Íslenskur strákur segir asíska konu vera kórónuveiruna: „Mig langar að gráta“

Myndband sem birt var á TikTok vakti mikla reiði. Vilja finna konu sem varð fyrir for­dómum og knúsa hana.

Myndband sem birt var á TikTok í gær­kvöldi vakti mikla reiði. Í mynd­band­inu segir íslenskur strákur við konu af asískum upp­runa: „You are coronavirus,“ eða þú ert kór­óna­veiran. Konan mót­mælir því, seg­ist búa á Íslandi og vera góð mann­eskja en hann heldur áfram: „No, you are coronavirus,“ eða nei, þú ert kór­óna­veiran. 

Mynd­bandið fékk væg­ast sagt hörð við­brögð á sam­skipta­for­rit­inu þar sem aðrir not­endur TikTok for­dæmdu rasíska og van­virð­andi fram­komu stráks­ins gagn­vart kon­unni. 

„Mig langar að gráta, þetta er svo ljótt“

Sam­fé­lags­miðla­stjarnan Binni Glee var einn þeirra sem lét sig málið varða og end­ur­birti mynd­bandið með þessum orðum: „Já, þetta er íslenskur strákur að tala við mögu­lega túrista á Íslandi. Ég er svo reiður og sár. Þetta er ástæðan af hverju við þurfum að tala og fræða meira um ras­isma á Íslandi og bara í heim­inum. Mig langar að gráta, þetta er svo ljótt. Greyið konan og bara allir sem verða fyrir ras­isma í líf­inu og sér­stak­lega núna út af veirunni. Líka bara að pósta þessu á Tik Tok sem fyndið mynd­band. Þetta er ekki svartur húmor, þetta er ras­ismi.“

Undir færslu hans svarar strák­ur­inn sem póstaði mynd­band­inu: „Ahhahahahaha,“ og Binni biður hann um að þroskast. 

Mynd­band­inu var að lokum eytt út af TikTok, kín­versku sam­skipta­for­riti þar sem fólk deilir örstuttum mynd­böndum af sér. Almennt eru mynd­böndin af fólki sem er að skemmta sér eða öðrum, með dansi, gríni eða almennu glensi. Sam­skipta­for­ritið er sér­stak­lega vin­sælt á meðal ungs fólks. 

Mynd­band­inu var líka deilt inn á Facebook-hóp­inn Beauty Tips með þeim orðum að þetta væri ekki í lagi. Þar stóð ekki heldur á við­brögð­unum: „Án gríns, mig langar að finna þessa konu og knúsa hana. Þetta er ógeðs­legt,“ sagði ein og fleiri taka í sama streng: „Er algjör­lega orð­laus, af hverju kemur fólk svona illa fram við hvert annað? Langar að knúsa þessa konu.“

„Langar að knúsa þessa konu“

Ein seg­ist vera af asískum upp­runa: „Sem Asíubúi þá hafði ég smá áhyggjur af því að lenda í svona leið­indum, sér­stak­lega eftir að lesa greinar um fólk sem er rasískt gagn­vart Asíubúim vegna Covid-19, til dæmis í USA, Bret­landi og víðar. Langar að gefa þess­ari konu knús,“ segir hún og bætir því við: Þetta er veira, ekki kyn­þáttur.“ 

Alþjóða­stofn­anir á borð við Unicef og Amnesty International hafa varað við vax­andi for­dómum vegna veirunnar. Í yfir­lýs­ingu sem Unicef birti fyrr á árinu sagði að ótti við vírus­inn væri líka að ala á for­dómum og mis­munun gagn­vart hópum í við­kvæmri stöðu: „Þetta er algjör­lega óásætt­an­legt. Við munu halda áfram að vinna á vett­vangi við að lág­marka óbein áhrif far­ald­urs­ins á börn og spyrna við for­dómum og til­raunum til að brenni­merkja fólk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár