Gjafir streyma inn á Landspítalann

„Ég held að fá orð fái lýst því hvað við erum þakk­lát,“ segir Benedikt Olgeirs­son á Land­spít­al­anum. Setja þurfti af stað sér­stakt verk­efni og vef­síðu til að taka við gjöfum og erindum. Spít­al­inn fær allt frá orku­drykkjum og orku­stöngum til önd­un­ar­véla og þá er tals­vert um að spít­al­anum ber­ist fé úr stórum og smáum söfn­unum og boð um ýmis konar aðstoð.

Gjafir streyma inn á Landspítalann
COVID-19 Land­spít­ali er undir miklu álagi í veiru­far­aldr­inum og margir bjóða spít­al­anum aðstoð á ýmsa vegu. Mynd: Landspítali / Þorkell Þorkelsson

Land­spít­ala berst nú fjöldi gjafa af ýmsum toga og úr mörgum áttum; allt frá orku­drykkjum og orku­stöngum til önd­un­ar­véla og þá er tals­vert um að spít­al­anum ber­ist fé úr stórum og smáum söfn­unum og boð um ýmis konar aðstoð.

Benedikt Olgeirs­sonHann leiðir að öllu jöfnu upp­bygg­ingu Land­spít­ala­þorps­ins og með­ferð­ar­kjarna spít­al­ans, en lagði það verk­efni til hliðar tíma­bundið. Hann segir það eiga við um fleiri starfs­menn spít­al­ans sem nú sinni verk­efnum sem teng­ist COVID-19 far­aldr­inum.

Margir hugsa greini­lega hlýtt til Land­spít­ala þessa dag­ana, enda gríð­ar­legt álag á starf­sem­inni vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. „Það er greini­legt að þjóðin er öll saman í þessu,“ segir Benedikt Olgeirs­son sem stýrir verk­efn­inu Stöndum með Land­spít­ala, en sam­nefnd vef­síða var opnuð á vef spít­al­ans til að halda utan um þann fjölda erinda sem berst víðs vegar að með boðum um aðstoð og gjafir. 

Allt samfélagið er með í þessu

Að sögn Bene­dikts koma gjaf­irnar bæði frá ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum. „Við fengum 15 önd­un­ar­vélar að gjöf fyrir skömmu. Við fáum tals­vert af orku­gef­andi mat­vöru eins og til dæmis bústi og orku­stöngum handa starfs­fólk­inu sem er afskap­lega vel þegið. Fólk, sem er með góð alþjóð­leg við­skipta­sam­bönd, hefur sam­band og býðst til að vera okkur innan handar við kaup á tækjum og bún­aði og verk­fræði­menntað fólk býðst til að aðstoða okkur við ýmsar lausnir sem fylgja þeim breyt­ingum sem hefur þurft að gera á spít­al­anum. Svo hafa inn­lendir fram­leið­endur verið í sam­bandi og boðið okkur vöru sína. Það er greini­legt að allt sam­fé­lagið er með okkur í þessu.“

Læknar eiga sjúklingasamtöl með spjaldtölvum

Benedikt segir að margir vilji aðstoða spít­al­ann við tækja­kaup og fyrir til­stuðlan þess hefur spít­al­inn meðal ann­ars keypt tals­vert af litlum spjald­tölvum fyrir lækna. „Þær eru svo litlar að þær passa vel í vas­ann á læknasloppnum og sýna skýrar og góðar myndir sem nýt­ast vel í klínísku starfi . Með þeim geta læknar átt mynd­sím­töl við sjúk­linga og þurfa þá ekki að fara inn á stof­urnar til þeirra í þeim til­vikum sem um COVID-19 smit er að ræða.“

Benedikt leiðir að öllu jöfnu upp­bygg­ingu Land­spít­ala­þorps­ins og með­ferð­ar­kjarna spít­al­ans, en lagði það verk­efni til hliðar tíma­bundið. Hann segir það eiga við um fleiri starfs­menn spít­al­ans sem nú sinni verk­efnum sem teng­ist COVID-19 far­aldr­inum. „Land­spít­ali er undir miklu álagi, við höfum þurft að gjör­bylta starf­sem­inni að sumu leyti á skömmum tíma. Það eru allar deildir spít­al­ans að vinna að því með einum eða öðrum hætti að kom­ast í gegnum far­ald­ur­inn á sem bestan hátt og á sama tíma þurfum við að halda sjó með aðra starf­semi og aðra sjúk­linga­hópa. Það er gríð­ar­legt álag á starfs­fólk í fram­línu en það er líka aukið álag á fólk í stoð­deildum. Meðal ann­ars hefur upp­lýs­inga­tækni­deildin okkar unnið í að þróa nýjan hug­búnað til að styðja við þessar gjör­breyttar aðstæður.“

„Ég held að fá orð fái lýst því hvað við erum þakk­lát“

Benedikt segir ljóst að Land­spít­ali eigi marga og góða vini.  „Það er afskap­lega jákvætt að finna þennan hlý­hug, spít­al­inn er undir mklu álagi, mikið álag á öllum stoð­ein­ingum.  Ég held að fá orð fái lýst því hvað við erum þakk­lát fyrir þann sam­hug sem við finnum,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár