Falskar fréttir um COVID-19 dreifast milli fólks

Að þurrka hend­urnar með hár­þurrku, þamba áfengi eða halda niðri í sér and­anum er engin vörn gegn COVID-19 smiti, Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin WHO og breska rík­is­stjórnin vara við fölskum full­yrð­ingum um veiruna. Trine Bramsen, varn­ar­mála­ráð­herra Dan­merkur segir að öfga­hópar muni not­færa sér ástandið til að breiða út fals­fréttir.

Falskar fréttir um COVID-19 dreifast milli fólks
COVID-19 Ýmsir vara við fals­fréttum um COVID-19, meðal þeirra eru Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin WHO og breska rík­is­stjórnin. Mynd: Shutterstock

Í skugga COVID-19 far­ald­urs­ins þríf­ast fals­fréttir og rangar stað­hæf­ingar. Þetta full­yrða Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin WHO og breska rík­is­stjórnin sem sjá ástæðu til að vara við fölskum full­yrð­ingum um COVID-19 veiruna. Trine Bramsen, varn­ar­mála­ráð­herra Dan­merkur segir að öfga­hópar muni not­færa sér ástandið til að breiða út fals­fréttir.

Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin varar nú við full­yrð­ingum um að granda megi veirunni með því að bera hend­urnar undir raf­magns­hand­þurrku. Í til­kynn­ingu WHO sem birt var á Twitter segir að full­yrð­ingar þessa efnis, sem farið hafi víða á sam­fé­lags­miðlum, séu skað­legar. „Hjálp­umst að við að stöðva útbreiðslu rangra upp­lýs­inga,“ segir í Twitter-færslu WHO. „Kannið sann­leiks­gildi áður en þið deilið.“

Og Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin sér ástæðu til að kveða fleiri töfra­ráð í kút­inn. Meðal ann­ars að óhóf­leg áfeng­is­neysla drepi veiruna og það, að halda niðri í sér and­anum í tíu sek­úndur, geri það líka. 

Trine BramsenVarn­ar­mála­ráð­herra Dan­merkur varar við dreif­ingu fals­frétta.

„Það er fyllsta ástæða til að hafa miklar áhyggjur,“ segir Trine Bramsen, varn­ar­mála­ráð­herra Dan­merkur, í við­tali við Jyllands-Posten. „Það leikur eng­inn vafi á að stór­veldi muni nýta sér krísu­ásandið. Það er meðal ann­ars hætta á útbreiðslu vís­vit­andi rangra upp­lýs­inga sem geta skaðað orð­stí Dan­merkur og haft nei­kvæð áhrif á við­skipti og ferða­þjón­ustu,“ segir Bramsen.

Hún segir að sér sé kunn­ugt um falsað mynd­skeið, sem sé í dreif­ingu í Kína, sem sýni dönsk skóla­börn syngja níð­vísur um Kína.

Í sama streng taka yfir­menn leyni­þjón­usta og örygg­is­lög­reglu Noregs og Sví­þjóðar í umfjöllun Jyllands-Posten. Þeir segj­ast hafa orðið varir við að öfga­hópar nýti sér ástandið.

Stofna deild gegn falsfréttum og -tölvupóstum

Breska rík­is­stjórnin hefur nú skorið upp herör gegn fals­fréttum um COVID-19 og fals­tölvu­póstum sem sendir eru til fólks með allskyns mis­vísandi upp­lýs­ingum og lof­orðum um lækn­ingu og hefur sér­stakri deild verið komið á fót innan breska stjórn­kerf­is­ins til að leið­rétta rangan frétta­flutn­ing af veirusmit­inu. 

Í til­kynn­ingu, sem breska rík­is­stjórnin sendi frá sér í gær, segir að deildin kall­ist The Rapid Response Unit, í henni starfi sér­fræð­ingar í stjórn­sýslu og tölvu­málum, hún starfi undir for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og meðal verk­efna hennar er að bera kennsl á fals­fréttir, hafa sam­band við þær efn­isveitur sem birta slíkt efni og fræða almenn­ing um hvernig bera megi kennsl á slíkar fréttir. Þá mun deildin starfa með heil­brigð­is­kerf­inu við að koma á fram­færi réttum upp­lýs­ingum um veiruna og ráðum til að koma í veg fyrir sýk­ingar. 

Í samstarfi við samfélagsmiðla

Í til­kynn­ingu bresku rík­is­stjórn­ar­innar segir að í hverri viku ber­ist stjórn­völdum um 70 til­kynn­ingar um mis­vísandi og jafn­vel hættu­legar fréttir og umfjall­anir. Þar er haft eftir Oliver Dowden, menn­ing­ar­mála­ráð­herra Breta, að rík­is­stjórnin eigi nú í sam­starfið við ýmsa sam­fé­lag­miðla og að hann muni þrýsta á þá til að grípa til frek­ari aðgerða til að koma í veg fyrir rang­færslur og fals­fréttir sem gætu kostað manns­líf. 

Ekki hægt að prófa sjálfan sig

„Það er ekki hægt að prófa sjálfan sig fyrir COVID-19 með því að halda niðri í sér and­anum í tíu sek­úndur,“ segir Penny Mordaunt, ráð­herra í bresku rík­is­stjórn­inni. 

„Og það er ekki hægt að lækna veik­ina með því að skola kverkarnar með vatni í 15 sek­úndur. Þetta er sá falski frétta­flutn­ingur sem við höfum séð koma frá þeim sem full­yrða að þeir séu sér­fræð­ingar í heil­brigði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár