„Rannsóknarlögreglumaður Samherja“ álitsgjafi í þætti útgerðarinnar um Helga Seljan

Samherji kynnir fyrsta þátt vefseríu með við­mæl­anda sem kom að Namib­íu­starf­semi félags­ins þar sem ásak­anir á hendur RÚV og Seðla­bank­anum virð­ast við­fangs­efnið. Fyr­ir­tækið hefur áður keypt ein­hliða umfjöllun um málið sem sjón­varps­stöðin Hring­braut var sektuð fyrir.

„Rannsóknarlögreglumaður Samherja“ álitsgjafi í þætti útgerðarinnar um Helga Seljan
Úr stiklu Samherja Helgi Seljan og sjón­varps­þátt­ur­inn Kveikur fjöll­uðu um mútu­greiðslur í tengslum við Namib­íu­veiðar Samherja ásamt Stund­inni, Al Jazeera og Wikileaks í nóv­em­ber í fyrra.

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Samherji boðar þætti þar sem Helgi Seljan, frétta­maður RÚV, og Seðla­bank­inn virð­ast vera til umfjöll­unar. Fjöldi manns hefur verið feng­inn til liðs við Samherja á síð­asta ári til að sinna fjöl­miðlaum­fjöllun og krísu­stjórnun.  

Fyr­ir­tækið hefur áður orðið upp­víst um óheim­ila kostun á frétta­tengdu efni og ein­hliða umfjöllun um Seðla­bank­ann og RÚV.

Samherji birti stiklu um þætt­ina á YouTube í dag. Kveikur, Stundin, Al Jazeera og Wikileaks fjöll­uðu í nóv­em­ber í fyrra um mútu­greiðslur Samherja til að kom­ast yfir hesta­makríl­skvóta í Namibíu. Síðan þá hefur fyr­ir­tækið leitað fanga víða til að mæta nei­kvæðri fjöl­miðlaum­fjöllun. Norska lög­manns­stofan Wikborg Rein var ráðin til að fram­kvæma rann­sókn á starf­sem­inni í Namibíu og skil­aði nið­ur­stöðum til Samherja nýverið, sem hafa ekki verið gerðar opin­berar.

Eftir að Samherja varð ljóst um yfir­vof­andi umfjöllun réð fyr­ir­tækið Håkon Borud, fyrr­ver­andi frétta­stjóra Aften­posten og með­eig­anda ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­is­ins First House, til að sinna krísu­stjórnun. Þá réð fyr­ir­tækið lög­mann­inn og frétta­mann­inn fyrr­ver­andi, Þorbjörn Þórð­ar­son, til ráð­gjafar. Hann stofn­aði lög­manns­stof­una LPR í fyrra eftir að hann lauk störfum á Stöð 2, en sam­kvæmt heima­síðu LPS sinnir hún lög­mennsku og almanna­tengslum. 

Í stiklunni sem Samherji birti í dag er spilað sam­tal sem sagt er vera leyni­upp­taka af Helga Seljan. Óljóst er hvað Helgi er að tala um á upp­tök­unni og við hvern, en sam­kvæmt sam­heng­inu við myndefnið virð­ist vera að því stefnt að ítreka full­yrð­ingar Þor­steins Más Bald­vins­sonar, for­stjóra Samherja, þess efnis að RÚV hafi verið ger­andi í hús­leit sem Seðla­bank­inn fram­kvæmdi hjá fyr­ir­tæk­inu árið 2012 vegna gruns um brot á gjald­eyr­is­lögum.

Hæsti­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu 2018 að Seðla­bank­anum hefði ekki verið heim­ilt að leggja stjórn­valds­sekt á Samherja vegna brota á gjald­eyr­is­lögum sem Seðla­bank­inn sak­aði Samherja um. Samherji hefur krafið Seðla­bank­ann um bætur vegna hús­leit­ar­innar og mála­rekst­urs­ins og hefur Þor­steinn Már rætt þær ítrekað í fjöl­miðlum.

„Rannsóknarlögreglumaður Samherja“ í viðtali

Í stiklunni er einnig til við­tals Jón Óttar Ólafsson, sem kynntur er sem afbrota­fræð­ingur og fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­maður. For­svars­menn Samherja hafa haldið því fram að Jón Óttar, sem ráð­inn var til fyr­ir­tæk­is­ins árið 2014, hafi verið sendur til Namibíu tveimur árum síðar til að taka starf­sem­ina í gegn

Hann var þvert á móti í innsta hring Namib­íu­veið­anna og starf­aði með Jóhann­esi Stef­áns­syni, sem síðar gerð­ist upp­ljóstr­ari, að verk­efnum þar sem kvóti hafði feng­ist frá namibískum yfir­völdum með mútu­greiðslum. Jón Óttar sat fundi með namibískum mútu­þegum Samherja og fékk afrit af tölvu­póstum þar sem rætt var um greiðslur í skatta­skjól. 

„Hvaðan koma þessar ásak­anir?“ spyr Jón Óttar í mynd­band­inu. „Hvernig getur þetta átt sér stað?“

Í lokin eru áhorf­endur beðnir um að fylgj­ast með á morgun, þegar fyrsti þáttur kemur út. Lokað er fyrir athuga­semdir við mynd­bandið.

Sat fundi með mútuþegunum

Sam­herj­a­skjölin sýna glöggt að Jón Óttar var hátt settur starfs­maður við Namib­íu­út­gerð Samherja. Í maí árið 2016 snæddi hann til dæmis með Bern­hardt Esau, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, um borð í tog­ara Samherja, Heinaste. Esau sætir nú ákæru í Namibíu vegna aðildar sinnar að mál­inu.

Með sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­anumJón Óttar, lengst til vinstri, og Bern­hardt Esau sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, við hlið hans, hitt­ust árið 2016 ásamt Atla Þór Ragn­ars­syni og Jóhann­esi Stef­áns­syni.

Jón Óttar sat meðal ann­ars fund um starf­sem­ina með Þor­steini Má Bald­vins­syni, for­stjóra Samherja, Baldvini syni hans, Aðal­steini Helga­syni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Kötlu Seafood, Örnu Bryndísi Baldvins McClure, yfir­lög­fræð­ingi Samherja, og Jóhann­esi Stef­áns­syni, sem stýrði Namib­íu­starf­sem­inni en ljóstr­aði síðar upp um mútu­greiðsl­urnar.

Fund­ur­inn var hald­inn 11. apríl 2016 og hann sóttu einnig namibísku þre­menn­ing­arnir James og Tamson Hatukulipi og Sacky Shangala, sem allir hafa þegið mútur frá fyr­ir­tæk­inu til að greiða aðgang að fisk­veiði­kvóta. Samkvæmt fund­ar­gerð var rætt um starf­sem­ina í Namibíu, yfir­vof­andi leið­toga­kjör í SWAPO flokknum í Namibíu sem þeir eru allir með­limir í og vænt­an­legar þing­kosn­ingar í lok árs 2019. Einnig var talað um verk­efni í Angóla og Suður-Afríku.

Þre­menn­ing­arnir komu til Íslands á árs­há­tíð Samherja sem haldin var í Íþrótta­höll­inni á Akureyri tveimur dögum áður, þann 9. apríl, og greiddi Samherji fyrir þá flug og hótel í tengslum við kom­una á árs­há­tíð­ina.

Í skjali til und­ir­bún­ings fyrir fund­inn með þre­menn­ing­unum er fjallað um sýn þeirra á fram­tíð mála í Namibíu, en ekki skráð hvaða Íslend­ingar fengu það í sínar hendur.

„Þeir hafa lagt mikið í að koma okkur þangað sem við erum (breytt lögum og farið með það í gegnum þingið),“ segir í skjal­inu. „Þetta er að sjálf­sögðu póli­tískt. Það er margt búið að ger­ast á bak­við tjöldin. Við erum í dag með 3ja stærsta kvót­ann ekki af ástæðu­lausu [sic].“

 „Ef þeir fara óánægðir frá Íslandi þá er sam­starf­inu lokið“

Þá er lýst póli­tísku mik­il­vægi mann­anna, en James var stjórn­ar­for­maður rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Fishcor og Sacky var á þessum tíma rík­is­sak­sókn­ari, en síðar dóms­mála­ráð­herra Namibíu. „Þeir vilja vinna með okkur en tím­inn er á þrotum,“ segir enn­fremur. „Ef þeir fara óánægðir frá Íslandi þá er sam­starf­inu lokið og þá er betra að segja það strax.“

Eftir að Jóhannes hætti hjá fyr­ir­tæk­inu í júlí 2016 héldu mútu­greiðsl­urnar áfram. Síðustu milli­færsl­urnar sem heim­ildir eru fyrir eru frá 9. og 31. jan­úar 2019, en þá var Jóhannes búinn að setja sig í sam­band við Wikileaks út af Namib­íu­mál­inu með það fyrir augum að upp­lýsa um milli­færsl­urnar. 

Hafa áður greitt fyrir óheimilaða kostun umfjöllunar um málið

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Samherji fjallar um gjald­eyr­is­eft­ir­lit Seðla­bank­ans með þátta­gerð. Árið 2017 birti sjón­varps­stöðin Hring­braut þætt­ina Gjald­eyr­is­eft­ir­litið þar sem hið svo­kall­aða Aserta-mál var til umfjöll­unar. Tengdist það rann­sókn Seðla­bank­ans á meintum brotum á gjald­eyr­is­reglum, en fjallað var sér­stak­lega um hús­leit Seðla­bank­ans hjá Samherja og birti hljóð­brot af sam­tali Þor­steins Más Bald­vins­sonar, for­stjóra Samherja, og Más Guð­munds­sonar, þáver­andi seðla­banka­stjóra, sem virt­ist tekið upp án vit­undar þess síð­ar­nefnda

„Samherji kost­aði þann þátt að lang­mestu leyti,“ sagði Sigurður Kol­beins­son, fram­leið­andi þátt­ar­ins, í við­tali við Stundina um málið.

Fjöl­miðla­nefnd tók þetta mál og aðra dag­skrár­gerð Hring­brautar til umfjöll­unar og sektaði sjón­varps­stöð­ina um alls tvær millj­ónir króna í fjórum aðskildum ákvörð­unum.

„Um­fjöll­un í þátt­un­um Gjald­eyris­eft­ir­litið ein­kenn­ist að stærst­um hluta af ein­hliða gagn­rýni á rann­sókn og fram­kvæmd gjald­eyris­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands, án þess að sjón­ar­mið full­trúa bank­ans komi fram, nema í hljóð­brot­um af sam­tali seðla­banka­stjóra og for­stjóra Sam­herja hf., sem virð­ast tek­in upp án vit­und­ar seðla­banka­stjóra,“ sagði í ákvörðun fjöl­miðla­nefndar. „Er fram­an­greint til þess fallið að renna stoðum und­ir það að kost­andi þátt­anna, Sam­herji hf. hafi haft áhrif á inni­hald og efnis­tök hins kost­aða frétta­tengda efn­is og að um hafi verið að ræða ein­hliða um­fjöll­un sem ekki hafi verið í sam­ræmi við hlut­lægni­kröf­ur 26. gr. laga um fjöl­miðla,“ sagði í nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar. 

Nið­ur­staða nefnd­ar­innar var að Hring­braut hefði brotið gegn 26. gr. laga um fjöl­miðla, um lýð­ræð­is­legar grund­vall­ar­reglur, með því að gæta ekki að rétti við­mæl­anda til frið­helgi einka­lífs og að hlut­lægni og nákvæmni í hinu frétta­tengda efni. Var Hring­braut einnig gert að greiða stjórn­valds­sekt að upp­hæð 500.000 kr.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
6
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár