Nostalgía, sumarsólstöðuganga og sveitaballsstemmari

Tón­leik­ar, sýn­ing­ar og við­burð­ir 19. júní til 2. júlí.

Nostalgía, sumarsólstöðuganga og sveitaballsstemmari

Þetta og svo ótal margt fleira er á döf­inni næstu tvær vik­urnar.

Aldamótatónleikar

Hvar? Háskóla­bíó
Hvenær? 19. júní kl. 18.00 og 21.00, 20. júní kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: Frá 3.990 kr.

Nostal­gía hefur ávallt verið vin­sælasta afþrey­ing­ar­efnið, en á þessum tón­leikum er henni gert hátt undir höfði. Úrvalslið af popp­söngv­urum, sem voru allir upp á sitt besta um alda­mótin, stíga á sviðið og fara í gegnum vin­sæl­ustu slag­ar­ana sína. Búast má við því að öll vin­sæl­ustu íslensku lögin frá tímum heima­gerðra mix-diska og pott­þétt-platn­anna verði spiluð af mik­illi inn­lifun af söngv­ur­unum sem fluttu þau upp­runa­lega. Meðal flytj­enda eru Birgitta Haukdal, Íris Kristín, Jónsi og Einar Ágúst, en ein­vala­lið af hljóð­færa­leik­urum spila lögin með þeim. Fyrir hlé verða ball­öð­urnar og rólegu lögin flutt, en síðan verða bombunum sleppt.

Gróa

Hvar? 12 Tónar
Hvenær? 19. júní kl. 17.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Þriggja kvenna pönk­sveitin Gróa hefur verið dug­leg frá þátt­töku sinni í Mús­íktil­raunum árið 2017. Hún gaf út sjálf­nefnda plötu árið 2018 og fylgdi henni eftir með Í glimmer­heimi ári síðar sem vann Kraumsverð­launin 2019. Tón­listin er hrá og líf­leg tján­ing á ung­linga­til­finn­ingum. Tón­leik­arnir eru þeir þriðju í sum­ar­tón­leika­röð 12 Tóna og fara fram í bak­garði versl­un­ar­innar.

Sumarstólstöðuganga

Hvar? Viðey
Hvenær? 20. júní kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 1.650 kr.

Til að fagna sum­ar­sól­stöðum, þeirri árlegu stund þegar hádeg­is­sólin hættir að hækka og nóttin fer að lengj­ast, er skipu­lögð sér­stök ganga um Viðey. Þegar klukkan slær 21.44, sem er stundin sem dagur byrjar að stytt­ast, verður staldrað við og Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, flytur erindi. Siglt er frá Skarfa­bakka klukkan 20.00.

Brynjar Daðason & Guðmundur Arnalds

Hvar? Mengi
Hvenær? 20. júní kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Brynjar Daðason og Guð­mundur Arnalds koma fram í fyrsta skipti saman, en þeir munu spila sveim­andi og melódíska tón­list. Brynjar er tón­skáld sem dregur áhrif frá ýmiss konar nýklass­ískri og „ambient“ tón­list, á meðan að Guð­mundur er raf­tón­list­ar­maður sem hefur mik­inn áhuga á hljóð­vinnslu og er einn af stofn­endum plötu­ú­gáf­unnar Agalma.

Common Ground

Hvar? Korp­úlfs­staðir
Hvenær? Til 23. júní
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Íslend­ingar sem hér fædd­ust og ólust upp ásamt nýjum Íslend­ingum frá Litháen og Póllandi vinna saman þvert á landa­mæri og menn­ing­ar­heima á þess­ari sýn­ingu. Tólf lista­menn nýta upp­lifun og þekk­ingu hvers og eins til að skapa fjöl­breytt verk og inn­setn­ingar á sýn­ingu sem bregður upp ólíkum snerti­flötum og við­horfum.

Letrað með leir

Hvar? Gallery Port
Hvenær? 24.–28. júní 
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Á sýn­ing­unni leiða saman hesta sína let­ur­hönn­uð­ur­inn Guð­mundur Úlf­ars­son og Hanna Dís Whitehead list­hönn­uður. Þau hafa að und­an­förnu átt í sam­tali sem þró­ast hefur úr tví­vídd í þrí­vídd fram og til baka. Samtalið hefur efn­is­gert sig, en Hanna og Guð­mundur vinna bæði á per­sónu­legan hátt á landa­mærum hönn­unar og listar.

Afmælissýning Hafnarhúss

Hvar? Hafn­ar­hús
Hvenær? Til 16. júlí
Aðgangs­eyrir: 1.840 kr.

Í ár eru 20 ár síðan að Hafn­ar­húsið var tekið til notk­unar sem lista­safn. Á þess­ari sýn­ingu er húsið sjálft í for­grunni og saga þess og umbreyt­ing úr skrif­stofu- og vöru­geymslu­húsi Reykja­vík­ur­hafnar í lista­safn sýnd í gegnum meðal ann­ars teikn­ingar og ljós­myndir. Einnig er skoðað hvernig safna­bygg­ingin sem rými vinnur með list­inni og teng­ist umhverfi sínu borg­ar­rým­inu.

Óljós nærvera

Hvar? Ljós­mynda­safn Reykja­víkur
Hvenær? Til 16. ágúst
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Verkið Óljós nær­vera eftir ljós­myndar­ann Gunnlöð Jónu Rún­ars­dóttur byggir á reynslu­sögum Íslend­inga nútím­ans af sam­skiptum þeirra við drauga eða kynni af yfir­nátt­úru­legum öflum. Leitast er við að fanga and­rúms­loft þess­ara sagna og tengja þær við okkar sagna­minni, án þess að gera það bók­staf­lega.

Skítamórall

Hvar? Harpa
Hvenær? 26. júní kl. 20.30
Aðgangs­eyrir: Frá 4.990 kr.

Nafnið Skíta­mórall var upp­haf­lega ætlað þung­arokks­hljóm­sveit, en sveita­ball­a­popp­ar­arnir frá Selfossi hafa borið það síðan þá. Sveitin gaf út sex plötur á fjórtán ára tíma­bili þegar hún var virk, en hún kemur núna reglu­lega saman og heldur staka tón­leika. Hún stígur í fyrsta sinn á svið Hörpu.

Ingibjörg Turchi – útgáfutónleikar

Hvar? Harpa
Hvenær? 2. júlí kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 3.000 kr.

Í gegnum end­ur­tekn­ingar skapar Ingi­björg ein­stakan og dáleið­andi hljóð­heim, sem hún brýtur upp með melódískum bassa­línum. Þessir tón­leikar eru eins konar fagn­að­ar­tón­leikar fyrir plöt­una Meliae sem var tekin upp síð­ast­lið­inn sept­em­ber og kemur út í byrjun júlí. Einnig mun Ingi­björg leika tón­list af plöt­unni Wood/work sem kom út árið 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár