Konur nenna ekki „alltaf í bjór eftir vinnu … við viljum bara frekar fara heim til barnanna“

Stjórn­ar­kona í skráðu félagi seg­ist ekki telja að karl­arnir í stjórn­unum séu „ein­hver klúbbur vondra karla sem vilji sitja um og fella ungar konur“ en „því fleiri skipti sem þú getur greitt götu vina þinna, því stærri karl ertu.“

„Karlmenn eru sekir um það að þeim líður voða vel að hringja í ein­hvern Sigga vin sinn, því að þeir treysta honum og þeir skilja hvernig hann hugsar og finnst hann svo voða útreikn­an­legur og svo fá þeir klapp á bakið frá hinum félög­unum … þú veist svona við Pall­arnir stöndum saman … því fleiri skipti sem þú getur greitt götu vina þinna, því stærri karl ertu.“

Þetta er á meðal þess sem stjórn­ar­kona í skráðu félagi á Íslandi sagði í við­tali við rann­sak­endur sem vildu kanna reynslu 22 slikra kvenna af for­ystu­hæfni, tengsla­neti og stuðn­ingi við konur til að gegna for­stjóra­stöðu. Nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar, sem kynnt var í grein í nýjasta hefti Tíma­rits um við­skipti og efna­hags­mál, var að konur séu hæfar til að gegna for­stjóra­stöðum í skráðum fyr­ir­tækj­um, en þegar kemur til ráðn­inga for­stjóra skráðra félaga eru þær þó ekki ráðnar til starf­anna þar sem áhrif karla, tengsla­net og íhalds­samar staðalí­myndir af for­ystu­hæfni kvenna og árang­urs­ríkri for­ystu virð­ast ráða ákvörð­un­um. Þar með aukast líkur á því að horft sé fram hjá hæfum konum við for­stjóra­val.

Grein­ina skrif­uðu Ásta Dís Óla­dótt­ir, dós­ent við Við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, Sig­rún Gunn­ars­dótt­ir, pró­fessor við Við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, Þóra H. Christiansen, aðjúnkt við Við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, og Erla S. Krist­jáns­dótt­ir, pró­fessor við Við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands.

Kjarninn greindi fyrst frá helstu nið­ur­stöðum á mánu­dag.

„Ég þekki hann og hann er rosa fínn“

Rann­sóknin fór þannig fram að not­ast var við ítar­spurn­ingar til að fá grein­ar­góðar lýs­ingar og reynslu­sögur um upp­lifun og reynslu kvenn­anna 22. Viðtölin fóru fram 15. júní til 6. júlí 2020, í gegnum Microsoft Teams, tóku 60 til 130 mín­útur, voru hljóð­rituð, rituð frá orði til orðs, geymd í læstum tölvum rann­sak­enda og eytt að úrvinnslu lok­inni. Við­mæl­endum voru gefin gervi­nöfn til að tryggja nafn­leynd þeirra.

[links]Í svörum kvenn­anna er meðal ann­ars tala um per­sónu­leg tengsl milli karla, sem virð­ast hafa meiri áhrif en fag­leg umræða: Ein þeirra sagði: „Ég átti von á miklu fag­legri umræðu og svo­leiðis en þetta er svo­lítið svona íslenska leiðin, þú vilt kunna vel við fólk, helst þekkja það eða þekkja vel til þess áður en þú tekur svona ákvarð­anir. … þá eiga karl­arnir, virð­ist vera, meiri sjéns því að þeir eru oft­ast í meiri­hluta í stjórn­unum og þeir eru með reynslu sem að kon­urnar eru ekki með og þeir eru með tengsl við hina karl­ana. ... þá ertu svo­lítið búin að taka þetta úr svona ein­hverju fag­legu ferli yfir í bara, ég þekki hann og hann er rosa fínn.“

Konurnar tala um það í við­töl­unum að það sé mik­il­vægt að konur nýti stuðn­ing í gegnum tengsla­net sín til að ná fram­gangi. Karl­arnir hafi þó ein­fald­lega nýtt sín net miklu lengur. Ein konan lýsti þessu svona: „Maður er með svona sitt network, jafn­ingja network sem maður reynir bara að styðja við svona fag­lega, kannski hvor aðra og þetta er eitt­hvað sem að karl­arnir hafa áttað sig á í gegnum tíð­ina.“

Konurnar töl­uðu líka um mun á áherslum karla og kvenna í sam­bandi við tengsla­myndun og ein þeirra sagði að áherslur karla henti ekki alltaf konum: „Strák­arnir eru rosa öfl­ugir í því en við erum ekki, við nennum ekk­ert að fara alltaf í bjór eftir vinnu … við viljum bara frekar fara heim til barn­anna okkar”. Dröfn talar líka um þennan mun á áherslum sem hún telur að gæti tengst gild­is­mati: Ég held að konur til dæmis eru ekki stundum nógu dug­legar að … búa til tengsla­netin … við erum að nýta bara tím­ann í annað. Og svo má má líka alveg velta fyrir sér … er ekki bara hins vegar kom­inn tími á að annað gild­is­mat yfir­höfuð? Þarna erum við að reyna að aðlaga konur að gild­is­mati karla. Er það endi­lega svo frá­bært að við þurfum að aðlaga okkur að því?“

„Því fleiri skipti sem þú getur greitt götu vina þinna, því stærri karl ertu“

Í grein­inni er líka greint frá því að tengsl milli kvenna geti skipt miklu máli fyrir fram­gang í æðstu stjórn­un­ar­stöðu. Einn við­mæl­and­inn sagði að konur tali vel um hvora aðra, hrósi og sé til staðar. „Þetta „women‘s network“ er að byrja, þær eru að hjálpa hvor annarri orðið”.

Önnur tók í sama streng og sagði að tengsla­net kvenna væri orðið virkara og að konur væri líka virk­ari í tengsla­netum karla. „Maður sér núna, bæði eru konur að standa mikið betur, þéttar saman, það eru fleiri net­verk fyrir konur og konur eru meira inn í net­verkum karla”.

[adspot]Einn við­mæl­and­inn sagði að hún héldi ekki að meiri­hluti stjórn­ar­manna á Íslandi væri ein­hver klúbbur vondra karla sem vilji sitja um og fella ungar konur. „Þetta er bara ein­hver ráðn­ing­ar­gildra sem er svo­lítið fólgin í því að ef þú nærð að spegla sjálfa þig í umsækj­end­unum þá líður þér rosa vel með að ráða við­kom­andi, þá verður þetta svo auð­velt … karl­menn eru sekir um það að þeim líður voða vel að hringja í ein­hvern Sigga vin sinn, því að þeir treysta honum og þeir skilja hvernig hann hugsar og finnst hann svo voða útreikn­an­legur og svo fá þeir klapp á bakið frá hinum félög­unum … þú veist svona við Pall­arnir stöndum saman … því fleiri skipti sem þú getur greitt götu vina þinna, því stærri karl ertu.“

Níu af hverjum tíu forstjórum karlar

Kjarn­inn hefur árum saman fjallað ítar­lega um stöðu kvenna í þeim geirum sem stýra fjár­magni á Íslandi. í þau níu ár sem hann hefur fram­­kvæmt úttekt á kynja­hlut­­föllum þeirra sem stýra þús­undum millj­­arða króna í ýmis fjár­­­fest­inga­verk­efni hér­­­lend­is hefur nið­­ur­­staðan verið svip­uð, karlar eru allt um lykj­andi. Í úttekt­inni í ár, sem birt var seint í maí, kom fram að karl­­arnir væru 91 en kon­­urnar 13.

[adspot]Það hefur verið sér­stak­lega áber­andi á hluta­bréfa­mark­aði. Eftir end­ur­reisn hans var lengi vel ein kona for­stjóri í skráðu félagi, Sig­rún Ragna Ólafs­dóttir sem stýrði VÍS. Henni var sagt upp í ágúst 2016 og eftir það liðu næstum fimm ár þar til kona varð for­stjóri í skráðu félagi. Það gerð­ist þó ekki í gegnum ráðn­ingu heldur skrán­ingu Íslands­banka, sem stýrt er af Birnu Ein­ars­dótt­ur. Um ári síð­­­ar, seint í júní síð­­ast­liðn­­um, fjölg­aði kon­unum í for­­stjóra­stóli skráðs félags um 100 pró­­sent, þegar Nova, sem er stýrt af Mar­gréti Tryggva­dótt­­ur, var skráð á mark­að.

Í sept­em­ber 2022 gerð­ist það svo að fyrsta konan var ráðin for­­stjóri í þegar skráðu félagi frá því að íslenskur hluta­bréfa­­mark­aður var end­­ur­reistur eftir banka­hrun­ið. Þá var greint frá því að Ásta Sig­ríður Fjeld­sted var ráðin for­­stjóri Festi. Á tveimur og hálfum mán­uði fjölg­aði kon­unum sem gegna for­­stjóra­­stöðu í Kaup­höll Íslands því úr einni í þrjár. Hinum 27 félög­unum sem skráð eru á Aðal­markað og First North mark­að­inn er þó stýrt af körl­um. Því eru 90 pró­sent allra for­stjóra í skráðum félögum karl­ar.

Mark­mið kynja­kvóta­laga aldrei náðst

Lög um kynja­kvóta í stjórnum fyr­ir­tækja á Íslandi voru sam­­­­þykkt árið 2010. Þau tóku að fullu gildi í sept­­­­em­ber 2013. Lögin segja að fyr­ir­tækjum sem eru með 50 eða fleiri starfs­­­­menn þurfi að tryggja að hlut­­­­fall hvors kyns sé ekki undir 40 pró­­­­sent­­­­um. Mark­miðið með laga­­­­setn­ing­unni var að „stuðla að jafn­­­­­­­ari hlut­­­­föllum kvenna og karla í áhrifa­­­­stöðum í hluta­­­­fé­lögum og einka­hluta­­­­fé­lögum með auknu gagn­­­­sæi og greið­­­­ari aðgangi að upp­­­­lýs­ing­­­­um.“

Von þeirra sem sam­­­­þykktu frum­varpið – 32 þing­­­­menn úr öllum flokkum nema Sjálf­­­­stæð­is­­­­flokknum sem áttu þá sæti á þingi – var að fleiri konur í stjórnum myndi leiða til þess að fleiri konur yrðu ráðnar í stjórn­­­­un­­­­ar­­­­stöður og það myndi fjölga tæki­­­­færum kvenna.

Hag­­­­stofa Íslands tekur árlega saman tölur um hversu margar konur sitji í stjórnum fyr­ir­tækja. Stofn­unin birti nýj­­­ustu tölur sín­­­­ar, sem sýna stöð­una í lok 2021, á þriðju­dag í síð­­­­­ustu viku. Þar kom fram að rúm­­­­lega fjórð­ung­­­­ur, 27 pró­­­­sent, allra stjórn­­­­­­­ar­­­­manna í íslenskum fyr­ir­tækjum væru kon­­­­ur. Það hlut­­­­fall var 24 pró­­­­sent árið 2010.

Í fyr­ir­tækjum með fleiri en 50 laun­þega var hlut­­­­fall kvenna í stjórnum 19,5 pró­­­­sent árið 2010. Árið sem lögin tóku gildi var hlut­­­­fallið orðið 30,2 pró­­­­sent. Frá þeim tíma hefur lítið gerst. Hlut­­­­fallið var 34,7 pró­­­­sent í fyrra.

Hlut­­­fall kvenna í stöðu fram­­­kvæmda­­­stjóra hækk­­­aði lít­il­­­lega á milli ára og var 23,9 pró­­­sent en hlut­­­fall kvenna í stöðu stjórn­­­­­ar­­­for­­­manna var 24,7 pró­­­sent í lok árs 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynjajafnrétti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár