Bókaspjall: Auður og Vera

Í Kúltúr klukk­an 13 í dag munu þær Auð­ur Jóns­dótt­ir, rithöfund­ur, og Vera Ill­uga­dótt­ir, dag­skrár­gerð­ar­kona, bera sam­an bæk­ur sín­ar í léttu spjalli á Bóka­safni Kópavogs. Útsend­ing­in hefst klukk­an 13.

Stundin sendir út menningar­viðburði í samstarfi við Menningar­húsin í Kópavogi meðan á samkomu­banni stendur. Viðburðirnir eru haldnir klukkan 13 á mánudögum, miðvikudögum og föstu­dögum. Hægt verður að sjá viðburðina á forsíðu Stundarinnar, á Facebook-síðu Stundarinnar og Facebook-síðu Menningar­húsanna í Kópavogi.

Meðal þeirra sem koma fram í viðburða­röðinni eru Sævar Helgi Bragason stjörnu­fræðingur, Gerður Kristný skáld, Jógvan, Matti Matt, Vignir Snær, Ragna Fróða­dóttir, Andri Snær Magnason rithöfundur, Sigur­björn Bernharðsson, Halla Oddný, Þorgrímur Þráinsson, Elín Björk Jónasdóttir, Einar Falur, Kordo kvartettinn og Hrönn Egils­dóttir.

Í dag munu þær Auð­ur Jóns­dótt­ir, rithöfund­ur, og Vera Ill­uga­dótt­ir, dag­skrár­gerð­ar­kona, bera sam­an bæk­ur sín­ar í léttu spjalli á Bóka­safni Kópavogs. Útsendingin hefst klukkan 13. Streymi af viðburðinum verður birt í þessari frétt og á fyrr­greindum Facebook-síðum ásamt forsíðu Stundarinnar. Þá verður upptaka tiltæk á sömu stöðum í kjölfarið.

Eftir­farandi er tilkynning frá menningar­húsunum í Kópavogi um viðburðinn:

Kúltúr klukkan 13 | Bóka­spjall

Auður Jóns­dóttir rithöfundur og Vera Illuga­dóttir dagskrár­gerðarkona bera saman bækur sínar í léttu spjalli á rölti um Bókasafn Kópavogs. Hafa þær svipaðan bókmennta­smekk eða mjög ólíkan? Hvað lásu þær sem börn? Þær munu flakka á milli bóka­hillna, draga fram og segja meðal annars frá sínum uppáhalds­bókum, hvaða bækur hafa haft áhrif á þær og hverjar þær jafnvel leita til á þessum skrítnu tímum í samfélaginu.

Auður Jóns­dóttir er rithöfundur og sjálf­stæður blaða­maður. Hún hefur skrifað fjöldann allan af bókum bæði fyrir börn og fullorðna sem komið hafa út í ýmsum löndum.  Auður hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir skáldverk sín, má þar nefna að hún fékk Íslensku bókmennta­verðlaunin fyrir Fólkið í kjallaranum og Fjöru­verðlaunin fyrir bók sína Ósjálfrátt.  

Vera Illuga­dóttir er dagskrár­gerðarkona og hafa þættir hennar á Rás 1, Í ljósi sögunnar, notið mikilla vinsælda og skipað sér fastan sess hjá stórum hópi aðdáenda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kúltúr klukkan 13

MenningKúltúr klukkan 13

Gerðar­Stundin klukkan 13: Mósaík úr matvælum

Stund­in send­ir út menn­ing­ar­við­burði á veg­um Menn­ing­ar­hús­anna í Kópa­vogi á með­an samkomu­banni stend­ur. Í dag verð­ur þriðja Gerð­ar­Stund­in send út frá Gerð­arsafni þar sem mynd­list­ar­menn­irn­ir Berg­ur Thom­as And­er­son, Logi Leó Gunn­ars­son og Una Mar­grét Árna­dótt­ir leiða skap­andi fjöl­skyldu­smiðju í Stúd­íói Gerð­ar. Út­send­ing­in hefst klukk­an 13.
MenningKúltúr klukkan 13

Gerðar­Stundin klukkan 13: Málning úr maísmjöli

Stund­in send­ir út menn­ing­ar­við­burði á veg­um Menn­ing­ar­hús­anna í Kópa­vogi á með­an sam­komu­banni stend­ur. Í dag verð­ur önnur Gerð­ar­Stund­in send út frá Gerð­arsafni þar sem mynd­list­ar­menn­irn­ir Berg­ur Thom­as And­er­son, Logi Leó Gunn­ars­son og Una Mar­grét Árna­dótt­ir leiða skap­andi fjöl­skyldu­smiðju í Stúd­íói Gerð­ar. Út­send­ing­in hefst klukk­an 13.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár