Ólafur enn hjá Eimskipi: Baráttumaður gegn umgengnistálmunum dæmdur fyrir ofbeldi gegn barnsmóður sinni

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sak­felldi Ólaf William Hand fyrir að hafa „tekið barns­móður sína háls­taki, þrengt ítrekað að hálsi hennar og hrint henni þannig að hún féll í gólfið“.

Ólafur enn hjá Eimskipi: Baráttumaður gegn umgengnistálmunum dæmdur fyrir ofbeldi gegn barnsmóður sinni
Ólafur William Hand hefur komið fram fyrir hönd Eimskips í fjöl­miðlum und­an­farin ár. Mynd: Rax / Ragnar Axelsson / Mbl.is

Ólafur William Hand, upp­lýs­inga- og mark­aðs­full­trúi hjá Eimskipi og helsta and­lit fyr­ir­tæk­is­ins út á við und­an­farin ár, hefur fengið tveggja mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm fyrir alvar­legt ofbeldi gegn barns­móður sinni. 

Hann stað­festir í sam­tali við Stundina að hann starfi enn hjá Eimskipi og hafi ekki þurft að taka sér leyfi. Ólafur vill ekki ræða um dóm­inn að svo stöddu en seg­ist ætla að birta yfir­lýs­ingu um málið á Facebook.

Ekki náð­ist í stjórn­endur Eimskips við vinnslu frétt­ar­innar og haft er eftir fram­kvæmda­stjóra alþjóða­sviðs Eimskips á Mbl.is að hann geti ekki tjáð sig um mál­efni ein­stakra starfs­manna. 

Málið var tekið fyrir í lok­uðu þing­haldi, en sam­kvæmt frétt DV var Ólafur fund­inn sekur um lík­ams­árás á barns­móður sína og jafn­framt brot gegn barna­vernd­ar­lögum þar sem sannað þótti að barn hans hefði orðið vitni að árásinni. 

Uppfært: Dómurinn er birtur á vef Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, sjá hér. 

Fram kemur í dóm­inum að Ólafur hafi tekið barns­móður sína háls­taki, þrengt ítrekað að hálsi hennar og hrint henni þannig að hún féll í gólfið. Þá leiði gögn og myndir af bráða­mót­töku LSH í ljós „marga yfir­borðsá­verka á hálsi, tognun og ofreynslu á háls­hrygg, yfir­borðsá­verka á bak­vegg og brjóst­kassa“.

Ólafur hefur vakið athygli fyrir bar­áttu sína gegn umgengni­stálm­unum. Hann steig fram í við­tali við frétta­stofu Stöðvar 2 þann 20. febr­úar 2017, gagn­rýndi barns­móður sína og sagð­ist ekki hafa fengið að sjá barnið sitt í átta mán­uði.

Siða­nefnd Blaða­manna­fé­lags Íslands komst síðar að þeirri nið­ur­stöðu að frétta­stofan og 365 miðlar hefðu ekki brotið siða­reglur en þó sýnt barns­móður Ólafs „lít­ils­virð­ingu með því að svara ekki tölvu­póstum eða sím­tölum hennar í kjöl­far umfjöll­un­ar­innar“. 

DV greinir frá því að blaðið hafi undir höndum gögn sem sýni að það sé sam­kvæmt ákvörðun yfir­valda sem Ólafur nýtur ekki reglu­legrar umgengni við barnið. „Byggir sú ákvörðun meðal ann­ars á því að barnið treystir sér ekki til að hitta á hann vegna ofbeld­is­ins sem það var vitni að. Í þeim gögnum kemur einnig fram að Ólafur sagði sig frá ferli þar sem fag­menn unnu að því, með stuðn­ingi móður, að byggja upp traust og koma á umgengni á for­sendum barns­ins, meðal ann­ars undir eft­ir­liti. Stuttu eftir að hafa þannig neitað að vinna að umgengni, fór hann í sjón­varps­við­tal og ásak­aði barns­móður sína um tálm­anir,“ segir í frétt­inni. 

Ólafur hefur birt eftirfarandi yfirlýsingu á Facebook:

Vegna fréttar í dag vegna dóms­máls vil ég koma eft­ir­far­andi á fram­færi.

Frið­helgi heim­ils­ins rofin.

Barns­móðir mín og sam­býl­is­maður hennar rudd­ust inn á heim­ili mitt þann 16. júlí 2016 þegar barnið var í umgengni hjá mér sam­kvæmt úrskurði sýslu­manns. Hún réðst á mig alveg tryllt eins og fram kemur í gögnum máls­ins og reyndi ég að verja mig og heim­ili mitt með að taka utan um hana og leggja í gólfið. Sam­býl­is­mað­ur­inn sló mig þá í bakið.

Barns­móðir mín tók barnið og fór með það út gegn vilja barns­ins eins og fram kemur í vitn­is­burði ótengds aðila sem stóð fyrir utan heim­ili mitt.

Rétt er að ég var dæmdur fyrir að reyna að verja mitt heim­ili en ég tók hana aldrei háls­taki eins og ég var sak­felldur fyrir. Hef ég tekið ákvörðun um að áfrýja þessum dómi.

Mál þetta hefur tekið mikið á mig og mína fjöld­skyldu og vekur upp spurn­ingar um hvort að í dómi þessum felist skila­boð um að það sé rétt­læt­an­legt að ráð­ast inn á heim­ili fólks og nema barn á brott í skjóli lög­reglu. Að mati lög­reglu og rík­is­sak­sókn­ara þá var ekki ástæða til að kæra barns­móður mína og sam­býl­is­mann hennar fyrir hús­brot né brott­nám barns með þeim rökum að almanna­hags­munir kröf­uð­ust þess ekki. Dæmi hver fyrir sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnaverndarmál

Barnaníðskæru dagaði uppi fyrir „mjög bagaleg mistök“
FréttirBarnaverndarmál

Barn­a­níð­skæru dag­aði uppi fyrir „mjög baga­leg mis­tök“

Alvarleg mis­tök lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og óvenju­leg afskipti þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu urðu til þess að kæra barna­vernd­ar­nefndar vegna meintra kyn­ferð­is­brota fékk ekki lög­mæta með­ferð og lá óhreyfð í meira en tvö ár. „Lögregla beið eftir gögnum frá barna­vernd sem aldrei komu,“ segir í bréfi sem lög­regla sendi rík­is­sak­sókn­ara vegna máls­ins.
Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barnaníð
FréttirBarnaverndarmál

Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barn­a­níð

Rannsókn á meintum kyn­ferð­is­brotum föður gegn barni var felld niður án lækn­is­skoð­unar og Barna­hússvið­tals, en í kjöl­farið komu fram yfir­lýs­ingar frá konum sem segja mann­inn hafa mis­notað þær í æsku. Dóm­stólar telja að „það þjóni hags­munum barns­ins að það njóti meiri og sam­felld­ari umgengni við föður“ og hafa úrskurðað um umgengni án eft­ir­lits.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár