Ríkið greiðir uppsagnarfrest og framlengir hlutabætur

Hluta­bóta­leiðin verður fram­lengd út júní í núver­andi mynd og síðan í breyttri mynd út ágúst. Fyr­ir­tæki fá stuðn­ing frá rík­inu til að greiða atvinnu­leys­is­bætur og þeim verður gert auð­veld­ara fyrir að end­ur­skipu­leggja sig fjár­hags­lega. Þetta er meðal þeirra leiða sem rík­is­stjórnin kynnti á blaða­manna­fundi nú í hádeg­inu til að mæta vanda þeirra fyr­ir­tækja sem hafa orðið fyrir miklu tekju­tapi vegna kór­óna­veiru­far­ald­urs­ins.

Ríkið greiðir uppsagnarfrest og framlengir hlutabætur
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra Hún sagði á fund­inum að hluta­bóta­leiðin væri mik­il­væg­asta aðgerðin sem hægt hefði verið að ráð­ast í. Mynd: RÚV

Fyr­ir­tæki fá stuðn­ing frá rík­inu til að greiða atvinnu­leys­is­bætur og gild­is­tími hluta­bót­anna verður fram­lengdur út júní í núver­andi mynd og síðan í breyttri mynd út ágúst. Þetta er meðal þeirra leiða sem rík­is­stjórnin kynnti á blaða­manna­fundi nú í hádeg­inu til að mæta vanda þeirra fyr­ir­tækja sem hafa orðið fyrir miklu tekju­tapi vegna kór­óna­veiru­far­ald­urs­ins. Þá fá fyr­ir­tæki fá stuðn­ing frá rík­inu til að greiða atvinnu­leys­is­bætur. 

Aðgerð­irnar voru ræddar á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í morgun. Þetta er þriðji aðgerða­pakk­inn sem kynntur er. Sá síð­asti, sem kynntur var í síð­ustu viku, var tals­vert gagn­rýndur, einkum af aðilum í ferða­þjón­ustu sem töldu ekki nóg að gert.

„Það er alger­lega ljóst að þetta úrræði hefur nýst gríð­ar­lega vel,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra  um hluta­bóta­úr­ræðið er hún kynnti aðgerð­irnar, en  35.000 laun­þegar hafa nýtt sér úrræðið. „Þetta er mik­il­væg­asta aðgerðin sem við hefðum getað ráð­ist í, “ sagði Katrín enn fremur.

„Þetta er mik­il­væg­asta aðgerðin sem við hefðum getað ráð­ist í“

Hún sagði að af þessum 35.000 væru 14.000 í ferða­tengdum starfs­greinum. Núver­andi fyr­ir­komu­lag á hluta­bóta­leið­inni, sem átti að gilda út maí, verður fram­lengt um mánuð eða út júní. Þá verður fyr­ir­komu­lagi þess breytt þannig að úrræðið nær yfir fólk sem er í 50% starfi hið minnsta, í stað 25% nú, og þannig verði það út ágúst. „Við munum líka setja nán­ari skil­yrði fyrir úrræð­inu,“ sagði Katrín.

Aðstoð við fjárhagslega endurskipulagningu

Aðgerð númer tvö sem kynnt var á fund­inum var að fyr­ir­tækjum verður gert auð­veld­ara fyrir að end­ur­skipu­leggja sig fjár­hags­lega. Byggt verður á núgild­andi grunn­reglum en breyt­ingar miða að því að fyr­ir­tæki geti kom­ist í skjól á ein­faldan hátt á meðan verið er að meta stöðu þeirra og uns meiri vissa fæst um fram­tíð­ar­horfur. Breyt­ingar lúta meðal ann­ars að skil­yrðum fjár­hags­legrar end­ur­skipu­lagn­ingar, beiðni og umfjöllun um hana, tíma­frestum, heim­ildum til ráð­staf­ana og rift­unar- og van­efnda­heim­ildum við­semj­enda.

Aðstoð við að greiða uppsagnarfrest

Þriðja aðgerðin felur í sér stuðn­ing til fyr­ir­tækja til að greiða starfs­fólki þriggja mán­aða upp­sagn­ar­frest og orlof. Stuðn­ing­ur­inn verður að hámarki 633.000 krónur á mán­uði og verður tak­mark­aður við fyr­ir­tæki sem hafa misst 75%  tekna sinna eða meira. Til­gangur þessa er að tryggja rétt­indi launa­fólks og forða gjald­þrotum eins og kostur er. Hámarks­hlut­fall stuðn­ings rík­is­ins verður 85%. 

For­sæt­is­ráð­herra sagði að áætlað væri að um fjórð­ungur fyr­ir­tækja hefði orðið fyrir slíku tekju­tapi. Þá muni starfs­menn eiga for­gang til starfs þegar starf­semi hefst að nýju og halda til­teknum áunnum rétt­indum. Sett verði nán­ari skil­yrði, til að mynda um rekstr­ar­hæfi fyr­ir­tækis, fyrir aðild að þessu úrræði og um end­ur­kröfu­rétt. Leiðin er í boði frá 1. maí til 30. sept­em­ber. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hlutabótaleiðin

Guðlaugur Þór hefur vikið af ríkisstjórnarfundum vegna umfjöllunar um hagsmunatengsl við Bláa Lónið
Fréttir

Guð­laugur Þór hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umfjöll­unar um hags­muna­tengsl við Bláa Lónið

Utan­rík­is­ráð­herra er eini ráð­herr­ann sem hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umræðna um efna­hags­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna Covid-19. Fjöl­skylda Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á einnig ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem hefur nýtt sér úrræði stjórn­valda vegna Covid-19.
Matvælafyrirtæki með eignarhaldi í skattaskjóli nýtti hlutabótaleiðina
FréttirHlutabótaleiðin

Mat­væla­fyr­ir­tæki með eign­ar­haldi í skatta­skjóli nýtti hluta­bóta­leið­ina

Mat­væla­fyr­ir­tækiið Mata, sem er eígu eign­ar­halds­fé­lags­fé­lags á lág­skatta­svæð­inu Möltu sem sagt er hafa öll ein­kenni skatta­skjóls, setti 20 starfs­menn á hluta­bóta­leið­ina. Fram­kvæmda­stjór­inn, Eggert Árni Gíslason vill ekki ræða um eign­ar­haldið á Möltu en segir að engin skil­yrði vegna eign­ar­halds hafi verið á notkun hluta­bóta­leið­ar­innar.
Einkarekið lækningafyrirtæki nýtti hlutabótaleiðina eftir 450 milljóna arðgreiðslur
FréttirHlutabótaleiðin

Einka­rekið lækn­inga­fyr­ir­tæki nýtti hluta­bóta­leið­ina eftir 450 millj­óna arð­greiðslur

Tekjur röntgen­lækna­fyr­ir­tæk­is­ins Íslenskrar mynd­grein­ingar dróg­ust nær alveg saman í apríl í miðjum COVID-19 far­aldr­inum. Fram­kvæmda­stjór­inn segir að tekju­fall og flutn­ingar hafi gert það að verkum að félagið hafi neyðst til að fara hluta­bóta­leið­ina. Fyr­ir­tækið hefur verið ofar­lega á lista yfir arð­söm­ustu fyr­ir­tæki lands­ins hjá Credit Info.
Hótelkeðja fjölskyldu Hreiðars Más sem fjármögnuð var úr skattaskjóli nýtir hlutabótaleiðina
FréttirHlutabótaleiðin

Hót­el­keðja fjöl­skyldu Hreiðars Más sem fjár­mögnuð var úr skatta­skjóli nýtir hluta­bóta­leið­ina

Hót­el­keðjan Gistiver ehf. nýtir hluta­bóta­leið­ina eins og mörg önnur hótel á Íslandi hafa gert í kjöl­far COVID-19. Hreiðar Már Sig­urðs­son og Anna Lísa Sig­ur­jóns­dóttir eiga hót­el­keðj­una og var hún fjár­mögnuð í gegnum Lúx­em­borg og Tortóla. Sjóður Stefnis hýsti eign­ar­haldið en þessum sjóði hefur nú verið slitið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár