Sækjast eftir að kaupa vændi þrátt fyrir faraldurinn

Eft­ir­spurn eftir vændi á Íslandi hefur ekki minnkað, þrátt fyrir COVID-19 far­ald­ur­inn og nánd­ar­reglu, að sögn Stíga­móta. Konur í vændi eru í erf­iðri stöðu vegna tekju­taps, ótt­ast smit og flytja jafn­vel aftur inn til ofbeld­is­manna.

Sækjast eftir að kaupa vændi þrátt fyrir faraldurinn
Vændi Mynd: Shutterstock

Konur í vændi á Íslandi hafa þolað tekju­tap vegna COVID-19 far­ald­urs­ins og ótt­ast smit frá kúnnum ef þær mundu brjóta nánd­ar­reglu til að vinna áfram. Ekkert lát er þó á eft­ir­spurn­inni frá kúnnum, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Stíga­mótum.

Víða um heim hefur staða fólks sem starfar við vændi þrengst vegna far­ald­urs­ins, bæði í þeim löndum þar sem vændi er lög­legt og þar sem það er ólög­legt að öllu leyti eða að hluta, eins og á Íslandi. Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa bent á þau vanda­mál sem fólk í vændi glímir við þessa dag­ana og hvernig tekju­tap þeirra leiði bæði til fátæktar og hrak­andi and­legrar heilsu. Þessi hópur sé gjarnan á jaðr­inum á sam­fé­lag­inu, án sterks örygg­is­nets, og njóti ekki góðs af þeim aðgerðum sem stjórn­völd ráð­ast í til að styðja við fyr­ir­tæki eða ein­stak­linga.

Frá 2009 hefur lög­gjöf um vændi á Íslandi verið háttað sam­kvæmt „sænsku leið­inni“ svoköll­uðu. Með breyt­ing­unni urðu kaup á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár