„Ég dáist að fólki eins og mömmu“

Heiðar Hild­ar­son, 18 ára fram­halds­skóla­nemi, ólst upp við fátækt hjá ein­stæðri móður sem er öryrki og hefur þurft að reiða sig á aðstoð hjálp­ar­stofn­ana til að sjá fyrir börn­unum. Hann lýsir aðstæðum sínum og segir skrítið að fólk geti ekki séð fjöl­skyld­unni far­boða í íslensku sam­fé­lagi, en fólk eins og móðir hans, sem hafi leitað allra leiða til að búa börn­unum betra líf, eigi aðdáun skilda.

„Ég dáist að fólki eins og mömmu“

Börn bera aldrei ábyrgð á eigin lífs­kjörum. Engu að síður eru þau sá þjóð­fé­lags­hópur sem líður einna mest fyrir fátækt for­eldra sinna, óháð því hvaða ástæður eru fyrir henni. Fátækt í æsku hefur marg­vís­leg áhrif á lífs­hlaup fólks og þegar börn líða skort og hafa til dæmis ekki tæki­færi til að halda upp á afmæli, bjóða vinum heim, fá ný föt eða eiga sömu áhuga­mál og jafn­aldrar þeirra, er hætta á að þau verði félags­lega ein­angruð. Þar með hafa ekki öll börn sömu mögu­leika á að njóta rétt­inda sinna. Þá hafa rann­sóknir sýnt að börnum af efna­minni heim­ilum er hætt­ara en öðrum börnum við að verða fyrir kyn­ferð­is­of­beldi. Um 10% íslenskra barna búa á heim­ilum þar sem tekjur eru undir lág­tekju­mörkum. Á Íslandi eru rúm­lega 85.000 börn á aldr­inum 0-18 ára og því búa um 8.500 börn við þessar aðstæður.

Þrjú þess­ara barna segja sögu sína í við­tali við Stundina. Þau vilja ekki koma öll fram undir nafni. For­eldrar þeirra, sem sjálf ólust upp við fátækt, ótt­ast að börnin þeirra muni fest­ast í fátækra­gildru. Þau eru farin að venj­ast þessu ástandi, þau þekkja ekk­ert annað,“ segir ein móð­irin. Hér er fyrsta við­talið birt, en þar segir Heiðar Hild­ar­son, 18 ára drengur frá aðstæðum sínum. 

Oft lítill matur í ísskápnum 

„Ég hef alist upp við fátækt. Mamma er öryrki og er ein með okkur bræð­urna. Hún hefur aldrei haft neitt á milli hand­anna en hefur reynt að láta okkur ekki finna fyrir því. Við höfum fengið mikla hjálp frá öðrum; ömmu og afa, frænd­fólki og hjálp­ar­stofn­unum. Oft kom fyrir að það var lít­ill matur í ísskápnum. Mamma pass­aði alltaf að ég fengi að borða, þá borð­aði hún minna. Stundum fórum við í mat til ömmu og afa þegar við áttum lítið.

„Mamma pass­aði alltaf að ég fengi að borða, þá borð­aði hún minna“

Við höfum alltaf fengið aðstoð frá Hjálp­ar­starfi kirkj­unnar og fengið þar mat og föt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fátæk börn

„Stundum er ég svöng og það er enginn matur til“
ViðtalFátæk börn

„Stundum er ég svöng og það er eng­inn matur til“

„Mér finnst ég ekk­ert þurfa að eiga mikið,“ segir 16 ára stúlka í Reykja­vík. Hún er ein þriggja systk­ina á heim­ili þar sem einu tekj­urnar eru bætur ein­stæðrar móður þeirra sem sam­an­lagt nema 322.000 krónum á mán­uði. Fjöl­skyldan hefur um 30.000 krónur til ráð­stöf­unar eftir að föst útgjöld hafa verið greidd og reiðir sig að miklu leyti á aðstoð hjálp­ar­sam­taka.
Hætti að halda upp á afmælið sitt tíu ára: „Ég veit að við erum fátækar“
ViðtalFátæk börn

Hætti að halda upp á afmælið sitt tíu ára: „Ég veit að við erum fátækar“

„Ég veit að við erum fátækar, en ég hugsa ekk­ert mikið um það. Nema þegar það er ekk­ert til að borða heima,“ segir 16 ára ung­lings­stúlka í Graf­ar­vogi. Hún hætti að halda upp á afmælið sitt tíu ára gömul, lokar sig af félags­lega og lætur sig dreyma um ferða­lög, en ætlar samt að nýta pen­ing­ana sem hún hefur safnað fyrir útskrift­ar­ferð í eitt­hvað hag­nýt­ara.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár