Nýr upplýsingafulltrúi fenginn án auglýsingar

Rósa Guðrún Erlings­dóttir er nýr upp­lýs­inga­full­trúi for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins eftir að hafa verið færð til í starfi. Til stendur að ráða annan upp­lýs­inga­full­trúa fyrir rík­is­stjórn­ina.

Nýr upplýsingafulltrúi fenginn án auglýsingar
Katrín Jak­obs­dóttir Rósa Guðrún Erlings­dóttir er komin í nýtt starf í ráðu­neyti Katrínar. Mynd: Shutterstock

Nýr upp­lýs­inga­full­trúi for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, Rósa Guðrún Erlings­dóttir, var valin í starfið án aug­lýs­ingar. Staðan hafði ekki verið til í nokkur ár, en Rósa var færð til í starfi innan ráðu­neyt­is­ins. Stöður upp­lýs­inga­full­trúa eru venju­lega aug­lýstar.

Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag. Greint var frá ráðn­ingu Rósu í byrjun jan­úar, en hún hafði starfað sem sér­fræð­ingur á sviði jafn­rétt­is­mála síðan 2013. Sama dag var sagt frá því að Lára Björg Björns­dóttir hefði hætt sem upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar, en það er önnur staða sem þó hefur einnig starfs­stöð í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Samkvæmt Ágústi Geir Ágústs­syni, skrif­stofu­stjóra ráðu­neyt­is­ins, stendur til að ráða í stöðu Láru síðar á þessu ári.

Ágúst segir að ákveðið hafi verið að gera breyt­ingar á verk­sviði Rósu og fela henni verk­efni á sviði upp­lýs­inga og vef­mála í ráðu­neyt­inu. Umfang þess­ara verk­efna hafi auk­ist hratt und­an­farin ár, bæði af eigin frum­kvæði og vegna fyr­ir­spurna. For­sæt­is­ráðu­neytið muni taka for­ystu um þessi verk­efni og verði það á verk­sviði Rósu. „Hér er því um til­færslu á starfs­manni að ræða innan ráðu­neyt­is­ins,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár