Ólafur Hand sýknaður: Lýsingar á atburðum þóttu ekki ríma við áverka

Lands­réttur hefur snúið við dómi yfir Ólafi William Hand sem hafði verið dæmdur fyrir alvar­legt ofbeldi gegn barns­móður sinni. Óumdeilt þykir að hún hafi ruðst óboðin inn á heim­ili Ólafs.

Ólafur Hand sýknaður: Lýsingar á atburðum þóttu ekki ríma við áverka
Sýknaður Lands­réttur hefur sýknað Ólaf William Hand. Mynd: Rax / Ragnar Axelsson / Mbl.is

Ólafur William Hand, sem áður var upp­lýs­inga- og mark­aðs­full­trúi Eimskipa, hefur verið sýkn­aður í Lands­rétti en áður hafði hann verið sak­felldur í hér­aði fyrir alvar­legt ofbeldi gagn­vart barns­móður sinni. Í mats­gerð dómskvadds mats­manns er laut að áverkum barns­móður Ólafs kemur fram að lýs­ingar hennar og sam­býl­is­manns hennar á atburðum rými illa við áverka á kon­unni. Einkum þess vegna var Ólafur sýkn­aður.

Sumarið 2016 kom barns­móðir Ólafs ásamt sam­býl­is­manni sínum að heim­ili Ólafs og eig­in­konu hans í þeim til­gangi að sækja barn þeirra Ólafs en til stóð að barns­móð­irin færi með barnið til útlanda. Munu hafa komið upp deilur um hvenær barnið skyldi fara með móður sinni sem end­uðu með því að hún ruddi sér leið inn á heim­ili Ólafs og tók barnið með sér. Mun hafa komið til átaka inni á heim­il­inu en bar þeim Ólafi og barns­móður hans ekki saman um hvað hefði gerst. Hún sak­aði Ólaf um að hafa tekið sig háls­taki, hrint henni, ýtt henni upp að vegg og rifið í hár hennar.

Í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur var Ólafur dæmdur í tveggja mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir að hafa tekið barns­móður sína háls­taki, þrengt ítrekað að hálsi hennar og hrint henni þannig að hún féll í gólfið. Gögn og myndir af bráða­mót­töku Land­spít­ala hafi sýnt marga yfir­borðsá­verka á hálsi, tognun og ofreynslu á háls­hrygg, yfir­borðsá­verka á bak­vegg og brjóst­kassa.

Lands­réttur hefur hins vegar snúið dóm­inum við. Í nið­ur­stöðu dóm­stóls­ins kemur fram að fyrir liggi að konan hafi farið órboðin inn á heim­ili Ólafs og haft barn þeirra á brott með sér skömmu síðar. Hvað varði atvik þar inni standi orð gegn orði, orð Ólafs og eig­in­konu hans gegn orðum barns­móður Ólafs og sam­býl­is­manns hennar.

Í mats­gerð dómskvadds mats­manns, bækl­un­ar­skurð­læknis, kom fram að gögn og lýs­ingar rím­uðu illa við þá stað­hæf­ingu að Ólafur hefði tekið barns­móður sína háls­taki. Þá hafi verið ósam­ræmi í fram­burði sam­býl­is­manns barns­móð­ur­innar um atvik. Ólafur hafi hins vegar stað­fast­lega neitað sök og sé fram­burður hans í góðu sam­ræmi við fram­burð eig­in­konu hans. Var hann því sýkn­aður í mál­inu.

 

 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár