Læknir segir Landspítala óstarfhæft sjúkrahús

Læknar á Land­spít­ala segja Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra ekki átta sig á hversu alvar­legt ástand sé á spít­al­anum þar sem neyð­ar­á­stand ríki. Alvar­legt sé að ráð­herra fari fram á að læknar þegi yfir stöðu mála.

Læknir segir Landspítala óstarfhæft sjúkrahús
Staðan alvar­leg Lækn­arnir Björn Rúnar og Ragnar Freyr telja Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra ekki gera sér grein fyrir hversu alvar­legt ástandið á Land­spít­ala sé. Mynd: Læknablaðið

Læknar á Land­spít­ala segja fram­göngu Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra á fundi með lækna­ráði Land­spít­ala hafa rýrt traust til hennar. Alvar­legt sé að ráð­herra fari fram á að læknar þegi yfir því ástandi sem ríki á spít­al­anum, ekki síst í ljósi þess að kjöl­far efna­hags­hruns­ins var það tal­inn einn helsti orsaka­valdur hruns­ins að umræða um stöðu mála hafi verið þögguð. Staðan sé sú að á Land­pít­ala ríki nú neyð­ar­á­stand og að spít­al­inn sé sé óstarf­hæfur sem sjúkra­hús þegar komi að því að sinna bráð­veiku fólki.

Í nýju Lækna­blaði er rætt við Ragnar Frey Ingv­ars­son, sér­fræð­ing í lyf og gigt­ar­lækn­ingum á Land­spít­ala, og Björn Rúnar Lúð­víks­son, for­mann pró­fess­ora­ráðs Land­spít­ala. Á fundi ráð­herra með lækna­ráði sagði Svandís meðal ann­ars að það væri orðin tölu­verð áskorun fyrir hana „að standa með Land­spít­ala þegar koma álykt­anir á færi­bandi sem tala um það að þessi stofnun sé nán­ast hætt við.“ Þeir Ragnar og Björn gagn­rýndu báðir þessi orð ráð­herra á umræddum fundi.

Ragnar segir það háal­var­legt að ekki hafi verið dreg­inn meiri lær­dómur af hrun­inu en svo að reynt sé að kæfa niður þegar læknar lýsi þeirri alvar­legu stöðu sem uppi sé á spít­al­anum. „Það er svo skammt frá hruni og í kjöl­far þess var þögn talin einn af orsaka­völdum þess hversu illa fór. Það hefði kannski bægt frá meira tjóni en ella hefði fólk tjáð sig.“

Læknar hræddir við að tjá sig

Björn segir að hann telji að Svandís hafi ekki áttað sig á því hversu alvar­legt ástand ríki á spít­al­anum og um hversu langan tíma svo hafi verið. „Við höfum horft á hvernig hefur molnað undan starf­semi spít­al­ans mjög lengi,“ segir Björn og bendir á að nið­ur­skurð­ur­inn sem spít­al­inn hafi þurft að taka á sig við efna­hags­hrunið hafi aldrei verið bættur.

„Við erum með óstarf­hæft sjúkra­hús þegar kemur að því að sinna bráð­veiku, og þá sér­stak­lega bráð­veiku öldr­uðu fólki“

Ragnar segir að á spít­al­anum ríki neyð­ar­á­stand og það hafi ríkt um langa hríð. „Mann grípur skelf­ing að hugsa til þess að fyrir einu og hálfu ári sögðum við að það væri neyð­ar­á­stand. Ekkert var gert. Neyð­ar­á­standið verður því alltaf meira.“ Vissu­lega sé ýmis­legt sem verið sé að gera í heil­brigð­is­kerf­inu jákvætt, svo sem upp­bygg­ing hjúkr­un­ar­rýma auk ann­ars. Hins vegar breyti það ekki þeirri stöðu að neyð­ar­á­stand ríki á Land­spít­ala. Sjúkra­húsið sé að hluta óstarf­hæft. „Við erum með óstarf­hæft sjúkra­hús þegar kemur að því að sinna bráð­veiku, og þá sér­stak­lega bráð­veiku öldr­uðu fólki,“ segir Ragnar.

Báðir segja þeir Björn og Ragnar að það gangi ekki að sitja hjá og tjá sig ekki um stöð­una eins og hún sé. Björn segir að hann upp­lifi að þeir sem stígi fram og segi hug sinn í þessum efnum hljóti ekki fram­gang í starfi og lendi í vand­ræðum með að koma málum sínum áfram. „Menn hafa því verið hræddir við að tjá hug sinn opin­ber­lega. Það er ekki gott.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár