Sævar og Elín um Covid-19 og loftslagsmál klukkan 13

Stundin sendir út menn­ing­ar­við­burði á vegum Menn­ing­ar­hús­anna í Kópa­vogi á með­an sam­komu­banni stend­ur. Nú ræða Sævar Helgi Bragason, jarð­fræð­ingur og vís­inda­miðl­ari, og Elín Björk Jón­as­dóttir, veð­ur­fræð­ingur, um lofts­lags­mál, loft­gæða­mál, veður og veirur. Útsend­ingin hefst klukkan 13.

Stundin mun á næstu vikum senda út menn­ing­ar­við­burði í sam­starfi við Menn­ing­ar­húsin í Kópavogi. Við­burð­irnir verða haldnir klukkan 13 á mánu­dögum, mið­viku­dögum og föstu­dögum á meðan sam­komu­banni stendur vegna COVID-19 heims­far­ald­urs­ins. Hægt verður að sjá við­burð­ina á for­síðu Stund­ar­innar, á Facebook-síðu Stund­ar­innar og Facebook-síðu Menn­ing­ar­hús­anna í Kópavogi.

Meðal þeirra sem koma fram í við­burða­röð­inni eru Sævar Helgi Bragason stjörnu­fræð­ingur, Gerður Kristný skáld,  Jógvan, Matti Matt, Vignir Snær, Ragna Fróða­dóttir, Andri Snær Magnason rit­höf­undur, Sig­ur­björn Bern­harðs­son, Halla Oddný, Þor­grímur Þrá­ins­son, Elín Björk Jón­as­dóttir, Einar Falur, Kordo kvar­tett­inn og Hrönn Egils­dóttir.

Í þess­ari útsend­ingu ræða Sævar Helgi Bragason, jarð­fræð­ingur og vís­inda­miðl­ari, og Elín Björk Jón­as­dóttir, veð­ur­fræð­ingur, um lofts­lags­mál, loft­gæða­mál, veður og veirur. Streymi af við­burð­inum verður birt í þess­ari frétt og á fyrr­greindum Facebook-síðum ásamt for­síðu Stund­ar­innar. Þá verður upp­taka til­tæk á sömu stöðum í kjöl­farið.

Eft­ir­far­andi er til­kynn­ing frá menn­ing­ar­hús­unum í Kópavogi um við­burð­inn:

Kúltúr klukkan 13 | Á kross­götum

Föstu­dag­inn 27. mars verður Kúltúr klukkan 13 með útsend­ingu frá Nátt­úru­fræði­stof­unni í Kópavogi þar sem Sævar Helgi Bragason, jarð­fræð­ingur og vís­inda­miðl­ari, og Elín Björk Jón­as­dóttir veð­ur­fræð­ingur fara um víðan völl í umræðu um lofts­lags­mál, loft­gæða­mál, veður og veirur.  

Hver er mun­ur­inn á lofts­lags­málum og loft­gæða­málum? Hvaða áhrif virð­ist yfir­stand­andi COVID-19 heims­far­aldur vera að hafa á lofts­lag og loft­gæði um víða ver­öld og hver gæti sú þróun mögu­lega orðið til fram­tíðar litið?  

Elín Björk er veð­ur­fræð­ingur með próf frá Okla­hóma­há­skóla og Háskól­anum í Ósló og starfar sem hóp­stjóri veð­ur­þjón­ustu á Veð­ur­stofu Íslands ásamt því aðð fara með veð­ur­féttir á RÚV. Sævar Helgi er jarð­fræð­ingur og starfar við stjörnu­fræði­kennslu í Mennta­skól­anum í Reykja­vík, vís­inda­miðlun við Háskóla Íslands og dag­skrár­gerð í útvarpi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kúltúr klukkan 13

GerðarStundin klukkan 13: Mósaík úr matvælum
MenningKúltúr klukkan 13

Gerð­ar­Stundin klukkan 13: Mósaík úr mat­vælum

Stund­in send­ir út menn­ing­ar­við­burði á veg­um Menn­ing­ar­hús­anna í Kópa­vogi á með­an sam­komu­banni stend­ur. Í dag verð­ur þriðja Gerð­ar­Stund­in send út frá Gerð­arsafni þar sem mynd­list­ar­menn­irn­ir Berg­ur Thom­as And­er­son, Logi Leó Gunn­ars­son og Una Mar­grét Árna­dótt­ir leiða skap­andi fjöl­skyldu­smiðju í Stúd­íói Gerð­ar. Út­send­ing­in hefst klukk­an 13.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár