„Ef engar tekjur koma inn þá lætur eitthvað undan“

COVID-19 veiru­far­ald­ur­inn og sam­komu­bann til að stemma stigu við útbreiðslu hans leikur margan atvinnu­rekstur illa. Veit­inga­maður ótt­ast um fram­tíð veit­inga­húsa sem séu því sem næst tóm.

„Ef engar tekjur koma inn þá lætur eitthvað undan“
Leikið fyrir einn Í Þjóð­leik­hús­inu er verið að leita leiða til að miðla efni til fólks þrátt fyrir sam­komu­bann. Mynd: Saga Sig

Stræt­is­vagnar keyra tómir eða því sem næst um götur. Talið er inn í mat­vöru­versl­anir þar sem stórum hrís­grjóna­sekkjum, dósa­mat, kló­sett­pappír og spritti er komið fyrir á áber­andi stöðum. Í bíó­húsum tekur eng­inn við mið­anum, ekki er hægt að fá rör í gos­glasið og lokað er fyrir aðra hvora sæta­röð. Á stóra svið­inu í Þjóð­leik­hús­inu stendur leik­ari í kast­ljósi og fer með ljóð fyrir einn áhorf­anda í sal. Veit­inga­staðir hafa lokað unn­vörpum og þeir sem hafa opið hafa fækkað borðum mikið og búast allt eins við að loka á næstu dögum. Götur mið­borgar Reykja­víkur eru tóm­legar.

Svona er stemn­ingin á fyrstu viku í sam­komu­banni sem lagt er á til að reyna að stemma stigu við útbreiðslu COVID-19 veirunnar. Við­mæl­endur Stund­ar­innar, sem koma að ýmsum rekstri sem veiru­far­ald­ur­inn og aðgerðir til að stemma stigu við honum hefur mikil áhrif á, lýstu allir ánægju með leið­bein­ingar og fyr­ir­mæli Almanna­varna og sótt­varna­yf­ir­valda. Hins vegar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár