Flúðu úr landi með leigubíl

Marín Rún Ein­ars­dóttir og vin­kona hennar urðu að grípa til óvenju­legra ráða þegar ljóst varð að landa­mæri Póllands væru að lok­ast. Með króka­leiðum komust þær þó úr landi og heim til Íslands.

Flúðu úr landi með leigubíl
Leigu­bíl­stjór­inn bjarg­aði þeim María segir að það hafi bjargað þeim vin­kon­unum að þær hafi fundið íslenska stráka og saman hafi þau náð í leigu­bíl­stjóra sem var til­bú­inn að keyra þau í fjóra og hálfan tíma að þýsku landa­mær­unum. Mynd: Úr einkasafni

Ferðalag Marínar Rúnar Ein­ars­dóttur til Kraká í Póllandi um miðjan mars­mánuð á vafa­lítið eftir að verða henni minn­is­stætt. Ekki bara eins og vani er þegar fólk fer í ferða­lög og upp­lifir nýja staði og skemmtun, heldur fyrir þær sakir að hún og vin­kona hennar máttu leggja í mikla ævin­týra­för til að kom­ast út úr Póllandi og heim til Íslands, eftir að ákveðið var að loka land­inu.

„Þetta var alls ekki þægi­legt. Það var allt svo óvíst, einn var að segja þetta og annar var að segja hitt,“ segir Marín. Hún og vin­kona hennar höfðu flogið til Póllands með Wizz Air og voru þar staddar þegar ljóst var að pólsku landa­mær­unum yrði lokað. „Við byrj­uðum að reyna að finna lest eða rútu til Berlínar. Við fórum á aðal­lest­ar­stöð­ina í Kraká en þaðan voru engar lestir að fara yfir til Þýska­lands. Þegar það var orðið ljóst fórum við á rútu­stöð­ina en það …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár