Sólveig starfar á smitsjúkdómadeild: „Ég hef stundum grátið“

Sólveig Gylfa­dóttir er stolt af því að starfa á smit­sjúk­dóma­deild nú þegar kór­óna­veiran herjar á. Stars­fólkið leggi sig fram um að vera upp­lífg­andi og gera það besta úr aðstæð­unum. „Það hlýtur að vera erfitt að vera í þeirra sporum þar sem við komum alltaf upp­á­klædd eins og geim­farar inn til þeirra.“

Sólveig starfar á smitsjúkdómadeild: „Ég hef stundum grátið“

Sólveig Gylfa­dóttir vinnur á smit­sjúk­dóma­deild og segir starfið allt í senn gef­andi, krefj­andi og erfitt á köflum: „Ég við­ur­kenni að ég hef stundum grátið“. 

Nú séu skrítnir tímar, en það fylli hana stolti og gleði að vinna á smit­sjúk­dóma­deild, því hún treysti sér til að gefa sig alla að skjól­stæð­ingum sínum þar. „Það hlýtur að vera erfitt að vera í þeirra sporum þar sem við komum alltaf upp­á­klædd eins og geim­farar inn til þeirra. Ég reyni eftir bestu getu að vera upp­lífg­andi og gleðja, auk þess reyna sýna sam­hygð og hlýju, sem og læt skjól­stæð­ing­ana mína vita að ég sé til staðar fyrir þá sama hvað.“

Aðlagast breyttum aðstæðum

Starfs­fólk smit­sjúk­dóma­deildar eru hetjur, segir hún. Þar þurfi starfs­fólk að laga sig að breyttum aðstæðum en allir séu til­búnir til að leggja á sig ómælda vinnu til að tryggja að allt gangi vel.

„Við erum hér fyrir þig“ 

„Enn er auð­vitað mikil óvissa hvað verður og hversu margir veikj­ast alvar­lega og þurfa inn­lögn.“ Starfsand­inn sé engu að síður sterk­ari en aldrei fyrr og starfs­liðið til­búið til að mæta því sem koma skal. Far­ald­ur­inn sé þrátt fyrir allt tíma­bundið ástand.„Við erum hér fyrir þig.“ 

Færir persónulegar fórnir

Sjálf hafi hún þurft að færa fórnir, hún hafi tekið ákvörðun um að hitta hvorki vini né fjöl­skyldu á meðan far­ald­ur­inn gengur yfir, ekki nema maka sinn, dóttur og stjúp­son. Aðra hitti hún ekki, ekki einu sinni for­eldra sína eða nán­ustu fjöl­skyldu. 

„Þar sem ég er í fram­línu get ég ekki verið að veikj­ast.“

Hún vill heldur ekki taka áhættu af því að hafa smit­ast í gegnum starfið og smita síðan aðra. Þá sé betra að loka á allt félags­líf um óákveð­inn tíma. 

Samningslaus stétt

„Hjúkr­un­ar­fræð­ingar fórna ýmsu fyrir vinn­una,“ segir hún um leið og hún bendir á að þeir séu samn­ings­lausir. „Þessi mik­il­væga stétt gerir allt fyrir sam­fé­lagið en ríkið getur ekki séð sóma sinn í að semja um mann­sæm­andi laun fyrir ábyrgð, tryggð og þá ástríðu sem hjúkr­un­ar­fræð­ingar leggja í störf sín. Eitt sem ég veit er að ef ekki verður samið til hins betra mun verða flótti úr stétt­inni.“

Skrítnir tímar á smitsjúkdómadeild 

Þetta eru svo sann­ar­lega skrítnir tímar.

Að vera vinna uppá smit­sjúk­dóma­deild á þessum tíma fyllir mig miklu stolti og gleði að vissu leyti. Afþví ég treysti mér til og vil gefa mig alla í að sinna þessum skjól­stæð­inga­hópi, alveg eins og öðrum skjól­stæð­ingum. Það hlýtur að vera erfitt að vera í þeirra sporum þar sem við komum alltaf upp klædd eins og geim­farar inn til þeirra. Ég reyni eftir bestu getu að vera upp­lífg­andi og gleðja, auk þess reyna sýna sam­hygð og hlýju, sem og læt skjól­stæð­ing­ana mína vita að ég sé til staðar fyrir þá sama hvað.

Ég elska vinn­una mína ólýs­an­lega mikið, hún er gef­andi, krefj­andi, erfið á tímum og við­ur­kenni að ég hef stundum grátið, við megum ekki gleyma að við erum mennsk.

Ég reyni að vinna eins mikið og ég get núna afþví ég veit að sam­fé­lagið þarfn­ast okkar. Þess á milli reyni ég að hvíla mig, njóta með 11 mán­aða dóttur minni, ég er dug­leg að sleppa mér og gleyma mér í að dansa um gólf og syngja barna­lög með henni, hug­leiða og fara í göngut­úra með hund­inn minn. Ég tók sjálf ákvörðun um að hitta ekki vini né fjöl­skyldu á meðan þetta gengur yfir. Ég hitti jú maka minn, dóttur og stjúp­son en ekki for­eldra mína, aðra fjöl­skyldu­með­limi, né vini mína. Þar sem ég er í fram­línu get ég ekki verið að veikj­ast og tek ekki áhættu þar sem ég er að sinna jákvæðum Covid19 sjúk­lingum að ef ég er smituð að ég fari að smita aðra.

Þannig ég myndi segja að hjúkrun sé lífs­stíll. Hjúkr­un­ar­fræð­ingar fórna ýmsu fyrir vinn­una. Þeir loka sig sjálfir frá félags­lífi, koma til baka þegar á reynir og sam­fé­lagið þarf á þeim að halda. Og ekki má gleyma að hjúkr­un­ar­fræð­ingar eru samn­ings­lausir. Þessi mik­il­væga stétt gerir allt fyrir sam­fé­lagið en ríkið getur ekki séð sóma sinn í að semja um mann­sæm­andi laun fyrir ábyrgð, tryggð og þá ástríðu sem hjúkr­un­ar­fræð­ingar leggja í störf sín. Eitt sem ég veit er að ef ekki verður samið til hins betra mun verða flótti úr stétt­inni.

Starfs­fólk smit­sjúk­dóma­deildar eru því­líkar hetjur. Við þurfum að aðlaga okkur alls­konar breyt­ingum sem munu koma og vinna við öðru­vísi aðstæður. Það er ótrú­legt hvað allir eru til­búnir að leggja mikið á sig til að þetta gangi nú allt vel. Ég er svo ólýs­an­lega stolt að vinna á þess­ari deild. Auðvitað er enn mikil óvissa hvað verður og hversu margir veikj­ast alvar­lega og þurfa inn­lögn. En starfsand­inn er sterk­ari sem aldrei fyrr og við erum til­búin í kom­andi tíma, sama hvað ger­ist. Við stöndum saman og förum í gegnum þetta saman, þetta er tíma­bundið ástand og mun ganga yfir.

Árið 2020 er til­einkað hjúkr­un­ar­fræð­ingum og ljós­mæðrum sam­kvæmt Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofnun, hver hefði trúað því að við fengjum svona mik­il­vægt verk­efni að vinna.

Við erum hér fyrir þig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár