Upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar um eldsvoðann: „Við berum í raun og veru enga ábyrgð“

Um ábyrgð eftir brun­ann í Vesturbæ Reykja­víkur benda mis­mun­andi aðilar innan borg­ar­yf­ir­valda hver á annan. Upp­lýs­inga­stjóri segir borg­ina ekki bera neina ábyrgð gagn­vart leigj­endum íbúð­ar­innar, en vel­ferð­ar­svið segir þvert á móti að borgin beri ríkar skyldur til að aðstoða þá.

Upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar um eldsvoðann: „Við berum í raun og veru enga ábyrgð“
Bruninn mann­skæði 73 ein­stak­lingar eru skráðir til heim­ilis á Bræðra­borg­ar­stíg 1. Mynd: Davíð Þór

Elds­voð­inn á Bræðra­borg­ar­stíg 1 hefur skekið þjóð­ina og varpað fram flóknum og erf­iðum spurn­ingum um ábyrgð; hvað hún merkir, hvar hún liggur og hvers eðlis hún er. Upp­lýs­inga­stjóri Reykja­víkur þver­tekur fyrir að borgin beri nokkra ábyrgð gagn­vart leigj­endum húss­ins og segir spurn­ingar þess efnis frá­leitar. Vel­ferð­ar­svið hefur hins vegar leit­ast við að aðstoða þá ein­stak­linga sem bjuggu í hús­inu. Fjöldi aðila og stofn­anna hafa komið að aðdrag­anda og eft­ir­köstum máls­ins á einn eða annan hátt og ljóst er að bresti má finna á kerf­inu. 

Ítrek­aðar kvart­anir hafa borist eft­ir­lits­að­ilum vegna hús­næð­is­ins og varað hefur verið við hættu á elds­voða. Eigandi húss­ins hafði þar að auki fengið synjun frá slökkvi­liði við umsókn á gisti­leyfi fyrir hús­næðið á grund­velli eld­hættu. Eig­and­inn á jafn­framt fimm aðrar eignir í gegnum félagið HD …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Bruninn á Bræðraborgarstíg

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár