Leynda perlan: Gengið að verksmiðjurústum

Rústir stórrar síld­ar­verk­smiðju standa til móts við Siglu­fjarð­arbæ og segir Anita Elefsen, safn­stjóri Síld­arminja­safns Íslands, að þeir séu ekki margir ferða­menn­irnir sem hafa farið þangað.„Þarna er dásam­legt að setj­ast niður, njóta þess að staldra við og fá sér nesti.“

Leynda perlan: Gengið að verksmiðjurústum
Rústir síld­ar­verk­smiðj­unnar á Siglu­firði Anita Elefsen, safn­stjóri Síld­arminja­safns Íslands, sem er bor­inn og barn­fæddur Sigl­firð­ingur segir sög­una áþreif­an­lega við rúst­irnar.

Sumarið 1907 fengu norsku bræð­urnir Gustav og Olav Evanger lóð í landi Stað­ar­hóls, austan Siglu­fjarðar, þar sem ekki var lengur mikið pláss á Siglu­fjarð­ar­eyri fyrir umsvifa­mikla útgerð og síld­ar­söltun. Byggð var síld­ar­sölt­un­ar­stöð með fiski­húsi og bryggju og síðan var farið að und­ir­búa bygg­ingu stórrar og full­kom­innar síld­ar­verk­smiðju sem tók til starfa sum­arið 1911 og var hún ein sú fyrsta á land­inu. Bygg­ingin var á steyptum grunni, byggð úr timbri og þrí­lyft. Stein­steypt síld­ar­þró var fyrir framan bygg­ing­una og stóð hún í fjör­unni. Á milli 80 og 100 manns unnu í verk­smiðj­unni og reis lítið þorp á staðnum.

Áþreif­an­leg saga

Anita ElefsenHún segir fáa koma að síld­ar­verk­smiðj­unni en gangan þangað sé vel þess virði.

„Síld­ar­verk­smiðjan auk fimm ann­arra húsa hurfu í snjó­flóði árið 1919 og fór­ust níu manns,“ segir Anita Elefsen, safn­stjóri Síld­arminja­safns Íslands, sem er bor­inn og barn­fæddur Sigl­firð­ingur. „Heim­ildir segja að snjó­flóðið hafi verið um kíló­metri …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár