Brautryðjendur í listaheimi, reikistjörnur og útgáfutónleikar

Tón­leikar, við­burðir og sýn­ingar 21. febr­úar til 5. mars.

Brautryðjendur í listaheimi, reikistjörnur og útgáfutónleikar

Þetta og svo ótal margt fleira er á döf­inni næstu tvær vik­urnar.

Lífsfletir & Að utan

Hvar? Kjar­vals­staðir
Hvenær? 22. feb.–3. maí
Aðgangs­eyrir: 1.840 kr.

22. febr­úar kl. 16.00 verður haldið opn­un­ar­hóf fyrir tvær ólíkar sýn­ingar eftir tvo ólíka braut­ryðj­endur í íslensku lista­sen­unni. Sú fyrri er sam­an­safn af verkum sem Jóhannes S. Kjarval, sem Kjar­vals­staðir eru nefndir eftir, vann árin 1911–1928. Sýnd verða mál­verk og teikn­ingar sem voru sköpuð erlendis, sem gefa inn­sýn í mót­un­arár Kjarvals og áhrifa­valda hans. Sú seinni er yfir­lits­sýn­ing á ferli Ásgerðar Búa­dóttur, en í verkum hennar sam­ein­ast aldagamlar aðferðir hand­verks­ins og frjáls sköpun nútíma­mynd­listar. Máttur teikn­ing­ar­innar var ávallt mik­il­væg und­ir­staða í verkum Ásgerðar og rík efn­is­kennd og öguð vinnu­brögð ein­kenna allt höf­und­ar­verk hennar.

Adda

Hvar? Mengi
Hvenær? 21. febr­úar kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Adda spilar þjóð­lagatón­list sem á sér rætur í hetju- og and­hetju­leið­angri hennar um innra lands­lag sjálfs­ins. Á þeirri leið umbreyt­ast þrá­hyggjur í mön­trur, sjálfið verður tauga­hinsegin og sníður sér stakk úr femín­isma og rót­tækri heim­speki. Lögin sveifl­ast á milli þess að vera syk­ur­sæt og hnyttin.

Föstudagspartísýning: Back to the Future

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 21. febr­úar kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Fáar kvik­myndir hafa haft jafn mót­andi áhrif á skiln­ing almenn­ings á tíma­flakki og Back to the Future. Myndin skartar þeim Michael J. Fox og Christopher Lloyd sem Marty McFly og Dr. Emmet Brown, en McFly ferð­ast óvart 30 ár aftur í tím­ann og þarf að sjá til þess að for­eldrar hans nái saman svo hann geti fæðst.

Reikistjörnur: Huginn

Hvar? Harpa
Hvenær? 22. febr­úar kl. 14.00
Aðgangs­eyrir: 2.200 kr.

Skaga­strandar-R&B-popp­ar­inn Huginn er ein af rísandi stjörnum íslensku tón­list­ar­sen­unnar. Auk plöt­unnar Eini Strákur (Vol. 1) hefur Huginn gefið út smelli eins og „Veist af mér“ og „Horfir á mig“. Hann kemur fram á tón­leika­röð­inni Reiki­stjörnur þar sem fjöl­skyldum gefst tæki­færi til að sækja saman tón­leika flutta í sal með ein bestu hljóm­gæði lands­ins.

Dauðadjúpar sprungur

Hvar? Ramskram
Hvenær? 22. febr­úar–22. mars
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Mynd­irnar í sýn­ing­unni Dauða­djúpar sprungur eiga sér rætur í hjarta­sorg ljós­mynd­ar­ans Hall­gerðar Hall­gríms­dóttur. Eftir að barn Hall­gerðar fædd­ist and­vana eigr­uðu hún og maki hennar um nærum­hverfi þeirra. Myndavél hennar flaut stundum með og fang­aði það sem var að brjót­ast um í und­ir­með­vit­und­inni. Sumar mynd­irnar eru marglaga og tákn­rænar, aðrar ein­faldar og auð­lesnar en allar eru þær hjúpaðar við­kvæmni og fjar­lægð. 

Útgáfutónleikar Hatara

Hvar? Aust­ur­bær
Hvenær? 22. & 23. febr­úar
Aðgangs­eyrir: frá 3.333 kr.

Eurovision-kepp­end­urnir Hatari fagna útgáfu plötu sinnar Neyslutrans með tveimur tón­leikum. Þessi gjörn­ingapönk­hljóm­sveit hefur aflað sér mik­ils stuðn­ings síð­ast­liðin ár með sviðs­fram­komu og skila­boðum sem tækla tóm­lausa neyslu­hyggju, rísandi fas­isma og sið­ferð­is­lega afstæð­is­hyggju með krítíska tóm­hyggju að vopni, klæddir í BDSM-bún­inga.

Benni Hemm Hemm

Hvar? Röntgen
Hvenær? 26. febr­úar kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 2.900 kr.

Benna Hemm Hemm áskotn­að­ist mikil frægð á fyrsta ára­tug þess­arar aldar í indí-sen­unni sem var þá alls­ráð­andi. Eftir nokk­urra ára hvíld snýr hann aftur með plöt­una KAST SPARK FAST sem kom út í síð­asta mán­uði. Tón­leik­arnir fara fram í litlum sal og er nánd við áhorf­endur því mikil.

24 Myndir

Hvar? Lista­safn Íslands
Hvenær? 28. febr­úar kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: frá 1.000 kr.

24 myndir eru pía­nó­tón­leikar þar sem Hjörtur Ingvi Jóhanns­son spinnur á staðnum stuttar tón­smíðar úr öllum 24 tón­teg­undum á píanó í ákveð­inni röð. Lögð er áhersla á að tæma hug­ann á undan, þannig að tón­listin verði til á staðnum en bygg­ist ekki á áður ákveð­inni áætlun.

Rhythm of poison

Hvar? Borg­ar­leik­húsið
Hvenær? 28. & 29. feb, 4., 7., & 5. mars
Aðgangs­eyrir: 4.900 kr.

Rhythm of Poison er glæ­nýtt verk eftir finnska dans­höf­und­inn Elinu Pirinen, flutt af Íslenska dans­flokknum. Verkið er fjörug og hríf­andi tján­ing­ar­veisla þar sem iðk­aður er dul­vit­und­ar­dans og dýrð­legur söngur í dásam­legri ver­öld dóms­dags­tón­listar og -mynda. Það er löngun dans­höf­und­ar­ins að vinna náið með ímynd­un­ar­aflið, kyn­hvöt, villi­leika og nánd.

Útgáfutónleikar Grafnár

Hvar? Tón­list­ar­mið­stöð Stelpur rokka
Hvenær? 29. febr­úar kl. 19.00
Aðgangs­eyrir: 1.000 kr.

Harð­neskju­lega harð­kjarnapönk­sveitin Grafnár fagnar útgáfu breið­skífu sinnar, Útför Heig­uls­ins, á þessum tón­leikum, en platan kemur út á seg­ul­bandi. Með þeim spilar ögrandi femíníska dauða­pönk­sveitin Börn, hraða og hráa tvíeykið í ROHT og unga og æsispenn­andi femíníska pönk­sveitin Spaða­bani. Engum verður mein­aður aðgangur vegna fjár­skorts.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár