Sautján ár á milli ráðninga á konu í forstjórastóli hjá skráðu félagi

Kona var síð­ast ráðin í for­stjóra­stól hjá skráðu félagi í sept­em­ber í fyrra eftir 17 ára hlé. Dósent við Við­skipta­fræði­deild HÍ segir að með ákveð­inni hug­ar­fars­breyt­ingu getum við orðið til fyr­ir­myndar. „Látum ekki önnur 17 ár líða.“

Ragnhildur Geirsdóttir er fyrsta konan sem var ráðin í stöðu forstjóra í skráðu félagi. 17 ár liðu þar til kona var næst ráðin sem forstjóri hjá skráðu félagi. Það er Ásta S. Fjeldsted sem var ráðin forstjóri Festi í september 2022.
Ragn­hildur Geirs­dóttir er fyrsta konan sem var ráðin í stöðu for­stjóra í skráðu félagi. 17 ár liðu þar til kona var næst ráðin sem for­stjóri hjá skráðu félagi. Það er Ásta S. Fjeld­sted sem var ráðin for­stjóri Festi í sept­em­ber 2022. Mynd: Samsett

Ragn­hildur Geirs­dóttir, fyrr­ver­andi for­stjóri Flug­leiða og síðar FL Group, er fyrsta konan sem ráðin var í stöðu for­stjóra í skráðu félagi.

Það var árið 2005. Það var svo ekki fyrr en í sept­em­ber á síð­asta ári sem kona var aftur ráðin í stól for­stjóra skráðs félags þegar Ásta S. Fjeld­sted tók við sem for­stjóri Festi. Það liðu því 17 ár á milli ráðn­inga á konu í for­stjóra­stól skráðs félags.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í grein Ástu Dísar Óla­dóttur, dós­ents við Við­skipta­fræði­deild og stjórn­ar­for­manns MBA náms við HÍ, í ára­móta­blaði Vís­bend­ingar. Í blað­inu er sjónum sér­­stak­­lega beint að fjöl­breytni, jafn­­rétti og því hvernig unnt er að nýta hæfni og krafta breið­­ari hóps í við­­skipta­líf­inu, ekki síst í stjórnum og stjórn­­un­­ar­­stöð­um, en ekki bara hæfni og krafta þeirra sem eru líkir þeim sem stýra fyr­­ir.

Hallar verulega á konur í stjórnendastöðum á einkamarkaði

„Staða jafn­rétt­is­mála er almennt talin vera góð hér á landi, hún þykir reyndar ,,til fyr­ir­myndar“ að mörgu leyti. Konur og karlar búa við laga­legt jafn­rétti og ýmis stór skref hafa verið stigin til að jafna stöðu kynj­anna. Mennt­un­ar­stig kvenna og hlut­fall þeirra á vinnu­mark­aði er hátt hér á landi sem og hlut­fall kvenna í stjórn­málum og í stjórn­un­ar­stöðum hjá hinu opin­bera. Staðan er hins vegar önnur á einka­mark­aði, þar hallar veru­lega á konur í stjórn­enda­stöðum,“ segir Ásta Dís í grein sinni.

Síð­ast­liðin níu ár hefur Kjarninn gert úttekt á kynja­hlut­föllum þeirra sem stýra þús­undum millj­arða króna í ýmis fjár­fest­inga­verk­efni hér­lendis. Í níu ár hefur nið­ur­staðan verið svipuð, karlar eru allt um lykj­andi. Á síð­asta ári voru karl­arnir 91 en kon­urnar 13. Þeim hefur fjölgað um sjö frá 2014. Frá því að Kjarninn hóf að gera úttekt­ina árið 2014 hefur kon­unum sem hún nær til fjölgað úr sex í 13, á níu árum. Körlunum hefur hins vegar fjölgað um tólf.

Í grein­inni fer Ásta Dís yfir þró­un­ina hjá skráðum félögum á mark­aði þar sem kona gegnir starfi for­stjóra. Karlmenn sem gegnt hafa stöðu for­stjóra í skráðum félögum síðan Kauphöll Íslands var stofnuð á níunda ára­tug síð­ustu aldar skipta hund­ruðum en ein­ungis sex konur hafa gegnt stöðu for­stjóra í skráðu félagi frá upp­hafi. Aðeins tvær þeirra voru ráðnar þegar félagið var skráð á mark­aði.

[links]Hildur Petersen var for­stjóri Hans Petersen sem skráð var á vaxta­lista, Ragn­hildur Geirs­dóttir, fyrr­ver­andi for­stjóri Flug­leiða og síðar FL Group, var fyrsta konan sem ráðin var í stöðu for­stjóra í skráðu félagi árið 2005. Sigrún Ragna Ólafs­dóttir var ráðin for­stjóri VÍS árið 2010 og félagið var skráð á markað 2013. Hún hætti árið 2016 og þá liðu fimm ár þar sem engin kona var for­stjóri í skráðu félagi. Það breytt­ist árið 2021 þegar Íslands­banki var skráður, en Birna Ein­ars­dóttir hefur verið for­stjóri þess félags frá árinu 2008. Margrét B. Tryggva­dóttir tók við for­stjóra­stöðu Nova árið 2018 og félagið var skráð 2022.

„Það var svo í sept­em­ber 2022, í fyrsta sinn frá árinu 2005 að kona var ráðin í stól for­stjóra, er Ásta S. Fjeld­sted tók við sem for­stjóri Festi. Það liðu því 17 ár á milli ráðn­inga á konu í for­stjóra­stól skráðs félags,“ bendir Ásta Dís á.

„Látum ekki önnur 17 ár líða“

Ásta Dís er meðal rann­sak­enda í nýrri rann­sókn sem byggir á reynslu 22 stjórn­ar­kvenna í skráðum félögum á Íslandi af for­ystu­hæfni, tengsla­neti og stuðn­ingi við konur til að gegna for­stjóra­stöðu. Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar eru að konur eru hæfar til að gegna for­stjóra­stöðum í skráðum fyr­ir­tækj­um, en þegar kemur til ráðn­inga for­stjóra skráðra félaga eru þær þó ekki ráðnar til starf­anna þar sem áhrif karla, tengsla­net og íhalds­samar staðalí­myndir af for­ystu­hæfni kvenna og árang­urs­ríkri for­ystu virð­ast ráða ákvörð­un­um. Þar með aukast líkur á því að horft sé fram hjá hæfum konum við for­stjóra­val.

Greint er frá nið­ur­stöð­unum í grein í nýj­ustu útgáfu Tíma­rits um við­skipti og efna­hags­mál. Með­höf­undar Ástu Dísar eru Sig­rún Gunn­ars­dótt­ir, pró­fessor við Við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, Þóra H. Christ­i­an­sen, aðjúnkt við Við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, og Erla S. Krist­jáns­dótt­ir, pró­fessor við Við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands.

Í henni segir að í nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar felist tæki­færi fyrir stjórnir skráðra félaga til þess að auka gæði ráðn­inga for­stjóra og jafna kynja­mun með auknum fjöl­breyti­leika og með því að miða ráðn­ing­arnar við árang­urs­ríka hæfni til for­ystu.

„Fyrir rétt rúmu ári síðan var engin kona for­stjóri í skráðu félagi, nú eru þær þrjár. Með ákveð­inni hug­ar­fars­breyt­ingu og með því að taka ákvörðun um jöfn tæki­færi kynj­anna til stjórn­un­ar­starfa, þá getum við raun­veru­lega orðið til fyr­ir­myndar. Látum ekki önnur 17 ár líða,“ segir Ásta Dís.

Jafnrétti ekki náð fyrr en það verður jafnalgengt að sjá konur í meirihluta og karla.

Katrín Ólafs­dóttir, dós­ent við Háskól­ann í Reykja­vík, fjallar einnig um konur í stjórnn­ar­stöðum í grein sinni í Vís­bend­ingu, „Hverju ráða kon­urnar?“, þar sem hún rýnir nánar í hver stjórna land­inu og hver stjórna hags­munum og fjár­munum.

Fram kemur í grein Katrínar að kynja­mun­ur­inn í stjórnum fyr­ir­tækja reyn­ist mun meiri á almennum mark­aði en þeim opin­bera. Af þeim 22 fyr­ir­tækjum sem skráð eru á markað í Aðal­markað Kaup­hallar Íslands eru konur for­stjórar í þremur. Konur stjórna því 14 pró­sent fyr­ir­tækja á Aðal­mark­aði. Auk þess hallar mjög á hlut­fall kvenna í æðstu stjórn fyr­ir­tækja á almennum mark­aði, hvort sem um er að ræða stjórnir, stjórn­ar­for­mennsku, for­stjóra eða fram­kvæmda­stjóra.

„Rýr hlutur kvenna í mik­il­vægum stjórn­un­ar­stöðum á almennum mark­aði er tíma­skekkja. Það þarf að skoða hvað veldur og hvernig er hægt að bæta stöðu kvenna á almennum vinnu­mark­aði,“ segir Katrín í grein sinni.

Augljóst skref að hennar mati er að inn­leiða refs­ingar þar sem ekki er farið að ákvæðum laga. „Ef ekki er tekið á þessum kynja­halla, sér­stak­lega í stjórnun á almennum mark­aði, er hætta á að Ísland missi sæti sitt á lista yfir lönd sem státa af mestu kynja­jafn­rétti. Jafn­rétti er ekki náð fyrr en það verður jafn­al­gengt að sjá konur í meiri­hluta og karla. Ljóst er að mikið vantar upp á því tak­marki sé náð.“

Grein Ástu Dísar í ára­móta­blaði Vís­bend­ingar má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár