Æðri víddir, óýsanlegir litir og kveðjutónleikar

Tón­leikar, við­burðir og sýn­ingar 6. til 19. mars

Æðri víddir, óýsanlegir litir og kveðjutónleikar

Þetta og svo ótal margt fleira er á döf­inni næstu tvær vik­urnar.

Stockfish kvikmyndahátíð

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 12.–22. mars
Aðgangs­eyrir: 13.900 kr.

Stockfish-hátíðin reis upp úr ösku Kvik­mynda­há­tíðar Reykja­víkur, en hún hefur það mark­mið að efla og auðga kvik­mynda­menn­ingu á Íslandi. Hún er haldin í sjötta skiptið í ár, en á henni fer fram stutt­mynda­keppnin Sprett­fisk­ur­inn, auk þess að margar fram­sæknar og verð­laun­aðar myndir verða sýndar. Meðal ann­ars verður fjöld­inn allur af heim­ild­ar­myndum sem voru sýndar á Nordisk Panorama til boða, nýjasta mynd Takeshi Miike, First Love, verður til sýnis, költ­myndin Color out of Space sem er byggð á sögu H.P. Lovecraft og skartar Nicholas Cage er einnig sýnd svo og hin marg­verð­laun­aða kólombíska Monos sem fjallar um ein­angr­aða barna­her­menn.

Rafsegulgripirnir

Hvar? Lista­safn Íslands
Hvenær? Til 31. des­em­ber
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Raf­seg­ul­grip­irnir eru safn verka sem Woody Vasulka og hljóð­lista­mað­ur­inn Brian O’Reilly unnu í sam­ein­ingu. Meg­in­hrá­efnið skap­aði Woody með tölvu­stýrðum Rutt-Etra-skanna árið 1975 og árið 2006 kom O’Reilly til sam­starfs við Woody og bætti við hljóð­mynd­inni. Raf­seg­ul­bylgj­urnar voru skann­aðar og síðan átt við þær með mynd­vinnslu­hug­bún­aði, sem skap­aði síðan tón­list­ina.

Elín Ey

Hvar? Röntgen
Hvenær? 11. mars kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 3.000 kr.

Tón­list­ar­konan Elín Ey hefur verið virk í íslensku tón­list­ar­sen­unni um ára­bil og komið fram bæði undir eigin nafni og með hljóm­sveit­inni Sísý Ey. Nýverið gaf hún út stutt­skíf­una Gone sem verður spiluð auk eldra efnis. Tón­leik­arnir fara fram í litlum sal og er nánd við áhorf­endur því mikil.

Ísland Pólerað

Hvar? Tjarn­ar­bíó
Hvenær? 11., 15., 25. mars kl. 20.30
Aðgangs­eyrir: 3.900 kr.

Ísland Pólerað er fyrsta sýn­ing fjöl­menn­ing­ar­leik­fé­lags­ins Reykja­vík Ensemble í fullri lengd. Leik­verkið kjarn­ast um sögu pólsks inn­flytj­anda og þær áskor­anir sem fel­ast í því að sam­lag­ast íslensku sam­fé­lagi. Efni­viður sýn­ing­ar­innar er leik­inn á þremur tungu­málum, ensku, íslensku og pólsku, og koma flytj­end­urnir frá Póllandi, Íslandi og Danmörku. 

Grísalappalísa & dj. flugvél og geimskip

Hvar? Græni hatt­ur­inn
Hvenær? 12. mars kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 3.900 kr.

Grísalappalísa hefur verið ein kröft­ug­asta rokk­sveit lands­ins á síð­ustu árum. Til­vist­ar­kreppa og ang­ist ungra karl­manna hefur verið sveit­inni hug­leikin og fram­sækin texta­smíð end­ur­spegl­ast í eld­fimri og óráðs­kenndri hljóð­færa­spilun. Hljóm­sveitin gaf út þriðju plötu sína, Týnda rásin, og ætlar síðan að leggja upp laupana. Hljóm­sveitin kemur fram með hinni kynn­gi­mögn­uðu dj. flug­vél og geim­skip.

HIGH PLANE VI

Hvar? Lista­safn Íslands
Hvenær? Til 24. jan­úar
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Gestir þurfa að ganga upp stiga til að sjá verk Katrínar Sig­urð­ar­dóttur, en í því kallar hún á tengsl manna við nátt­úr­una sjálfa. Verkið vísar einnig til hrein­leik­ans og þess óflekk­aða en skír­skotar að auki til mis­mun­andi við­miða og sjón­ar­horna okkar mann­anna eftir því hvert lífs­leiðin liggur.

JFDR útgáfutónleikar

Hvar? Iðnó
Hvenær? 13. mars kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 2.900 kr.

Hin unga og efni­lega Jófríður Áka­dóttir hefur vakið mikla athygli erlendis fyrir draum­kenndan og skap­andi tón­list­ar­flutn­ing. Áður en hún fór að semja sem JFDR var hún hluti af hljóm­sveit­unum Pascal Pinon og Samaris. Hún fagnar útgáfu New Dreams, ann­arrar sól­ó­breið­skífu sinnar, á Iðnó með góðum gestum.

VHS og vinir

Hvar? Tjarn­ar­bíó
Hvenær? 14. mars kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Hópur grínista, leiddur af hópnum VHS (Vilhelm Neto, Hákon Örn og Stefán Ingvar), býður upp á kvöld af til­rauna­uppi­standi með það fyrir augum að breyta lífi áhorf­enda. Með þeim slást í för Þórdís Nadia Semichat, Karen Björg og Arnór Daði Gunn­ars­son. Allir sem fram koma eru vel reyndir grínistar og hafa komið fram víðs vegar.

Between Mountains

Hvar? Röntgen
Hvenær? 19. mars kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Vest­firski dúett­inn Between Mountains vann Mús­íktil­raunir 2017 og hefur spilað víðs vegar og á öllu helstu tón­list­ar­há­tíðum lands­ins. Hljóm­sveitin gaf út sam­nefnda plötu í nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, en hún hlaut Kraumsverð­launin. Katla Vigdís, sem semur og syngur öll lög sveit­ar­innar, kemur fram á þessum tón­leikum með rödd sína, gítar og hljóm­borð að vopni.

Andreas Brunner

Hvar? Hafn­ar­húsið
Hvenær? 19. mars–24. maí
Aðgangs­eyrir: 1.840 kr.

Andreas Brunner er 41. lista­mað­ur­inn til að sýna í sýn­inga­röð Lista­safns Reykja­víkur í D-sal. Und­an­farin ár hefur Andreas byggt upp vinnu­brögð sem eru ekki bundin við ákveð­inn miðil heldur fel­ast í stöðugri end­ur­skoðun ákveð­inna hug­taka og birt­ast í mis­mun­andi efnum og formum. Hugtökin vísa gjarnan til upp­runa og sköp­unar merk­ingar og skynj­unar á tíma og efn­is­kennd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár