Veirur frá ísöld vaktar til lífs á rannsóknarstofu

Veirur sem legið hafa í sífrer­anum í Síberíu í 48.500 ár hafa verið end­ur­lífg­aðar á rann­sókn­ar­stofu. Til­gang­ur­inn er að kom­ast að því hvað bíður okkar ef sífrer­inn þiðnar.

Ísinn í Síberíu geymir mörg leyndarmál fortíðar. Og veirur sem herjuðu á lífverur í fyrndinni.
Ísinn í Síberíu geymir mörg leynd­ar­mál for­tíðar. Og veirur sem herj­uðu á líf­verur í fyrnd­inni. Mynd: Pexels

Veirur sem sóttar voru á sextán metra dýpi botns stöðu­vatns í Síberíu, þar sem þær hafa legið frá því á ísöld, hafa verið end­ur­lífg­aðar á rann­sókn­ar­stofu. Vís­inda­menn við Aix-Marseille-háskóla í Frakk­landi rann­saka veir­urnar í þeim til­gangi að finna út hvað gæti beðið okkar ef sífreri á norð­ur­slóðum þiðnar. Þeir hafa þegar borið kennsl á þrettán ólíkar veiru­teg­undir og afbrigði úr bor­kjörnum sem teknir voru úr botni vatns­ins. Sumar veir­urnar fund­ust varð­veittar í loð­fíla­skít og aðrar í hræjum Síberíu-úlfa.

Yngsta veiru­teg­undin hefur legið frosin í Síberíu í 27 þús­und ár en sú elsta í 48.500 ár. Aldrei hefur áður tek­ist að end­ur­lífga svo gamla veiru.

[adspot]

Óttast er að þegar hinn mikli sífreri Síberíu þiðnar, eins og vís­bend­ingar eru um að ger­ist sam­hliða hlýnun jarðar, gætu sjúk­dómar sem herj­uðu á fólk og dýr í fyrnd­inni snúið aftur.

Veir­urnar sem vís­inda­menn­irnir hafa ein­angrað geta smitað ein­frum­unga, ein­faldar líf­verur sem lifa í jarð­vegi og vatni, og fjölgað sér í slíkum.

„En ef þessar ákveðnu veirur for­tíðar hald­ast smit­andi eftir að hafa verið frystar í svo langan tíma, þá á það líka við um aðrar veiru­teg­undir,“ segir Jean-Michael Claverie, aðal­höf­undur rann­sókn­ar­innar, við tíma­ritið New Scientist. Í því hefur grein um rann­sókn­ina verið birt en hún hefur enn ekki verið rit­rýnd.

Til­raunir með end­ur­lífgun eld­gam­alla veira hljómar í eyrum almenn­ings sem tölu­verð áhætta. En vís­inda­menn­irnir vilja meina að rann­sóknin sé þess virði til að reyna að spá fyrir um hvað gæti gerst ef sífreri Rúss­lands og víðar á norð­ur­slóðum þiðnar. Í honum leyn­ist fjöldi fros­inna líf­vera. Og ef hægt er að end­ur­lífga þær á rann­sókn­ar­stofum gætu nátt­úru­legir ferlar mögu­lega gert það líka.

Rann­sóknin er enn á fyrstu stigum og enn á eftir að reyna ýmis­legt áður en hægt er að slá nokkru föstu með fullri vissu, segja vís­inda­menn­irnir. Þeir von­ast til þess að nið­ur­stöður þeirra geti komið að gagni við þróun bólu­efna og við­bragða þegar og ef fornar veirur fara aftur á kreik sam­hliða lofts­lags­breyt­ingum.

[adspot]

Nýleg rann­sókn þykir sýna að sífreri á kanadíska heim­skauta­svæð­inu þiðni 70 árum fyrr en áður var talið. Vís­inda­menn telja þetta vís­bend­ingu um auk­inn hraða lofts­lags­breyt­inga.

Þegar sífreri þiðnar er m.a. hætta á að mikið magn gas­teg­unda, til að mynda met­ans, sem bundnar eru í sífrer­anum losni út í and­rúms­loftið og hækki enn frekar hita­stig, sem leiðir til enn frek­ari þiðn­unar.

Hörfar hratt með breyttu loftslagi

Sífreri (e. perma­frost) mynd­ast þar sem frost helst allan árs­ins hring í yfir­borðslagi jarðar, hvort sem það er í jarð­vegi, set­lögum eða bergi. Sífreri getur verið allt frá nokkrum sentí­metrum upp í hund­ruð metra á þykkt. Á sumrin þiðnar landið ofan frá og er sá hluti kall­aður virka lagið.

Sífreri finnst einkum á heim­skauta- og háfjalla­svæðum jarðar. Útbreiðsla hans er háð veð­ur­fari en sífrer­inn hörfar hratt þegar lofts­lag hlýnar, líkt og nú er. Við það verða miklar breyt­ingar í yfir­borðslögum jarð­ar­innar. Fjalls­hlíðar verða óstöðugar og líkur á skriðu­föllum aukast en önnur afleið­ing er að við bráðn­un­ina losna úr sífrer­anum gróð­ur­húsa­loft­teg­undir svo sem koldí­oxíð (CO2) og metan­gas (CH4).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftslagsbreytingar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár