Öðruvísi þjóðhátíðardagur, kvennahlaup, hljóð og orð

Tón­leik­ar, sýn­ing­ar og við­burð­ir 5. til 18. júní.

Öðruvísi þjóðhátíðardagur, kvennahlaup, hljóð og orð

Þetta og nokkrir aðrir við­burðir eru á döf­inni næstu vik­urnar.

17. júní 

Hvar? Úti um allt landið
Hvenær? 17. júní 
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Þjóð­há­tíð­ar­dagur Íslend­inga varð ekki til fyrr en árið 1944 þegar Íslend­ingar hlutu sjálf­stæði, en búið er að halda opin­ber­lega upp á 17. júní, afmæli Jóns Sig­urðs­sonar, frá árinu 1911. Hátíð­ar­höld í Reykja­vík fara fram með breyttu og minna sniði í ár sökum COVID-19 far­ald­urs­ins. Yfirvöld hvetja borg­ar­búa til að halda upp á dag­inn heima fyrir með sínum nán­ustu. Morg­un­athöfn á Aust­ur­velli, þar sem for­sæt­is­ráð­herra og fjall­konan halda erindi verður sjón­varpað í beinni útsend­ingu á RÚV. Borgin verður skreytt fánum og blómum og plötu­snúðar þeyta skífum á opnum svæðum eins og á Klambra­túni. Eftir hádegi má sjá lúðra­sveitir, dans og sirku­slistir í mið­bænum.

Hljóðönn: HLJORÐ

Hvar? Hafn­ar­borg
Hvenær? 7. júní kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

HLJORÐ er síð­asti við­burð­ur­inn í sjö­unda starfs­ári tón­leikar­að­ar­innar Hljóð­anna í Hafn­ar­borg. Á honum koma fram Ásta Fanney Sig­urð­ar­dóttir, lista­kona og skáld, og Svanur Vil­bergs­son gít­ar­leik­ari. Tón­leik­arnir eru til­raun til að sam­þætta tvær ólíkar birt­ing­ar­myndir merk­ingar frá tveimur mis­mun­andi sjón­ar­hornum.

Spútnikk Strengjakvartett

Hvar? Hann­es­ar­holt
Hvenær? 7. júní kl. 12.15
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Strengja­kvar­tett­inn Spútnikk var stofn­aður árið 2018, en hann kemur fram á þessum hádeg­is­tón­leikum á sjó­manna­dag­inn. Á efn­is­skránni eru Strengja­kvar­tett opus 54 no. 1 eftir Joseph Haydn. Kvar­tett­inn hefur komið fram við ýmis tæki­færi frá stofnun hans og nú síð­ast á tón­leikum í Hljóma­höll­inni síð­ast­lið­inn nóv­em­ber.

Mestmegnis teikningar

Hvar? i8
Hvenær? Til 20. júní
Aðgangs­eyrir: Ókeypis

Á þess­ari sjöttu einka­sýn­ingu Krist­jáns Guð­munds­sonar hjá i8 má sjá geó­metrísk grafít­verk stillt upp á hreinum hvítum veggjum. Sýningin er mínimal­ísk, en ramm­arnir eru búnir til úr pólý­ster­íni, sem er gjarnan notað til að pakka inn vörum. Því má segja að sýn­ingin sé til­raun til að skapa eitt­hvað ljóð­rænt úr hvers­dags­legum umbúðum á tíma hins alls­ráð­andi Amazon-veldis.

Leikhópurinn Lotta: Bakkabræður

Hvar? Víðs vegar um landið
Hvenær? Til 29. júlí
Aðgangs­eyrir: 2.900 kr.

Í sumar setur Leik­hóp­ur­inn Lotta upp fjöl­skyldu­söng­leik byggðan á þjóð­sög­unum um Bakka­bræður. Í með­förum Lottu má segja að Bakka­bræður fái tæki­færi til að segja sjálfir sögu sína á sínum for­sendum og leið­rétta þær rang­færslur sem hafa ratað í þjóð­sög­urnar. Leik­hóp­ur­inn ferð­ast um landið í sumar og flytur verkið utandyra.

Moses Hightower

Hvar? Röntgen
Hvenær? 11., 12. & 13. júní kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 3.500 kr.

Ljúf­ling­arnir í Moses Hightower skjóta upp koll­inum undir súð á þrennum tón­leikum í júní. Hljóm­sveitin kemur fram í sinni lát­laus­ustu kvar­tett­mynd, en auk þess að spila efni af þremur eldri plötum þeirra ætla þeir að nýta tæki­færið og prufu­keyra nýtt efni. Afar tak­mark­aður miða­fjöldi verður á boðstólum sökum COVID-19 far­ald­urs.

Une Misère & Zhrine

Hvar? Hard Rock Café
Hvenær? 12. & 13. júní kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Metalkjarna­sveitin Une Misère spilar í fyrsta sinn með svart­málms­sveit­inni Zhrine. Báðar sveit­irnar eru leið­andi öfl í sínum senum og þekktar fyrir magn­aða sviðs­fram­komu, háværa tóna og ærsla­fulla flutn­ingu. Sökum COVID-19 far­ald­urs­ins eru fjölda­tak­mark­anir enn í gangi, og því ætti ekki að búast við mosh-pittum, þótt til­efni sé til.

Kvennahlaup ÍSÍ

Hvar? Víðs­vegar
Hvenær? 13. júní 
Aðgangs­eyrir: 500–4.000 kr.

Nú eru 30 ár frá fyrsta kvenna­hlaup­inu á Íslandi, en mark­miðið í ár er að hvetja konur til þess að gera hlut­ina á eigin for­sendum og nær sú hugsun langt út fyrir hlaupið og lík­ams­rækt. Kvenna­hlaup nútím­ans snýst um hreyf­ingu sem hentar hverjum og einum, sam­veru kyn­slóð­anna, lík­ams­virð­ingu, sann­girni, umhverf­is­með­vit­und og vald­efl­ingu.

Útskriftarsýning LHÍ 2020

Hvar? Kjar­vals­staðir
Hvenær? 12. til 17. júní
Aðgangs­eyrir: 1.840 kr.

Lista­safn Reykja­víkur hefur allt frá árinu 2003 hýst útskrift­ar­sýn­ingu hund­ruða nem­enda á BA-stigi í mynd­list­ar­deild og hönn­unar- og arki­tekt­úr­deild Lista­há­skóla Íslands. Verkin end­ur­spegla nám, rann­sóknir og list­sköpun nem­end­anna síð­ustu þrjú ár. Á sýn­ing­unni í sumar er hægt að líta á verk mynd­list­ar­deildar og sjá það sem koma skal frá fram­tíð­ar­lista­fólki lands­ins.

Upptakturinn 2020

Hvar? Harpa
Hvenær? 16. júní kl. 17.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Með Upp­takt­inum, tón­sköp­un­ar­verð­launum barna og ung­menna, er ungu fólki gefið tæki­færi til að senda inn tón­smíð eða drög að henni og vinna mark­visst úr hug­myndum sínum með aðstoð fag­manna úr geir­anum. Tónverk eftir tólf ung og efni­leg tón­skáld verða flutt á tón­leika­dag­skrá í Norð­ur­ljósum Hörpu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár