rétt­indum barna á flótta sem hér hafa fest rætur og myndað tengsl. Og taka afstöðu gegn því að íslensk yfir­völd vísi á brott börnum og barna­fjöl­skyldum. Á þeim þremur árum sem VG hefur setið í rík­is­stjórn hefur lítið sem ekk­ert miðað í átt að móta hér nýja stefnu í mál­efnum inn­flytj­enda og hæl­is­leit­enda eða að fylgja mann­úð­ar­sjón­ar­miðum í mála­flokknum, sem er þó það sem rík­is­stjórnin lof­aði. Það er mjög miður. 

Sem vara­for­maður flótta­manna­nefndar Evr­ópu­ráðs­þings­ins hef ég feng­ist mikið við mál­efni fólks á flótta og sér­stak­lega mála sem varða barna á flótta sem ég hef unnið ötul­lega að. Í því ljósi finnst mér þessi stefnu­breyt­ing og aðgerða­leysi rík­is­stjórn­ar­innar sér­stak­lega dap­ur­leg og bera vitni um afstöðu sem er langt frá því sem afstaða VG í þessum mála­flokki hefur verið hingað til og langt frá því sem við bárum fram bæði í stjórn­ar­and­stöðu og fyrir kosn­ingar. 

Ég óska fyrrum félögum mínum í VG góðs gengis. 

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár