Bjarga sér með smálánum í samkomubanni

Eftir að starf­semi hjálp­ar­stofn­ana lagð­ist að mestu af vegna sam­komu­banns í kjöl­far auk­innar útbreiðslu COVID-19 hafa margir öryrkjar ekki aðrar leiðir til að sjá fyrir sér og sínum en að taka smá­lán

Bjarga sér með smálánum í samkomubanni
Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir Mynd: Öryrkjabandalag Íslands

Öryrkjar taka smá­lán í auknum mæli eftir að starf­semi hjálp­ar­stofn­ana lagð­ist að mestu af vegna sam­komu­banns í kjöl­far auk­innar útbreiðslu COVID-19.  Nú, þegar hjálp­ar­sam­taka nýtur ekki við, kemur ber­lega í ljós hversu illa er búið að fólki í þessum hóp. Þetta segir Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir for­maður Öryrkja­banda­lags­ins. Hún segir að stjórn­völd hafi mark­visst útvi­stað vel­ferð­ar­kerf­inu til frjálsra félaga­sam­taka og fjöl­skyldna öryrkja.

„Það er búið að loka meira eða minna fyrir allt hjálp­ar­starf eftir að sam­komu­bann var sett,“ segir Þuríður Harpa. „Og núna, þegar búið er að taka allar þessar leiðir í burtu, blasir við hvað fátæktin er mikil. Stór hluti af örorku­líf­eyri fólks fer í hús­næði og fólk í þessum hópi þarf að leita allra leiða til að eiga í sig og á og stólar í mörgum til­vikum alger­lega á mat­ar­gjafir hjálp­ar­sam­taka. Nú er búið að taka allar þessar bjargir í burtu og það kemur ekk­ert í stað­inn.“

Bág kjörÖryrkjar taka nú smá­lán í auknum mæli eftir að starf­semi hjálp­ar­stofn­ana lagð­ist að mestu af. Þetta segir Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir for­maður Öryrkja­banda­lags­ins.

Í umsögn Öryrkja­banda­lags­ins við nýju fjár­auka­lögin er gagn­rýnt að ekki sé brugð­ist við stöðu örorku­líf­eyr­is­þega. „Bjargir þess­ara ein­stak­linga sem berj­ast í bökkum, heilsu­lausir og/eða fatl­aðir, eru ýmsar hjálp­ar­stofn­anir sem úthluta mat­ar­gjöfum, sumir búa að því að ætt­ingjar reyni eftir fremsta megni að aðstoða með því að færa björg í bú, þó flestir eiga nóg með sig, segir í umsögn­inni.

Í sjálfskipaðri sóttkví vegna undirliggjandi sjúkdóma

Þar segir einnig að það sé skylda stjórn­valda á meðan COVID-19 far­ald­ur­inn standi yfir að horfa sér­stak­lega til þeirra sem bág­ast standa í sam­fé­lag­inu. Örorku­líf­eyrir sé í sögu­legu lág­marki langt undir fram­færslu­við­miðum, að því er fram kemur í umsögn­inni. Þá er þar lagt til að stað þess að leggja 3,1 millj­arða króna í sér­stakan barna­bóta­auka fyrir for­eldra óháð tekjum, verði þeirri upp­hæð varið í beinan stuðn­ing til lág­tekju­fólks á leigu­mark­aði með  sér­stökum hús­næð­is­bóta­auka og tryggt verði að lág­tekju­fólk fái greiddar vaxta­bætur.

„Fólk í þessum hópi getur að öllu jöfnu ekki pantað mat á net­inu, ein­fald­lega vegna þess að það hefur ekki efni á því“ 

Þuríður Harpa segir að í síð­ustu viku hafi verið gerð könnun meðal for­manna aðild­ar­fé­laga Öryrkja­banda­lags­ins um áhrif COVID-19 far­ald­urs­ins á félags­menn. Svör flestra voru á þann veg að vart yrði við miklar áhyggjur hjá fólki. Mörg félag­anna, einkum þau stærri, hefðu aukið við ráð­gjöf sína vegna mik­illar eft­ir­spurnar. Þá væri tals­vert um það meðal öryrkja að þeir færu í sjálf­skip­aða sótt­kví, en margir væru með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma og því í áhættu­hópi.

Vítahringur sem erfitt er að komast út úr

„Fólk í þessum hópi getur að öllu jöfnu ekki pantað mat á net­inu, ein­fald­lega vegna þess að það hefur ekki efni á því. Margir hafa lítið stuðn­ings­net og engan til að aðstoða sig og ég þekki nokkur dæmi um að öryrkjar hafi þurfi að fara í sótt­kví en geti ekki verið í henni heima hjá sér vegna þess að þar er veikur ein­stak­lingur. Þeir þurfa þá að leigja hús­næði og greiða fyrir með smá­láni eða net­gíró og þannig mynd­ast víta­hringur sem getur verið gríð­ar­lega erfitt að kom­ast út úr,“ segir Þuríður Harpa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár