Auglýsa smálán með smáskilaboðum

Per­sónu­vernd hefur borist kvörtun vegna mark­aðs­setn­ingar smá­lána­fyr­ir­tæk­is­ins NúNú sem áður hét Kredia. Formaður Neyt­enda­sam­tak­anna gagn­rýnir inn­heimtu­að­ferðir fyr­ir­tækj­anna og segir þau skipta reglu­lega um nafn og kenni­tölu.

Auglýsa smálán með smáskilaboðum
Fjár­hags­vand­ræði Stór hluti þeirra sem lenda í fjár­hags­vand­ræðum er ungt fólk með smá­lán. Mynd: Shutterstock

Per­sónu­vernd hefur borist fyr­ir­spurn vegna SMS mark­aðs­setn­ingar smá­lána­fyr­ir­tæk­is­ins NúNú. Fyr­ir­tækið sendi nýverið skila­boð á fjölda fólks í þeim til­gangi að aug­lýsa smá­lán sín.

Smá­lána­fyr­ir­tæki hafa sætt mik­illi gagn­rýni und­an­far­inn ára­tug. Fyr­ir­tækin eru sögð herja sér­stak­lega á unga og við­kvæma mark­hópa, en stór hluti þeirra sem sækir um greiðslu­að­lögun er ungt fólk með smá­lána­skuldir. Seðla­bank­inn hefur sagt að lögin sem var ætlað að koma böndum á starf­semi þeirra hafi ekki náð til­ætl­uðum árangri. Fyr­ir­tækin beiti ýmsum brögðum til að kom­ast fram­hjá þeim og í sumum til­vikum séu lögin snið­gengin með öllu. Neyt­enda­sam­tökin hafa einnig gagn­rýnt fyr­ir­tækin harð­lega og þá aðila sem sjá um inn­heimtu fyrir þau.

Þá hafa öryrkjar tekið smá­lán í auknum mæli eftir að starf­semi hjálp­ar­stofn­ana lagð­ist að mestu af vegna sam­komu­banns í kjöl­far auk­innar útbreiðslu COVID-19. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár