Seðlabankinn segir smálánafyrirtæki sniðganga lög til að græða á fjárhagsvanda ungs fólks

Meðan rík­is­stjórnin vísar til „lélegs fjár­mála­læsis hjá almenn­ingi“ í tengslum við greiðslu­vanda ungs fólks beinir Seðla­bank­inn sjónum að hlut­verki lög­gjafans sem hafi ekki tek­ist að koma böndum á starf­semi smá­lána­fyr­ir­tækja.

Þetta unga par hefði líklega gott af því að taka námskeið í fjármálalæsi.
Þetta unga par hefði lík­lega gott af því að taka nám­skeið í fjár­mála­læsi. Mynd: Shutterstock

Seðla­bank­inn telur að lög frá 2013, sem var ætlað að koma böndum á starf­semi smá­lána­fyr­ir­tækja, hafi ekki náð til­ætl­uðum árangri. Fyr­ir­tækin beiti ýmsum brögðum til að kom­ast fram­hjá lög­unum og í sumum til­vikum séu lögin snið­gengin með öllu. Þetta kemur fram í riti Seðla­bank­ans, Fjár­mála­stöð­ug­leiki, sem kom út í gær.

Sem dæmi um aðferð­irnar sem beitt er nefnir Seðla­bank­inn að rekstr­ar­að­ili smálánafyr­ir­tækja á Íslandi hafi selt raf­bækur í skiptum fyrir svo­kallað flýtigjald eða lántökugjald, en and­virðið af sölunni hafi ekki verið inni­falið í útreikn­ingi á árlegri hlut­fall­stölu kostn­aðar fyr­ir­tæk­is­ins. 

Bent er á að helsti mark­hópur smá­lána­fyr­ir­tækja er ungt fólk sem stendur höllum fæti fjár­hags­lega og hefur tak­mark­aðan aðgang að lánsfé í hefð­bundnum lána­stofn­unum.

Hlutfall fólks á aldr­inum 18 til 29 ára sem sótt hefur um greiðslu­aðlögun hjá Umboðs­manni skuld­ara hafi hækkað umtals­vert á síðustu árum og um leið hafi hlut­fall smá­lána­skulda af heild­ar­skuld­bind­ingum hóps­ins auk­ist.

„Árið 2017 voru 70% ein­stak­linga sem sóttu um greiðslu­aðlögun á aldr­inum 18-29 ára með smálánaskuldir. Meðalfjárhæð smálánaskulda á hverja umsókn hjá sama hópi hækk­aði um rúmlega 40% á milli áranna 2016 og 2017,“ segir í riti Seðla­bank­ans. 

Stundin fjallar ítar­lega um smá­lána- og rað­greiðslu­lána­starf­semi í blað­inu sem kom út í dag, einkum um umsvif Skorra Rafns Rafns­sonar í íslensku við­skipta­lífi. Skorri er stofn­andi og eig­andi smá­lána­fyr­ir­tækj­anna 1909, Múla og Hrað­pen­inga en jafn­framt Netgíró, eins helsta fjár­tækni­fyr­ir­tækis Íslands, og fyr­ir­tæk­is­ins Aktiva sem er milli­liður í lána­við­skiptum ein­stak­linga og fyr­ir­tækja. Bent er á að Netgíró hf., sem veitt hefur íslenskum almenn­ingi smá- og neyslu­lán fyrir marga millj­arða króna, lýtur tak­mörk­uðu opin­beru eft­ir­liti og er ekki eft­ir­lits­skyldur aðili í sama skiln­ingi og bankar eða trygg­inga­fé­lög enda fyr­ir­tækið ekki fjár­magnað með inn­lánum. 

Seðla­banki Íslands hnykkir á því í rit­inu sem kom út í gær að starf­semi smá­lána­fyr­ir­tækja veiki greiðslu­getu ein­stak­linga sem sækja í slík lán. Þá kunni að reyn­ast var­huga­vert fyrir fjár­mála­stöð­ug­leika á Íslandi ef stærri fjármálafyr­ir­tæki herða á sam­keppn­inni við smálánafyr­ir­tæki með því að greiða aðgengi almenn­ings að sam­bæri­legum skammtímalánum. Slíkt geti orðið til þess að van­skil í fjármálakerf­inu auk­ist.

Í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar er fjár­hags­vandi lág­tekju­fólks á leigu­mark­aði og fjölgun ungs fólks sem sækir um greiðslu­aðlögun hjá Umboðs­manni skuld­ara sett í sam­hengi við það sem kallað er „lélegt fjár­mála­læsi hjá almenn­ingi“. Leiða má líkum að því að þarna sé vísað til þess að ungt fólk sé of gin­keypt fyrir gylli­boðum smá­lána­fyr­ir­tækja.

Í umfjöllun Seðla­bank­ans um smá­lána­starf­semi og greiðslu­vanda ungs fólks er skömminni ekki skellt á almenn­ing eða slæmt fjár­mála­læsi heldur sjónum beint að lög­gjaf­anum, því hvernig Alþingi og stjórn­völdum hefur mis­tek­ist að koma böndum á starf­semi smá­lána­fyr­ir­tækja. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár