Konur og börn dvöldu ríflega 8.000 daga í Kvennaathvarfinu

Börn sem dvöldu í athvarf­inu allt frá því að vera aðeins nokk­urra daga gömul. Konum sem fara aftur heim til ofbeld­is­manns eftir dvöl í athvarf­inu fer fækk­andi með árunum.

Konur og börn dvöldu ríflega 8.000 daga í Kvennaathvarfinu
Mikill fjöldi 244 konur og börn dvöldu í Kvenna­at­harf­inu á síð­asta ári. Mynd: Shutterstock

Alls dvöldu konur og börn í 8.228 daga í Kvenna­at­hvarf­inu á síð­asta ári. 144 konur dvöldu sam­tals í 4.326 daga í athvarf­inu og 100 börn dvöldu í 3.902 daga í Kvenna­at­hvarf­inu á síð­asta ári, allt frá einum degi og upp í 236 daga í senn. Að með­al­tali dvöldu 23 íbúar í athvarf­inu dag hvern, 12 konur og 11 börn að með­al­tali. Konurnar dvöldu að með­al­tali í 30 daga í athvarf­inu en börn að með­al­tali í 39 daga. Yfir helm­ingur kvenn­anna sem leit­uðu til Kvenna­at­hvarfs­ins á síð­asta ári kváð­ust hafa ótt­ast um líf sitt á einum eða öðrum tíma í sam­bandi sínu með ofbeld­is­manni.

Þetta kemur fram í tölum sem Kvenna­at­hvarfið sendi frá sér um starf­semi síð­asta árs. Auk kvenn­anna sem komu til dvalar í athvarf­inu komu 294 konur í við­töl þar, sam­tals í 545 við­töl. Þá hittu ráð­gjafar Kvenna­at­hvarfs­ins 214 konur í við­tölum í Bjark­ar­hlíð, mið­stöð fyrir þolendur ofbeldis.

Tölurnar sem um ræðir eru ívið hærri en tölur fyrir árið 2018, en þá dvöldu 136 konur og 70 börn í Kvenna­at­hvarf­inu um lengri eða skemmri tíma.

Konur á aldrinum 18 til 81 árs

Konurnar sem komu í Kvenna­at­hvarfið á síð­asta ári voru á aldr­inum 18 til 81 árs en börnin voru allt frá því að vera nokk­urra daga gömul og upp í 16 ára. Flestar kon­urnar nefndu and­legt ofbeldi sem ástæðu komu, 93 pró­sent, en flestar kon­urnar nefndu þó fleiri en eina ástæðu. Næst flestar nefndu lík­am­legt ofbeldi, 60 pró­sent, 48 pró­sent nefndu fjár­hags­legt ofbeldi og kyn­ferð­is­legt ofbeldi nefndu 37 pró­sent. Þá nefndu 35 pró­sent kvenn­anna ofbeldi gegn börnum sem ástæðu komu og hafa þær aldrei verið fleiri. Í sam­tölum við kon­urnar kom fram að alls búi 349 börn á ofbeld­is­heim­il­unum sem þær komu frá. 26 pró­sent kvenn­anna sögðu að þeim hefði verið hótað líf­láti, því sem næst sama hlut­fall og árið áður. Raunar má segja að um litlar breyt­ingar á hlut­falls­tölum milli ára sé að ræða. Fjórð­ungur sagði að þær hefðu verið teknar kyrk­inga­taki og fimmt­ungur hafði orðið fyrir staf­rænu ofbeldi, á meðan að 16 pró­sent þeirra höfðu orðið fyrir áreiti af hálfu elti­hrella.

Yfir helmingur kvennanna óttast um líf sitt

Yfir helm­ingur kvenn­anna sagði frá því að þær hefðu ein­hvern tíma hlotið lík­am­lega áverka í sam­bandi sínu og 12 pró­sent þeirra báru áverka þegar þær komu fyrst í athvarfið, 23 pró­sent þeirra sem komu þangað til dvalar og 6 pró­sent þeirra sem komu í við­töl. 54 pró­sent kvenn­anna sögð­ust hafa ótt­ast um líf sitt í sam­band­inu og 42 pró­sent sögðu lög­reglu hafa komið á vett­vang ofbeld­is­ins í eitt eða fleiri skipti. Fimmán pró­sent kvenn­anna höfðu kært ofbeldi til lög­reglu. Meiri­hluti mál­anna, 60 pró­sent, var enn í vinnslu en dómur hafði fallið í 5 pró­sent mál­anna á meðan að 16 pró­sent kærðra mála höfðu verið felld niður.

„Þess vegna er alltaf allt troð­fullt hjá okkur, það koma ekki mikið fleiri konur en var en þær fara bara mun síðar“

Sig­þrúður Guð­munds­dóttirSegir konur dvelja lengur í Kvenna­at­hvarf­inu en áður var.

Fimmtán pró­sent kvenn­anna fóru aftur heim til ofbeld­is­manns­ins að lok­inni dvöl í atv­harf­inu, sam­an­borið við 14 pró­sent árið 2018. Þá hafði það hlut­fall aldrei verið lægra. Sig­þrúður Guð­munds­dóttir, fram­kvæmda­stýra Kvenna­at­hvarfs­ins, segir að lengi vel hafi það hlut­fall verið miklu hærri og almennt sé það hærra í við­líka athvörfum erlendis. „Hæst reis þetta hlut­fall hjá okkur árið 2008 en þá mátti ætla að hátt í helm­ingur kvenn­anna sem komu til dvalar hjá okkur færi aftur heim til ofbeld­is­manns. Ég held að ástæð­una fyrir því að konur fari síður heim til ofbeldi­samnns nú en áður var megi fyrst og fremst rekja til inn­an­hús­s­á­kvörð­unar hjá okkur um að konur hefðu heim­ild til að dvelja hér lengur en áður var. Þess vegna er alltaf allt troð­fullt hjá okkur, það koma ekki mikið fleiri konur en var en þær fara bara mun síðar. Þær eru hjá okkur yfir þann tíma sem að þær eru að taka ákvörðun um að fara, en sú ákvörðun getur verið erfið og flókin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár