Flytja þurfti heila deild á Landspítala

Meðal þeirra breyt­inga sem hefur þurft að gera á starf­semi Land­spít­ala vegna COVID-19 far­ald­urs­ins er að flytja þurfti heila deild, B-7, vegna návígis við smit­sjúk­dóma­deild. Gerður Beta Jóhanns­dóttir deild­ar­stjóri segir að það sé við aðstæður sem þessar sem sá auður, sem býr í starfs­fólk spít­al­ans, komi virki­lega í ljós.

Flytja þurfti heila deild á Landspítala
Gerður Beta Flytja þurfti starf­semi B-7 deild­ar­innar vegna návígis hennar við smit­sjúk­dóma­deild Land­spít­ala.

Tals­verðar breyt­ingar hafa verið gerðar á starf­semi og skipu­lagi Land­spít­ala vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Meðal ann­ars þurfti að flytja heila deild, B-7, vegna návígis við smit­sjúk­dóma­deild. Deild­ar­stjóri segir að það sé við aðstæður sem þessar sem sá auður, sem býr í starfs­fólk spít­al­ans, komi virki­lega í ljós.

B-7 er dag­deild gigt­lækn­inga á Land­spít­ala Fossvogi og þangað leita gigt­ar­sjúk­lingar meðal ann­ars til að fá lyf í æð. Slík lyf eru gefin fólki í sér­stökum lyfja­gjafa­stólum sem að öllu jöfnu eru 24 tals­ins. Deildin var nýverið flutt af 3. hæð á 1. hæð, í rými sem áður var nýtt til sjúkra­þjálf­unar, en veru­lega hefur dregið úr slíkri þjón­ustu vegna sam­komu­banns.

„Þetta var fyrst og fremst gert til að vernda starf­sem­ina,“ segir Gerður Beta Jóhanns­dóttir deild­ar­stjóri B-7. „En við höfum ekki pláss fyrir nema 13 stóla, bæði erum við í minna hús­næði og við þurfum að tryggja tveggja metra fjar­lægð á milli fólks sem kemur til okkar.“

Lyfja­gjafa­stóllFækka þurfti slíkum stólum úr 24 í 13 þegar flytja þurfti deild­ina.

Reyna að koma í veg fyrir lengri biðlista

Um 900 manns eru í reglu­legri með­ferð á deild­inni og árlegar komur á deild­ina eru yfir 10.000. Spurð hvort þessi fækkun stóla hafi í för með sér að biðlistar mynd­ist eftir lyfja­gjöf svarar Gerður Beta að svo sé ekki. „Að minnsta kosti ekki ennþá og við munum gera allt sem við getum til að svo verði ekki.  Við tökum á móti fleiri hópum yfir dag­inn og höfum lengt opn­un­ar­tím­ann. Það hefur auð­vitað í för með sér aukið álag á starfs­fólkið, en það voru allir til­búnir til að leggja meira af mörkum til að láta þetta ganga upp.“

Önnur breyt­ing sem gerð hefur verið á starf­semi deild­ar­innar er að hluti þjón­ust­unnar fer nú fram sím­leiðis og Gerður Beta segir það hafa gefið góða raun. Viðhafa þurfi miklar var­úð­ar­ráð­staf­anir á deild­inni, þar sem þeir sem hana sæki séu sér­lega við­kvæmir. „Við hringjum í alla dag­inn áður en þeir eiga að koma í með­ferð til okkar og spyrjum örygg­is­spurn­inga til að tryggja að eng­inn komi til okkar sem gæti hafa orðið útsettur fyrir COVID-smiti.“

Gerður Beta Jóhanns­dóttir deild­ar­stjóri á B-7„Þetta hefur í raun gengið eins og í sögu með ótrú­legri lagni og fag­mennsku starfs­fólks deild­ar­innar,“ segir hún.

Deildin er enn­fremur reiðu­búin til að taka á móti fólki í lyfja­gjöf sem er í sótt­kví en hefir ekki greinst með COVID-smit.

Smitaðir gigt­ar­sjúk­ingar, sem þurfa á  lyfja­gjöf að halda, fá hana á öðrum stöðum á spít­al­ans og sá hluti starf­semi deild­ar­innar, sem snýr að rann­sóknum hefur verið færð á aðrar deildir spít­al­ans, meðal ann­ars hjarta­deild.

Umfangsmikið verkefni

Gerður Beta segir að vissu­lega sé það nokkuð umfangs­mikið verk­efni að flytja heila deild um set. „Þetta hefur í raun gengið eins og í sögu með ótrú­legri lagni og fag­mennsku starfs­fólks deild­ar­innar. Við erum ákveðin í að láta þetta ganga upp, það er ekk­ert annað í  stöð­unni. Allir eru lausn­a­mið­aðir og á svona stundum kemur í ljós því­líkur mannauður starfar hér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár