Litið í geymslu Gerðarsafns

Í Kúltúr klukk­an 13 í dag mun Halla Oddný Magnúsdóttir líta í listaverka­geymslu Gerðar­safns í fylgd Brynju Sveins­dóttur sýningar­stjóra. Rætt verður um valin verk eftir Gerði Helga­dóttur, Barböru Árnason og Valgerði Briem. Út­send­ing­in hefst klukk­an 13.

Stundin sendir út menningar­viðburði í samstarfi við Menningar­húsin í Kópavogi meðan á samkomu­banni stendur. Viðburðirnir eru haldnir klukkan 13 á mánudögum, miðvikudögum og föstu­dögum. Hægt verður að sjá viðburðina á forsíðu Stundarinnar, á Facebook-síðu Stundarinnar og Facebook-síðu Menningar­húsanna í Kópavogi.

Meðal þeirra sem koma fram í viðburða­röðinni eru Sævar Helgi Bragason stjörnu­fræðingur, Gerður Kristný skáld, Jógvan, Matti Matt, Vignir Snær, Ragna Fróða­dóttir, Andri Snær Magnason rithöfundur, Sigur­björn Bernharðsson, Halla Oddný, Þorgrímur Þráinsson, Elín Björk Jónasdóttir, Einar Falur, Kordo kvartettinn og Hrönn Egils­dóttir.

Í dag mun Halla Oddný Magnúsdóttir líta í listaverka­geymslu Gerðar­safns í fylgd Brynju Sveins­dóttur sýningar­stjóra. Rætt verður um valin verk eftir Gerði Helga­dóttur, Barböru Árnason og Valgerði Briem. Útsendingin hefst klukkan 13. Streymi af viðburðinum verður birt í þessari frétt og á fyrr­greindum Facebook-síðum ásamt forsíðu Stundarinnar. Þá verður upptaka tiltæk á sömu stöðum í kjölfarið.

Eftir­farandi er tilkynning frá menningar­húsunum í Kópavogi um viðburðinn:

Kúltúr klukkan 13 | Innlit í listaverka­geymslu Gerðar­safns

Miðvikudaginn 29. apríl kl. 13 verður útsending frá Gerðar­safni þar sem Halla Oddný Magnúsdóttir lítur í listaverka­geymslu Gerðar­safns í fylgd Brynju Sveins­dóttur sýningar­stjóra. Rætt verður um valin verk eftir Gerði Helga­dóttur, Barböru Árnason og Valgerði Briem. 

Gerðar­safn er eina listasafn landsins stofnað til heiðurs listakonu, Gerði Helga­dóttur. Listaverka­eign safnsins geymir meðal annars um 1400 verk eftir Gerði Helga­dóttur, um 100 verk eftir Barböru Árnason og um 1600 teikningar eftir Valgerði Briem.  

Brynja Sveins­dóttir er sýningar­stjóri og verkefna­stjóri safn­eignar í Gerðar­safni.

Brynja hefur unnið að gerð sýninga frá útskrift, bæði sjálf­stæðra sýningar­verkefna og í starfi hjá lista­söfnum. Hún starfaði sem aðstoðar­maður sýningar­stjóra í Moderna Museet 2014 og verkefna­stjóri sýninga og safn­fræðslu á Ljós­myndasafni Reykja­víkur áður en hún hóf störf hjá Gerðar­safni. Brynja hefur stundað kennslu við mynd­listar- og hönnunar­deild Lista­háskóla Íslands og Ljósmynda­skólann frá árinu 2016.

Hægt verður að sjá viðburðinn í gegnum forsíðu Stundarinnar, á Facebook-síðu Stundarinnar og Facebook-síðu Menningar­húsanna í Kópavogi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kúltúr klukkan 13

MenningKúltúr klukkan 13

Gerðar­Stundin klukkan 13: Mósaík úr matvælum

Stund­in send­ir út menn­ing­ar­við­burði á veg­um Menn­ing­ar­hús­anna í Kópa­vogi á með­an samkomu­banni stend­ur. Í dag verð­ur þriðja Gerð­ar­Stund­in send út frá Gerð­arsafni þar sem mynd­list­ar­menn­irn­ir Berg­ur Thom­as And­er­son, Logi Leó Gunn­ars­son og Una Mar­grét Árna­dótt­ir leiða skap­andi fjöl­skyldu­smiðju í Stúd­íói Gerð­ar. Út­send­ing­in hefst klukk­an 13.
MenningKúltúr klukkan 13

Gerðar­Stundin klukkan 13: Málning úr maísmjöli

Stund­in send­ir út menn­ing­ar­við­burði á veg­um Menn­ing­ar­hús­anna í Kópa­vogi á með­an sam­komu­banni stend­ur. Í dag verð­ur önnur Gerð­ar­Stund­in send út frá Gerð­arsafni þar sem mynd­list­ar­menn­irn­ir Berg­ur Thom­as And­er­son, Logi Leó Gunn­ars­son og Una Mar­grét Árna­dótt­ir leiða skap­andi fjöl­skyldu­smiðju í Stúd­íói Gerð­ar. Út­send­ing­in hefst klukk­an 13.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár