GerðarStundin: Mósaík úr matvælum

Stund­in send­ir út menn­ing­ar­við­burði á veg­um Menn­ing­ar­hús­anna í Kópa­vogi á með­an sam­komu­banni stend­ur. Í dag verð­ur þriðja Gerð­ar­Stund­in send út frá Gerð­arsafni þar sem mynd­list­ar­menn­irn­ir Berg­ur Thom­as And­er­son, Logi Leó Gunn­ars­son og Una Mar­grét Árna­dótt­ir leiða skap­andi fjöl­skyldu­smiðju í Stúd­íói Gerð­ar. Út­send­ing­in hefst klukk­an 13.

GerðarStundin Myndlistarmennirnir Bergur Thomas Anderson, Logi Leó Gunnarsson og Una Margrét Árnadóttir leiða skapandi fjölskyldusmiðju í Stúdíói Gerðar. Útsendingin hefst klukkan 13.

Stundin mun á næstu vikum senda út menn­ing­ar­við­burði í sam­starfi við Menn­ing­ar­húsin í Kópavogi. Við­burð­irnir verða haldnir klukkan 13 á mánu­dögum, mið­viku­dögum og föstu­dögum á meðan sam­komu­banni stendur vegna COVID-19 heims­far­ald­urs­ins. Hægt verður að sjá við­burð­ina á for­síðu Stund­ar­innar, á Facebook-síðu Stund­ar­innar og Facebook-síðu Menn­ing­ar­hús­anna í Kópavogi.

Meðal þeirra sem koma fram í við­burða­röð­inni eru Sævar Helgi Bragason stjörnu­fræð­ingur, Gerður Kristný skáld, Jógvan, Matti Matt, Vignir Snær, Ragna Fróða­dóttir, Andri Snær Magnason rit­höf­undur, Sig­ur­björn Bern­harðs­son, Halla Oddný, Þor­grímur Þrá­ins­son, Elín Björk Jón­as­dóttir, Einar Falur, Kordo kvar­tett­inn og Hrönn Egils­dóttir.

Í dag verður þriðja Gerð­ar­Stundin send út frá Gerð­ar­safni þar sem mynd­list­ar­menn­irnir Bergur Thomas Anderson, Logi Leó Gunn­ars­son og Una Margrét Árna­dóttir leiða skap­andi fjöl­skyldusmiðju í Stúdíói Gerðar. Þau koma með skemmti­legar hug­myndir sem börn og full­orðnir geta búið til úr ein­földum og aðgengi­legum efni­við heima hjá sér. Fólk er hvatt til að deila mynd af sínum lista­verkum á sam­fé­lags­miðlum með myllu­merk­inu #gerdar­stundin.

Útsend­ingin hefst klukkan 13. Streymi af við­burð­inum verður birt í þess­ari frétt og á fyrr­greindum Facebook-síðum ásamt for­síðu Stund­ar­innar. Þá verður upp­taka til­tæk á sömu stöðum í kjöl­farið.

Eft­ir­far­andi er til­kynn­ing frá menn­ing­ar­hús­unum í Kópavogi um við­burð­inn:

Kúltúr klukkan 13 | Gerð­ar­Stundin

Föstu­dag­inn 24. apríl  kl. 13 verður þriðja Gerð­ar­Stundin send út frá Gerð­ar­safni þar sem mynd­list­ar­menn­irnir Bergur Thomas Anderson, Logi Leó Gunn­ars­son og Una Margrét Árna­dóttir leiða skap­andi fjöl­skyldusmiðju í Stúdíói Gerðar. Þau koma með skemmti­legar hug­myndir sem börn og full­orðnir geta búið til úr ein­földum og aðgengi­legum efni­við heima hjá sér.

Fólk er hvatt til að deila lista­verkum sínum með öllum með því að taka mynd og deila á sam­fé­lags­miðlum með myllu­merk­inu #gerdar­stundin.

Gerð­ar­Stundin gefur fólk­inu í land­inu góðar hug­myndir fyrir sam­veru­stundir með börn­unum þar sem allir fá tæki­færi til að skapa saman!

Í þessum þriðja þætti verður áhorf­endum kennt að búa til mósaíkverk úr ýmsum mat­vælum og lit­rík hljóð­færi úr ýmsum ílátum, blöðrum og teygjum.

Nánar um umsjón­ar­menn­ina:

Bergur Thomas Anderson er mynd­listar- og tón­list­ar­maður frá Reykja­vík. Hann útskrif­að­ist með BA gráðu í mynd­list frá Lista­há­skóla Íslands árið 2011 og stund­aði fram­halds­nám við Master Artistic Research deild­ina í Royal Academy of Art the Hague í Hollandi, þaðan sem hann útskrif­að­ist 2017. Verk hans kynna skáld­aða heima og per­sónur í gegnum tóna og tal, keramík, teikn­ingar og textíl. Bergur hefur sýnt víða inn­an­lands sem erlendis. Hann hefur haldið fjöl­skyldusmiðjur fyrir Gerð­ar­safn og á eigin vegum.

Una Margrét Árna­dóttir útskrif­að­ist með meistara­gráðu frá Lista­há­skól­anum í Malmö árið 2013 og hefur starfað við mynd­list síðan þá. Hún hefur sýnt víðs­vegar bæði hér­lendis og erlendis. Samhliða mynd­list­inni hefur hún m.a kennt við Mynd­list­ar­skóla Reykja­víkur, sýn­ing­ar­stýrt í Harbin­ger ásamt því að sinna barna- og ung­linga­fræðslu fyrir Lista­safn Reykja­víkur. Auk þess má geta að Una er einn af aðstand­endum sýn­inga­rým­is­ins OPEN í Reykja­vík. 

Logi Leó Gunn­ars­son útskrif­að­ist frá mynd­list­ar­deild Lista­há­skóla Íslands vorið 2014. Hann vinnur í ýmsa miðla, en flest verka hans gefa frá sér hljóð. Logi hefur sýnt víða, en nýlegar sýn­ingar sem hann hefur tekið þátt í eru Hljóðön – sýn­ing tón­listar í Hafn­ar­borg og Deep Inside: fimmta alþjóð­lega tví­ær­ingnum fyrir unga mynd­list­ar­menn í Moskvu. Logi Leó hefur starfað fyrir fræðslu­deild Lista­safns Reykja­víkur ásamt því að hafa sinnt ýmsum verk­efnum fyrir Gerð­ar­safn og Lista­safn Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kúltúr klukkan 13

MenningKúltúr klukkan 13

Gerð­ar­Stundin klukkan 13: Málning úr maís­mjöli

Stund­in send­ir út menn­ing­ar­við­burði á veg­um Menn­ing­ar­hús­anna í Kópa­vogi á með­an sam­komu­banni stend­ur. Í dag verð­ur önnur Gerð­ar­Stund­in send út frá Gerð­arsafni þar sem mynd­list­ar­menn­irn­ir Berg­ur Thom­as And­er­son, Logi Leó Gunn­ars­son og Una Mar­grét Árna­dótt­ir leiða skap­andi fjöl­skyldu­smiðju í Stúd­íói Gerð­ar. Út­send­ing­in hefst klukk­an 13.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár