Samfélagið er í sameiginlegu áfalli

„Afleið­ing­arnar til lengri tíma eru ófyr­ir­sjá­an­legar,“ segir Nanna Briem, geð­læknir og for­stöðu­maður geð­þjón­ustu Land­spít­ala. Sjaldan eða aldrei hefur verið jafn mik­il­vægt að huga að geð­heilsu eins og nú, segir Berglind Guð­munds­dóttir, yfir­sál­fræð­ingur á Land­spít­ala og pró­fessor við HÍ. Gert er ráð fyrir auknu álagi í geð­heil­brigð­is­kerf­inu eftir að far­aldr­inum linnir.

Samfélagið er  í sameiginlegu áfalli
Nanna Briem og Berglind Guð­munds­dóttir Aldrei hefur verið jafn mik­il­vægt að huga að geð­heilsu eins og nú, á tímum COVID-19 far­ald­urs­ins segja Nanna Briem, geð­læknir og for­stöðu­maður geð­þjón­ustu Land­spít­ala, og Berglind Guð­munds­dóttir, yfir­sál­fræð­ingur á Land­spít­ala og pró­fessor við Lækna­deild Háskóla Íslands. Mynd: Heiða Helgadóttir

Aldrei hefur verið jafn mik­il­vægt að huga að geð­heilsu eins og nú, á tímum COVID-19 far­ald­urs­ins. Ýmsir þættir dag­legs lífs, sem hingað til hafa verið sjálf­sagðir, fela nú í sér flókna ákvarð­ana­töku og gera má ráð fyrir auknu álagi í geð­heil­brigð­is­kerf­inu eftir að far­aldr­inum linnir. Þetta segja Nanna Briem, geð­læknir og for­stöðu­maður geð­þjón­ustu Land­spít­ala, og Berglind Guð­munds­dóttir, yfir­sál­fræð­ingur á Land­spít­ala og pró­fessor við Lækna­deild Háskóla Íslands. Afar mik­il­vægt sé að hlúa að and­legri líðan og geð­heilsu starfs­fólks Land­spít­ala, sem hafi aldrei verið undir jafn miklu álagi.

Nú hafa 1.785 ein­stak­lingar greinst með COVID-19. Þessir ein­stak­lingar hafa þurft að vera í ein­angrun inni á heim­ili sínu eða takast á við veik­indin á spít­ala. Því til við­bótar hafa 18.425 verið í sótt­kví vegna hættu á smiti. Sam­komu­bann hefur verið í gildi frá 13. mars. 

„Hræðslan við smit og áhyggjur af fjár­hags­legum afleið­ingum er eitt, annað eru þær miklu sam­fé­lags­legu breyt­ingar sem hafa …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár