Dauðsföllin tvöfaldast á Spáni: „Ég trúi ekki að ég sé að upplifa þetta“

Ella Ólafs­dóttir, íslensk kona sem búsett er í Madríd, segir að ástandið í borg­inni sé ótrú­legt út af Covid-far­aldr­inum. Hún vaknar upp á morg­an­ana og líður eins og hún sé stödd í bíó­mynd. Fjöldi lát­inna hefur ekki verið eins fljótur að tvö­fald­ast úr 1.000 í 2.000 í neinu öðru landi en Spáni.

Dauðsföllin tvöfaldast á Spáni: „Ég trúi ekki að ég sé að upplifa þetta“
Líður eins og hún sé stödd í bíó­mynd Ella Ólafs­dóttir segir að henni líði eins og hún sé stödd í bíó­mynd í Covid-far­aldr­inum sem nú geisar á Spáni þar sem hún býr. Tæplega 2200 hafi lát­ist þar í landi. Hún sést hér ásamt eig­in­manni sínum Jorge og börn­unum Aroni, Noru og Soniu Bríet.

Dauðs­föll á Spáni tvö­föld­uð­ust frá því á föstu­dag­inn og þar til í gær, mánu­dag, og hafa heil­brigð­is­yf­ir­völd í land­inu miklar áhyggjur af því hvað Covid-smitin eru orðin útbreidd um allt landið. Frá þessu er greint í spænska dag­blað­inu El País í dag.

Á föstu­dag­inn í síð­ustu viku var tala lát­inna vegna Covid-19 kom­inn upp í 1.000 en í gær var talan komin upp í 2.182 og hafa 462 lát­ist í land­inu á einum sól­ar­hring. 

Í spænska blað­inu er bent á að þetta þýði að á Spáni hafi dauðs­föllin tvö­fald­ast á styttri tíma en á Ítalíu eftir að mann­fall vegna Covid hafði náð 1.000 ein­stak­lingum. Á Ítalíu juk­ust dauðs­föll vegna Covid um 1.000 á fjórum dögum en á Spáni þremur. Svipaða sögu má segja um Kína þar sem tvö­földun lát­inna var enn hrað­ari á Spáni en þar. 

Þetta þýðir að fjölgun lát­inna vegna Covid, frá 1000 og upp í 2000 ein­stak­linga,  hefur ekki átt sér stað eins hratt í neinu öðru landi í heim­inum hingað til en á Spáni.  

„Ég trúi ekki að ég sé að upplifa þetta“

Ella Ólafs­dóttir, íslensk kona sem búsett er í Madríd ásamt spænskum manni sínum og þremur börnum, segir að ástandið í borg­inni sé ótrú­legt. „Við förum ekki út í búð, við förum ekk­ert út, heldur pöntum við bara mat. Næstu tvær vik­urnar verða verstar segja sér­fræð­ing­arnir, smit­hættan verður mest núna á næst­unni þar sem svo mikið af  fólki sem hefur verið með Covid er að koma heim frá spít­öl­unum. Smit­hættan liggur í loft­inu,“ segir Ella.  „Göturnar eru bara tómar, þetta er bara ótrú­legt miðað við hvernig Madríd er alltaf. Ég trúi ekki að ég sé að upp­lifa þetta, ég trúi því ekki.  Ég vakna alla morgna og mér líður eins og ég sé stödd í bíó­mynd,“ segir Ella sem búið hefur í borg­inni síð­ast­liðin 16 ár. 

Dauðsföll meira dreifð á Spáni

Bent er á það í grein­inni í El País að 80 pró­sent dauðs­falla vegna Covid á Ítalíu hafi nú átt sér stað í þremur hér­uðum: Lombardy, Emilio Romagna og Veneto. Þann 13. mars hafði 92,3 dauðs­fall­anna átt sér stað í þessum þremur hér­uðum og í dag er þessi tala 80 pró­sent. 

Líkt og í Ítalíu þá áttu 90 pró­sent af fyrstu 100 dauðs­föll­unum á Spáni sér stað á þremur svæðum: í Madríd, Baska­landi - La Rioja og í Aragón.  Þann 13. mars höfðu 88,1 pró­sent dauðs­fall­anna verið á þessum þremur svæðum og 11,9 pró­sent ann­ars staðar. Síðan þá hafa dauðs­föll í Kata­lóníu, Castilla Y León og Castilla La Mancha, sem í Valencia, auk­ist til muna. Í gær var hlut­föll dauðs­falla í Madríd, Baska­landi - La Rioja og í Aragón 65,9 pró­sent af heild­ar­töl­unni og 34,1 pró­sent á öðrum svæðum. 

Í spænska blað­inu er við­tal við pró­fessor í lækn­is­fræði, Daniel López Acuña, þar sem hann segir um þennan mun á Spáni og Ítalíu og útbreiðslu Covid. „Það sést að dauðs­föll hafa auk­ist veru­lega í nokkrum hér­uðum, án þess þó að talan hafi náð sömu hæðum og í hér­uð­unum þar sem dauðs­föllin voru flest síð­ast­liðna viku. Þetta er fyr­ir­bæri sem hefur ekki átt sér stað á Ítalíu,“ segir Acuña. 

„Maður lokar bara glugg­anum og reynir að setja góða tón­list á og hugsa um eitt­hvað annað“

Hann bendir á það að lík­lega sé mun­ur­inn á Ítalíu og Spáni sé sá að á Ítalíu voru ferðir fólks innan og frá hér­uð­unum þremur þar sem smit komu upp fyrst og voru flest-  Lombardy, Emilio Romagna og Veneto - tak­mark­aðar mjög í byrjun á meðan það gekk ekki eins vel að tak­marka ferðir fólks innan og frá svæð­unum þar sem smit komu up fyrst á Spáni, meðal ann­ars í Madríd. Fyrir vikið hafi smit borist hraðar og meira út til ann­arra svæða á Spáni en gerð­ist frá hér­uð­unum á Norður-Ítalíu og innan þess lands. 


Reynir að fjarlægja sig andlega frá ástandinu

Ella segir að hún og fjöskylda hennar hafi ekki farið út í viku og að þau muni ekki gera það næstu vik­urnar. Útgöngu­bann er í gildi í Madríd og verður í gildi þar til um miðjan apríl hið minnsta.

Hún segir að þau taki einn dag í einu og reyni að gera skemmti­lega hluti sem hjálpi þeim að hugsa um eitt­hvað annað en ástandið fyrir utan glugg­ann hjá þeim. „Við tökum bara dag fyrir dag og vonum það besta. Maður lokar bara glugg­anum og reynir að setja góða tón­list á og hugsa um eitt­hvað annað. Þetta er svo skelfi­legt. Svo fær maður hring­ingar frá vin­konum sínum sem eru að missa ætt­ingja sína. Ein spænsk vin­kona min var að missa pabba sinn og hún hafði ekki séð hann í fjóra daga áður en hann lést,“ segir Ella. „Og hafðu það í huga að þetta er ekki byrjað í raun, þetta á eftir að versna, því miður.“ 

Ella segir að hún von­ist til þess að ástandið á Spáni verði orðið skárra um miðjan apríl og staðan verði þannig þá að hægt verði að fella útgöngu­bannið úr gildi og lífið fari aftur að kom­ast í sinn vana­gang. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár