Flúði út úr Póllandi á síðustu stundu

Urður Gunn­ars­dóttir og sam­starfs­konur hennar hjá Lýðræðis- og mann­rétt­inda­skrif­stofu ÖSE komust naum­lega hjá því að verða inn­lyksa í Varsjá. Mik­il­vægt er að gæta að lýð­ræð­inu á meðan barist er við COVID-19 veiruna.

Flúði út úr Póllandi á síðustu stundu
Hefur sam­visku­bit Urður segir að það örli á sam­visku­biti hjá henni í garð þeirra sem búi ekki við sömu for­rétt­indi og hún, að geta kom­ist til Íslands. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Maður dettur í ein­hver flótta­við­brögð, þegar maður áttar sig á því að það er verið að loka land­inu sem maður er staddur í.“ Þetta segir Urður Gunn­ars­dóttir, sér­legur aðstoð­ar­maður Ingi­bjargar Sólrúnar Gísla­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Lýðræðis- og mann­rétt­inda­skrif­stofu Öryggis- og sam­vinnu­stofn­unar Evrópu. Höf­uð­stöðvar stofn­un­ar­innar eru í Varsjá í Póllandi en pólsk yfir­völd til­kynntu 13. mars síð­ast­lið­inn að land­inu yrði lokað tveimur sól­ar­hringum síðar. Urður og Ingi­björg komust við illan leik frá Póllandi til Íslands í gegnum Kaup­manna­höfn en hefðu ella orðið inn­lyksa í Varsjá um ófyr­ir­séðan tíma.

Urður segir að sér sé létt yfir að vera komin heim til Íslands. „Við höfðum svo sem alveg séð í hvað stefndi, í meiri lok­anir, en maður heldur alltaf að maður hafi meiri tíma en raun ber vitni. Ég var svo sem ekk­ert ein um þetta, margir af mínum kol­legum í Varsjá, sem margir eru útlend­ingar, voru einnig að velta næstu skrefum fyrir sér. Við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár