Slökkviliðssjóri lýsir brunanum á Bræðraborgarstíg: „Með erfiðari verkefnum sem ég hef lent í á mínum ferli“

Jón Viðar Matth­í­as­son, slökkvi­liðs­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, segir að slökkvi­liðið hafi áður fengið umsókn fyrir rekstur gisti­heim­ilis í hús­inu á Bræðra­borg­ar­stíg 1, en veitti nei­kvæða umsögn. Þrír hafa látið lífið og tveir eru á spít­ala eftir að húsið brann. Jón Viðar var á vett­vangi og segir að slökkvi­liðs­menn munu fá félags­stuðn­ing vegna upp­lif­unar við björg­un­ar­störfin.

Slökkviliðssjóri lýsir brunanum á Bræðraborgarstíg: „Með erfiðari verkefnum sem ég hef lent í á mínum ferli“
Jón Viðar Matth­í­as­son Slökkvi­liðs­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var á vett­vangi brun­ans við Bræðra­borg­ar­stíg 1 í gær. Með ára­tuga reynslu af slökkvi­störfum hefur hann þó sjaldan reynt jafn erf­iðar aðstæður. Mynd: Pressphotos

„Við höfum nátt­úru­lega áhyggjur af öllum þeim sem búa við sam­bæri­legar aðstæður og þarna voru,“ segir Jón Viðar Matth­í­as­son, slökkvi­liðs­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem var á vett­vangi brun­ans á Bræðra­borg­ar­stíg 1 í gær, þar sem þrír lét­ust.

Jón Viðar segir slökkvi­liðið hafa veitt nei­kvæða umsögn um umsókn fyrri eig­enda húss­ins árið 2014, þegar þeir vildu starf­rækja þar gisti­heim­ili. Þar sem húsið er ekki skráð sem gisti­heim­ili voru minni kröfur gerðar til eld­varna.

Alls eru 73 ein­stak­lingar skráðir með lög­heim­ili í hús­inu, en Jón Viðar telur úti­lokað svo margir ein­stak­lingar hafi í raun búið þar. Hann telur eig­endur húss­ins hafa brugð­ist. Af lýs­ingum hans á elds­voð­anum er ljóst að aðstæður voru stór­hættu­legar. Um er að ræða timb­ur­hús, sem var steypt að utan, með svo­kall­aðri for­skölun. Að auki var steypt yfir báru­járn á hluta húss­ins.

„Það sem kom okkur í opna skjöldu var hvað eld­ur­inn var ákafur og útbreiddur og mik­ill. Svo nátt­úru­lega þegar maður fer að rýna í þetta í dag þá kemur í ljós að húsið er ein­angrað með sagi að hluta til og það hefur tölu­vert að segja. Það er mik­ill elds­matur í því. Það á svo eftir að rýna þetta betur og svo kemur kannski eitt­hvað í ljós sem maður kemur ekki auga á akkurat núna.“

Féll út um glugga

Hann lýsir því hvernig slökkvi­liðs­menn hafi þurft að hefja líf­björgun og síðar þurft frá að hverfa vegna hættu.

„Við fáum fyrst til­kynn­ingu um málið rétt yfir 15:00 og til­kynn­ingin kemur held ég strax í upp­hafi þar sem veg­far­endur verða varir við þetta og það koma líka hring­ingar frá íbúum húss­ins. Við komum mjög fljótt á vett­vang og hófust þá strax björg­un­ar­störf á þeim sem voru í gluggum íbúð­ar­innar og sem við náðum út, eða komust sjálfir út. Fólki var bjargað út um glugga á annarri hæð og þriðju hæð. Það var tölu­vert fall hjá sumum, þannig að þetta var í raun alveg ótrú­leg atburð­ar­rás. Það er einn stað­festur lát­inn á sjúkra­húsi. Hann komst út um glugga.  Ég var á vett­vangi og þetta er nátt­úru­lega rosa­lega erfitt verk­efni. Þarna erum við ekki strax að fara í slökkvi­starf fyrst eins og almennt er, heldur erum við í líf­björgun. Svo er grunur um að það séu ein­stak­lingar inni, eftir að búið er að ná út sex aðilum og þá er farið í að leita, hvort við finnum ein­hvern. Við náum að leita á jarð­hæð og annarri hæð, en ekki nema hluta af þriðju hæð því hit­inn var orð­inn það mik­ill og óbæri­legur. Eins var gólfið farið að gefa sig og farið að hrynja ofan á okkur úr þak­inu, svo við þurftum að hörfa til baka. Síðan er í raun og veru slökkvi­starfið eftir það fram­kvæmt tölu­vert utan­húss, bara í gegnum glugga og í gegnum þakið.“ 

Frá vett­vangiFjöldi fólks safn­að­ist saman og fylgd­ist með elds­voð­anum.

Veittu neikvæða umsögn á opnun gistihúss

Fram hefur komið að Stundin fjall­aði um aðbúnað í hús­inu í lok árs 2015, þar sem bent var á að eld­hætta væri til staðar. Þá höfðu greinst raka­skemmdir í hús­inu, raf­magn virt­ist illa frá­gengið og hluti af steyptri klæðn­ingu hrunið utan af því. Stundin ræddi þá við heil­brigð­is­eft­ir­lit og bygg­ing­ar­full­trúa Reykja­víkur. Jón Viðar seg­ist ekki hafa fundið upp­lýs­ingar um aðkomu slökkvi­liðs að hús­inu und­an­farin ár.

„Við höfum verið að fara yfir gagna­grunn­ana hjá okkur og við alla vega finnum þetta ekki hjá okkur, alla­vega ekki nýlega. Við nátt­úru­lega vorum að skoða þetta hús­næði fyrir nokkrum árum síðan, meðal ann­ars með erindi frá 2014 þar sem að menn voru að velta fyrir sér að opna gisti­heim­ili. Við vorum með nei­kvæða umsögn á það út af eld­vörnum“

Þrátt fyrir að 73 hafi verið skráðir til búsetu í hús­inu eru mun færri íbúar. Hann segir slökkvi­liðið hafa haft afskipti af 8 manns í hús­inu. Húsið var ekki skráð sem gisti­heim­ili. 

„Ég held að í grunn­inn þá séu ekki 73 sem búa þarna, þetta er ein­hver leppur til að hafa lög­heim­il­is­skrán­ingu en þau búa ann­ars staðar, við vitum bara ekki hvar. Það eina sem við vorum að vinna með í þessu verk­efni voru 8 manns, en það getur vel verið að það búi þar fleiri, en engan veg­inn 73. Annað vitum við í raun ekki. Þegar þú ert far­inn að reka gisti­heim­ili þá ertu fall­inn undir eld­varn­ar­eft­ir­lit sveita­fé­lag­anna og þá komum við í heim­sókn reglu­lega og gerum ábend­ingar, en þú þarft að sækja um leyfi fyrir því.“

Jón Viðar seg­ist ekki vita til þess að tak­mark­anir séu á fjölda fólks sem leigja má sömu íbúð­ina og eld­varn­ar­eft­ir­lit ekki hafa heim­ildir til þess að vakta öryggi þeirra. Hins vegar séu strangar reglu­gerðir á eld­vörnum í gisti­heim­ilum, sem þetta hús­næði hefur ekki stað­ist við fyrri umsókn.

„Þó þú sért að leigja fullt af fólki aðstöðu í einu, þótt þú ættir ein­hverja íbúð út í bæ og myndir leigja ein­hverju fólki hana til lang­tíma­leigu þá er það í raun og veru bara eins og hvert annað hús­næði. Mér er ekki kunn­ugt hvort það séu ein­hverjar fjölda­tak­mark­anir, en það gætu verið ein­hver heil­brigð­is­á­kvæði. Það alla­vega er ekki að tala til eld­varn­ar­þáttar, varð­andi íbúð­ar­hús­næði. Eld­varn­ar­eft­ir­lit og íbúð­ar­hús­næði eiga ekki sam­leið nema bara þegar þú ert að byggja. Það þarft að upp­fylla ákveðin skil­yrði hvað varðar eld­varnir, sem er mjög strangt í raun og veru, en það er á skala. Ef þú ert með gisti­heim­ili þá lendir þú í frek­ari kröfum, því þá erum við að horfa á fólk sem gistir tíma­bundið og er kannski ekki stað­kunn­ugt. Þá þarf frek­ari hólfun og frek­ari við­var­anir. Svo ferðu upp í hótel og þá eru komnar enn frek­ari kröfur, þar sem dettur inn vatns­úða­kerfið og því um líkt. Eld­varn­ar­eft­ir­lit sveita­fé­lag­anna er ekki með eft­ir­lit með íbúð­ar­hús­næði, sam­kvæmt lögum. Menn vilja ekki að opin­bert eft­ir­lit sé að detta inn á heim­ili fólks bara hvenær sem er.“

Eigendur uppfylltu ekki skyldur

Hand­tek­inn á vett­vangiÞrír voru hand­teknir á vett­vangi brun­ans, en einn hefur verið úrskurð­aður í gæslu­varð­hald. Það er karl­maður á sjö­tugs­aldri.

Hann segir eig­endur húss­ins bera ábyrgð á eld­vörnum „Varðandi íbúð­ar­hús­næði og í raun og veru allt hús­næði almennt er það eig­and­inn sem ber ábyrgð á að upp­fylla öll ákvæði laga. Ef þú gerir breyt­ingar á hús­næð­inu þarftu í raun og veru að fá nýtt bygg­ing­ar­leyfi og það þýðir að þú kemur með teikn­ingar sem eru unnar af ein­hverjum verk­fræð­ingum eða arki­tekt og það fær síðan rýni hjá bygg­ing­ar­full­trúa. Slökkvi­liðið kemur þar inn og rýnir í eld­varn­ar­þátt­inn á þeim teikn­ingum. Miðað við grófa úttekt hjá okkur hafa ekki komið neinar breyt­ingar á þessu húsi síð­ast­liðin 20 ár. Sú til­finn­ing kemur því upp að eig­endur séu annað hvort ekki með­vit­aðir um sína ábyrgð eða séu að reyna að koma sér undan þessum hlutum. Aftur á móti þegar þú ert komin með atvinnu­hús­næði þá gilda sömu reglur, nema eld­varn­ar­eft­ir­lit slökkvi­liðs­ins kemur inn sem eft­ir­lits­að­ili með reglu­bundum hús­næði inn í húsið sjálft. Þá erum við í raun og veru að hugsa um öryggi þriðja aðila. Segjum að þú farir í búð og sért að versla, þá átt þú að vera trygg með að þínu öryggi sé ekki ógnað.“

Skýrslan mun fjalla um eftirlit og lög

Jón Viðar telur mögu­legt að eyður sé að finna á verk­ferlum stofn­ana sem koma að mál­unum.

„Það verður mjög áhuga­vert að sjá skýrslu Húsnæðis- og mann­virkj­un­ar­stofn­unnar, sem er í raun og veru sú rík­is­stofnun sem ber ábyrgð á þessum mála­flokk. Þeir eru að taka út okkar störf, þá bæði eld­varn­ar­eft­ir­litið sem heyrir undir slökkvi­liðið og líf­björgun. Til­gang­ur­inn með þess­ari úttekt er að koma með ábend­ingar til okkar um hvað hefði mátt gera betur og síðan líka að koma með ábend­ingar eða til­mæli til lög­gjaf­ar­valds­ins um hvort megi breyta lögum eða reglu­gerðum til þess að ná utan um þessa hluti.“

Í fram­hald­inu verður hugað að mann­skap slökkvi­liðs­ins sem tók þátt í aðgerð­unum.

„Eftir svona atburð þá erum við nátt­úru­lega bara að reyna að hugsa um mann­skap­inn okkar, en hugur okkar er nátt­úru­lega hjá þessu fólki og aðstand­endum þeirra. Þetta er auð­vitað skelfi­leg upp­lifun fyrir þau, en ekki síður þau sem lét­ust. Þannig að við erum dálítið bara að reyna að halda utan um okkar fólk. Við erum með félags­stuðn­ing til þess að hjálpa fólki að vinna úr þessu, því menn eru alltaf að gagn­rýna sjálfa sig, hvort þeir hefðu átt að gera hlut­ina öðru­vísi, hvort þeir hefðu geta gert betur. Þarna voru menn í end­ur­lífgun á vett­vangi líka, þannig að þetta var svona með erf­ið­ari verk­efnum sem ég hef lent í á mínum ferli.“

Stundin hefur reynt án árang­urs að ná sam­bandi við eig­anda húss­ins í dag.

Í umfjöllun Stund­ar­innar í fyrra kom fram að fimm til sjö þús­und manns byggju í atvinnu- og iðn­að­ar­hús­næði sem ekki væru ætluð til búsetu og bruna­varnir eftir því tak­mark­aðar.

Karl­maður á sjö­tugs­aldri var í dag úrskurð­aður í viku­langt gæslu­varð­hald vegna gruns um aðild að brun­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Bruninn á Bræðraborgarstíg

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár